Austurglugginn - 11.11.2021, Side 12
Ivermectin 12 mg (10 töflur),
Doxycycline 100 mg (10 töflur).
Andlitsgrímur, sóttvarnarspritt,
hanska, sprittklúta, hitamæli
og mæli sem sýnir púls og
súrefnismettun í blóði.
Smitum fækkaði um 97%
á örfáum vikum og í gær eða
fyrradag eða daginn þar áður
greindust 6 smit í öllu fylkinu.
Ætli Þórólfur viti af þessu?
En af hverju var Tómasi hent
út úr Biblíunni? Og eftir var
Páll populisti með sinn þurra
leiðindavaðal sem snéri allri
kenningu Jesú á hvolf. Tómas var
samt kannski sá eini sem skildi
einhyggju í miðausturlöndum. Og
svo fór hann bara. En Alexander
Miklikjáni Makedóníukonungur
fór líka til Indlands nokkur
hundruð árum áður, því þaðan
hafði honum borist spurn af viti
bornu fólki og vildi eiga við það
orð. Hann var nú ekki meiri kjáni
en það. En hvað getum við gert
með þennan heim? Allir í stríði
við allt og alla síðan sögur hófust.
Jú að vísu dúrar á milli. En þeir
drápu Gaddafi af því hann hafði
gert Libíu að velmektarríki og
vildi skera á hagsmunatengslin
við Frakka. Fannst ekki
Tómasarguðspjall í krukku
einhvers staðar í Norður-Afríku?
Í þessari krukku bjó vitundin um
heiðríkju hugans. Hún býr reyndar
alls staðar eins og vökvinn sem býr
jafnt í stofni og greinum jurtanna.
Sjálfhverfan með sín skynfæri og
heimasmíðuðu vitsmuni sér ekkert
nema sinn uppdiktaða innantóma
sannleik, sem hún veit innst
inni að er bara skrök og leggst
því í trúboð um raunveruleika
óraunveruleikans. Svo spyr hún,
hvurn á að drepa næst, því það
virðast vera hin eilífa spurning
eftir að hún drap Gvuð forðum
daga. Eða er það misminni? Er
ekki öllu haganlega fyrir komið
í þessari veröld? Engin ástæða til
að kvarta, tvíhyggjan í eilífu stríði
við sjálfa sig og einhyggjuna hvar
í hún sér sína sæng upp reidda.
Einhyggjan bíður í sinni krukku,
ómeðvituð um eyðimörkina, sér
bara eigin óendanleika.
En þá vaknar spurningin um
hvað gerðist eiginlega í Evrópu
frá miðöldum þegar löngu var búið
að afgreiða Tómas? Jú, kirkjan gaf
Evrópubúum leyfi til að taka land
hinna heiðnu eignarnámi. Kóngar
og drottningar grátbáðu sæfara
að sækja sér auðævi svo halda
mætti áfram með tvöþúsundára
stríðið. Á augnabliki hafði evrópa
yfirtekið jarðkúluna, drepið þá sem
þurfti að drepa, sett afgang í kvíar,
rænt ævintýralegum auðæfum.
Og stríðið hélt áfram. Svo kom
Schengen. Tómas var útmálaður
trúlaus af öfundarmönnum. En
trúleysið var hans styrkur, hann
vildi kanna, vita og skilja. Og
ímyndaðu þér, Tómasi hent, en
svo kemur einhver Frakki og
segir: „ég hugsa og þess vegna er
ég til.“ Allir æpa af fögnuði. Þetta
er vestræn heimspeki. Fabúla.
Fullkomlega rökrétt rugl. Leggst
nokkurnveginn að jöfnu við t.d.
„ég gef kettinum að éta og þess
vegna anda ég.“ Eftir Descartes
hófust vísindaiðkanir á þessum
helmingi jarðarinnar. Síðan hefur
allt verið gott.
„Fólk á að hafa sitt að segja um nærumhverfið“
Mikill áhugi á nýjum íbúasamtökum Djúpavogs og nærsveita
„Það er fjöldi fólks sem vill vita
miklu meira um bæði hvað er að
gerast og hvað muni gerast,“ segir
Ester Sigurðardóttir, formaður ný-
stofnaðra Íbúasamtaka Djúpavogs
og nærsveita.
