Austurglugginn - 11.11.2021, Page 3
Fréttir frá Fjarðaáli
Ábyrgðarmaður: Dagmar Ýr Stefánsdóttir
Þann 3. nóvember var því fagnað
hjá Fjarðaáli að fimm ár eru
síðan móðurfélagið, Alcoa Inc.,
skiptist upp í tvö fyrirtæki og til
urðu annars vegar Arconic og
hins vegar Alcoa Corporation.
Nú starfa um 14.000 manns
hjá Alcoa Corporation í tíu
löndum. Tímamótunum var
fagnað á alþjóðlegum fjarfundi
með forstjóra fyrirtækisins, Roy
Harvey og öðrum stjórnendum
þess þar sem kynnt var vinna sem
hefur verið í gangi hjá fyrirtækinu
til að skilgreina tilgang þess og
framtíðarsýn. Þá var einnig
bætt við einu gildi við þau þrjú
sem fyrirtækið hefur starfað
samkvæmt síðastliðin fimm ár.
Skilgreining á tilgangi Alcoa
hverfist um að horfa til framtíðar
en um leið fagna þeim stoðum sem
fyrirtækið byggir á og minnast þess
frumkvöðlastarfs sem átt hefur sér
stað hjá fyrirtækinu. Alcoa var eitt
fyrsta álfyrirtækið í heiminum þar
sem stofnandi þess, Charles Hall,
ásamt systur sinni, Juliu fann upp
rafgreiningarferlið sem enn er
notað í dag til þess að framleiða
ál. Á íslensku hljómar hinn nýi
tilgangur Alcoa svo: Nýtum
tækifærin til að ná árangri. Í
myndbandi sem gefið var út í tilefni
af þessari tilkynningu og má finna
á Youtube er nánar skýrt hvað býr
að baki þessum nýja tilgangi en í
því segir:
„Saga okkar hófst á hugmynd
um möguleika. Með nýsköpun
og atorkusemi komum við á fót
nýjum iðnaði og breyttum um leið
því hvernig við lifum, byggjum og
ferðumst.
Nú þurfum við að feta
ótroðnar slóðir og fullkomna
framleiðsluferlin. Við erum þó
enn drifin áfram af sama kraftinum.
Við stöndum fast á þeim grunni
sem skilgreinir okkur; heilindi,
umhyggja, árangur og hugrekki
eru okkar aðalsmerki.
Ásetningur okkar er hafinn
yfir allan vafa. Þegar við beislum
sköpunarkraftinn sem við búum
yfir getum við í sameiningu breytt
heiminum. Af því að við breytum
hugmyndum í nýsköpun. Hinu
ómögulega í raunveruleika. „Hvað
ef“ verður „þetta hér“.
Við erum Alcoa. Við nýtum
tækifærin til að ná árangri.“
Þá snýst framtíðarsýn fyrir-
tækisins um það að Alcoa láti til
sín taka í þeim áskorunum sem
heimurinn stendur frammi fyrir
og leggi sitt á vogarskálarnar til
að stuðla að breyttri heimsmynd
og vinna gegn hlýnun jarðar.
Framtíðarsýn Alcoa er: Leitum
nýrra leiða í áliðnaði með
sjálfbæra framtíð að leiðarljósi.
Nú þegar hefur fyrirtækið gefið út
að það ætlar að ná kolefnishlutleysi
fyrir árið 2050 og kynnt hafa verið
til sögunnar verkefni sem munu
eiga stærstan þátt í að ná því
markmiði. Þar á meðal er ný tækni
sem verið er að þróa í samstarfi við
Rio Tinto og kallast ElysisTM en
með henni verður framleiðsluferli
áls breytt þannig að í því felst engin
losun koltvísýrings. Í þessu felast
stórkostleg tækifæri.
Í þriðja lagi var á þessum
afmælisfundi kynnt til sögunnar
nýtt gildi fyrirtækisins. Fyrir
störfuðum við eftir gildunum
heilindi, árangur og umhyggja og
nú bætist hugrekki í hópinn. Í
því felst m.a. að fyrirtækið fagni
tækifærum til að enduruppgötva
eitthvað sem áður hefur verið gert
og ögra óbreyttu ástandi.
Mikið var um dýrðir í matsal
Fjarðaáls þennan dag, þar sem
boðið var upp á veislumat og
afmælisköku til að fagna afmælinu.
Þá tóku starfsmenn vel í skilaboðin
sem komu frá móðurfélaginu og
smellt var myndum af nokkrum
einstaklingum með nýju
einkunnarorðin í forgrunni
Afmælisfögnuður hjá Alcoa