Austurglugginn


Austurglugginn - 11.11.2021, Blaðsíða 2

Austurglugginn - 11.11.2021, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 11. nóvember AUSTUR · GLUGGINN Sveitarfélagið Fjarðabyggð áætlar að fjárfesta í hafnarmannvirkjum fyrir um 1,5 milljarð króna fram til ársins 2025, samkvæmt drögum að fjárhagsáætlun. „Það eru bæði aukin umsvif, aukinn afli og að skip fara stækkandi. Við erum með stærstu fiskihöfn landsins sem er á Norðfirði þar sem mestur afli kemur á land. Þá hefur laxeldi stækkað og það er mjög mikið líf í kringum hafnirnar og sjávarútveginn í Fjarðabyggð og við þurfum að svara því og reyna þjónusta fyrirtækin eins vel og við getum,“ segir Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Gert er ráð fyrir að 355 milljónir verði settar í Eskifjarðarhöfn á næsta ári, í tengslum við uppbyggingu á svæði Eskju. Þá verði 405 milljónum varið í endurnýjum bryggjunnar í miðbænum þar árið 2024. Á Norðfirði eru 405 milljónir áætlaðar í framkvæmdir árið 2023. Þar verða bryggjan við fiskimjölsverksmiðjuna endurbætt. Á næsta ári verða framkvæmdir á svæðinu í tengslum við vatnsveitu. Sama upphæð er áætluð í Mjóeyrarhöfn árið 2025. Jón Björn segir þörf á að stækka höfnina en síðan velti aðrar framkvæmdir á mögulegri orkuframleiðslu þar. Komist skriður á þau máli gæti þurft að flýta vinnunni. BÞB „Við erum svona hóflega bjartsýn að svo stöddu. Það hefur verið einhver áhugi en hvort það næst að fylla í allar stöður verður að koma í ljós,“ segir Jóhanna Reykjalín, verkefnastjóri hjá grunnskóla Djúpavogs. Manna þarf einar sex stöður hjá skólanum strax eftir áramót meðal annars vegna leyfa og fæðingarorlofs en af þessum sex stöðum er um fjórar kennslustöður að ræða. Umsóknarfrestur rennur út síðla þessa mánaðar en Jóhanna segir að á Djúpavogi glími menn við sama vandamál og annars staðar á Austurlandi: „Það er þetta klassíska ár eftir ár. Jafnvel þó fólk hafi áhuga á störfum við skólann þá þarf undantekningarlítið að hjálpa til við að finna þeim húsnæði líka. Kannski ekki síst vegna þess að hér er um tímabundin störf að ræða þó reyndar séu góðir möguleikar á framtíðarstörfum í kjölfarið. Það er vissulega leiðigjarnt að standa ítrekað í slíku en við gerum það sem þarf að gera og merkilegt en satt þá hefur okkur yfirleitt alltaf tekist að ráða fram úr öllu slíku á endanum.“ Aðspurð um hvað gerist ef ekki tekst að manna umræddar stöður eins og vonir standa til segir Jóhanna eina hugsanlega lausn að núverandi starfsfólk bæti við sig vinnuframlagi. „En það er ekki óskastaða neins og vonandi kemur ekki til þess.“ AE Alls var slátrað 26.500 lömbum í Sláturhúsi Vopnfirðinga á sláturvertíðinni sem er nýlokið. Það er með því minnsta sem slátrað hefur verið þar. Fækkunin nam rúmum 3% eða 300 lömbum. „Það var viðbúið,“ segir Skúli Þórðarson, framkvæmdastjóri. „Bændum fækkar hér eins og annars staðar og einir þrír hafa hætt búskap hér síðustu tvö árin. Ég átti því von á færri lömbum til slátrunar en við getum samt verið nokkuð sáttir hér því það er miklu meiri fækkun annars staðar á landinu.“ Aðspurður um hugsanlegar ástæður óvenju mikillar fækkunar á landsvísu segir Skúli liggja í augum uppi að afurðaverðið skipti þar stóru máli. „Við erum enn ekki búin að ná því afurðaverði sem við fengum áður en það hrundi niður um 40 prósent 2016 til 2017 og vantar töluvert enn upp á það. Sú staðreynd plús hversu erfitt er að fólk nýtt fólk inn í greinina. Mér skilst að um 60 prósent sauðfjárbænda séu yfir sextugsaldrinum. Þetta getur ekki endað vel ef fram heldur sem horfir.“ Dilkarnir á Vopnafirði voru þó í vænna lagi í haust samanborið við þau síðustu. AE Vilja bæta Hreimsstaðaveg Eigendur og ábúendur Rauðholts, Hreimsstaða og Ketilsstaða í Hjaltastaðaþinghá hafa farið þess á leit við Vegagerðina að setja veginn milli Rauðholts og Hreimsstaða aftur á vegaskrá. Samhliða þessu óska þeir eftir að vegurinn verði bættur og Selfljót brúað í nágrenni Hreimsstaða. Sveitarfélagið Múlaþing hefur tekið undir erindið. Í bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs er lögð áhersla á að Vegagerðin sinni skyldum sínum og viðhaldi þeim vegum sem lög segi fyrir um. Skoða muni fyrir stríðsárasafnið Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt að ganga til samninga um kaup á munum sem sveitarfélaginu voru boðnir til kaups fyrir Íslenska stríðsárasafnið á Reyðarfirði. Í bókun menningar- og nýsköpunarnefndar segir að mikilvægt sé að kaupa munina og fara í frekari uppbyggingu á safninu í beinu framhaldi. Bæjarstjóra og fjármálastjóra hefur verið falið að útfæra tillögur að fjármögnun kaupanna. Þá telur nefndin mikilvægt að skipa starfshóp sem móti framtíðarsýn fyrir safnið. Haldið til haga Við vinnslu greinar um ferð um bílferð yfir Fagradal snjóaveturinn 1951 féll niður mynd af Stefáni Guttormssyni, sem var meðal þeirra sem voru í ferðinni. Stefán var lengi meðal mestu bílaútgerðarmönnum á Austurlandi, hóf rekstur sinn í lok seinna stríðs og hélt honum úti í rúmlega hálfa öld. MOLAR Dilkarnir færri en feitari hjá Sláturfélagi Vopnfirðinga Hóflega bjartsýn á að finna nýja kennara Áætla 1,5 milljarð í fjárfestingar í höfnum Efla þarf höfnina á Eskifirði í tengslum við uppbyggingu Eskju. Mynd: GG Djúpavogsskóli.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.