Sú samtök voru formlega stofnuð í
september síðastliðinum og miðað
við fjölmenni á stofnfundinum var
ekki vanþörf á slíkum samtökum á
svæðinu. Enginn íbúafundur hefur
verið haldinn hér síðan Djúpivogur
sameinaðist öðrum sveitarfélögum
undir hatti Múlaþings fyrir rúmu
ári síðan.
Markmiðin skýr
Ester segir ekkert eitt sérstaklega
brenna á fólki á þessum slóðunum.
Þetta snúist meira um að fá samtal
og reglulegar upplýsingar bæði frá
heimastjórn Djúpavogs en ekki
síður frá sveitarstjórnarmönnum
frá Múlaþingi. Samtökin hafa þegar
óskað eftir slíkum fundi og segist
Ester vona að af slíkum fundi geti
orðið innan tíðar síðar í nóvember
eða desember.
Markmið samtakanna er fyrst og
fremst að vera samstarfsvettvangur
íbúa og félagasamtaka, vinna að
framfara og hagsmunamálum íbúa
á svæðinu, hlúa að allri þjónustu og
byggja upp samstarf við sveitar- og
heimastjórn.
Samfélagsmiðlar ekki
alltaf hentugir
Ester bendir á að það geti verið flókið
fyrir ýmist fólk að koma skoðunum
sínum á framfæri annars staðar en í
hópum á borð við íbúasamtökum.
„Það er dálítið þannig að þó
boðleiðirnar ættu að vera stuttar á
svona litlum stað þá er raunin oft
önnur og batnaði ekki þegar kjörin
sveitarstjórnin situr öll annars staðar.
Margir hér eru forvitnir um hvað
þeir sem ráða sjá fyrir sér fyrir
bæinn hér og svæðið í heild sinni og
þátttakan á stofnfundinum sannar
það.“
„Okkur sem að þessu standa
þykir Facebook eða slíkir miðlar
ekki sérstaklega hentugir fyrir svona
nokkuð. Það ríkir stundum feimni í
litlu samfélagi við að tjá sig um sum
mál er falla undir stjórn á svæðinu
þó það sé alls ekki algilt. Oft er eldra
fólkið sérstaklega feimið að tjá sig
undir nafni og það út af slíku sem
samfélagsmiðlar henta illa.“
„Við settum til dæmis fljótlega
upp svona ábendingarkassa í
kjörbúðinni hér og þar gefst fólki
kostur á að tjá sig um stjórn mála
og það sem betur má fara án þess
að geta nafns og kassinn sá verið
töluvert notaður hingað til.“
Erlendir íbúar stundum
útundan
Fyrir utan eldra fólk sem kannski
kann ekki við gagnrýna hlutina
opinberlega þá segir Ester að
erlendir íbúar á svæðinu eigi
stundum ekki svo auðvelt með að
nálgast upplýsingar er þau varði.
„Þar líka má sveitarstjórnin gera
betur. Það alltaf eitt og annað sem
ætti að liggja ljóst fyrir en getur
reynst flókið að nálgast upplýsingar
um þegar þarf.“
„Í stuttu máli má segja að okkur
langi öll til að fá breiðari vitneskju
frá þeim sem stjórna hver sýnin er á
bæinn til lengri tíma litið. Hvað er
að fara að gerast innan tíðar og hver
eru sýn manna lengra fram í tímann
varðandi okkur hér á þessu svæði.“
AE
1041 0966
UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA
www.heradsprent.is
Björn Kristjánsson
Lokaorð
Tvöþúsundárastríðið
Tómas fór til Indlands. Já - það
voru fréttir um Uttar Pradesh
fylki á Indlandi hvar búa 200
milljónir. Best að ræna þessu af
fésbók. Þar greindust allt að 30
þúsund veirusmit á dag og hvað
gerðu Indverjar? Meðhöndluðu
smitaða strax með eftirfarandi
pakka: Paracetamol, c vítamíni,
fjölvítamíni, zinci, d3 vítamíni,
Heimamenn á Djúpavogi sýndu stofnun
íbúasamtaka mikinn áhuga. Mynd: Íris
Birgisdóttir