Fréttablaðið - 25.10.2022, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 25.10.2022, Blaðsíða 14
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654. Hlutdeildarlánum er ætlað að aðstoða fyrstu kaup- endur og þá sem ekki hafa átt fasteign síðastliðin fimm ár. Lánin eru fyrir þá sem hafa ekki haft tækifæri til að safna nægu eigin fé til að eignast fyrstu fasteign. Hlutdeildarlán HMS komu til sög- unnar í nóvember 2020 og fyrsta úthlutun var í desember sama ár. „Frá upphafi höfum við móttekið tæplega 1.100 umsóknir og höfum samþykkt 650 af þeim,“ segir Einar Georgsson, sérfræðingur hjá HMS, þegar hann var spurður um hlut- deildarlánin. Úrræðið er háð þeim skilyrðum að umsækjendur þurfa að vera undir ákveðnum tekju- mörkum, standast greiðslumat og uppfylla önnur skilyrði lánareglna HMS. „Í dag hafa 414 heimili, sem telja um 763 einstaklinga, notið aðstoðar okkar við að eignast sína fyrstu eign, sem þau hefðu ekki átt kost á að öðru leyti og væntum við þess að um 450 heimili hafi nýtt sér úrræðið fyrir áramót. Þau heimili telja þá um 830 einstakl- inga sem til gamans má geta að er svipaður fjöldi og býr í Grundar- firði,“ segir Einar enn fremur. „Samtals höfum við aðstoðað 177 fjölskyldur við að eignast fasteign á höfuðborgarsvæðinu og 237 á öðrum svæðum. Flest lán eru í Reykjavík, samtals 122, þá eru 99 lán í Reykjanesbæ og 52 á Akureyri. Áhugavert er að um 76% af lántakendum eru undir 35 ára Margir hafa nýtt sér hlutdeildarlán Einar Georgs- son, sér- fræðingur hjá HMS, segir að 414 heimili hafi nú þegar fengið hlutdeildarlán. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR þannig að hlutdeildarlán eru að gagnast ungu fólki við að eignast sína fyrstu eign. Góð leið til að eignast íbúð Í okkar huga eru hlutdeildarlán góð leið til að aðstoða aðila sem hafa greiðslugetu en ná ekki að safna eigin fé til að komast á hús- næðismarkað. Hins vegar er lítið framboð eigna í augnablikinu og verðhækkanir undanfarið hafa valdið því að hægt hefur á úrræðinu. Eins og staðan er í dag er talsvert af íbúðum í byggingu og væntum við þess að úrræðið nái sér á strik með auknu framboði á næstu misserum,“ greinir hann frá. „Umsóknartímabil eru sex sinn- um á ári og reynum við að hafa opið fyrir umsókn annan hvern mánuð og nota næsta mánuð á eftir til að fullvinna umsóknir og svara umsækjendum. Hægt er að sækja um hvort sem fólk er komið með samþykkt kauptilboð eða ekki en þá er hægt að fá lánsvilyrði sem gildir í þrjá mánuði.“ Einar segir að almennt þurfi fyrstu kaupendur að hafa safnað eigi minna en 15% af kaupverði en hvað hlutdeildarlánin varðar er krafa um að umsækjendur eigi að lágmarki 5% umfram skuldir. Þá er að öllu jöfnu lánað þannig að íbúðalán nemur 75% af kaupverði, hlutdeildarlán er 20% og svo koma 5% frá kaupendum,“ segir hann. Hlutdeildarlán fyrir nýjar eignir Þegar Einar er spurður hvort hægt sé að fá hlutdeildarlán fyrir allar íbúðir og alls staðar á landinu, svarar hann: „Já, allar nýja eignir óháð staðsetningu geta fallið undir skilyrði hlutdeildarlána, í reglugerð um hlutdeildarlán er sú krafa að þær íbúðir er falla undir úrræðið séu nýjar og uppfylli ákveðin skilyrði um stærðar- og verðmörk sem HMS þarf að sam- þykkja. Með þessu er meðal ann- ars verið að horfa til þess að við- skiptavinir okkar sem fjármagna íbúðakaup með hlutdeildarláni geti búið í eigninni fyrstu árin án þess að hafa áhyggjur af viðhaldi og kostnaði samfara því. Einar er einnig spurður hvernig hlutdeildarlánin séu öðruvísi en önnur lán og hvernig vextir séu á þeim: „Þessi lán eru sérstök að því leyti að þú greiðir ekki mánaðar- legar af borganir og þau eru hvorki með vexti né verðbætur heldur fylgja verðmæti eignarinnar og eru endurgreidd við sölu. Þannig að ef lánið er 20% af kaupverði þá er uppgreiðsluverðmæti 20% af sölu- verði hvort sem það hefur hækkað, lækkað eða staðið í stað. Það er ekki hægt að flytja þessi lán með sér á aðra eign,“ útskýrir hann. Einar segir að starfsfólk HMS hafi fundið fyrir þakklæti hjá við- skiptavinum vegna hlutdeildar- lánanna. „Fólk fær möguleika á að eignast fasteign og það er alveg ljóst að án hlutdeildarlána væru margir fastir á leigumarkaði eða í foreldrahúsum.“ HMS hefur einnig annars konar lánakosti. Einar segir að HMS hafi upp á að bjóða talsvert af verk- færum til að aðstoða lántakendur við að eignast eigið húsnæði. Önnur lánaúrræði „Við erum með almenn húsnæðis- lán vegna kaupa á fasteign til eigin nota þar sem veðhlutfall getur verið allt að 80% af kaupverði. Við erum með endurbótalán til að aðstoða við nauðsynlegt viðhald og endurbætur á heimili. Einn- ig erum við með nýbyggingalán vegna byggingar á eign til eigin nota eða kaupa á nýbyggingu, þar sem lánað er í tvennu lagi í takt við framkvæmdir. Lánin eru veitt óháð staðsetningu húsnæðis,“ útskýrir hann. „Landsbyggðarlánin okkar eru ætluð til fjármögnunar á byggingu hagkvæmra íbúða á landsbyggð- inni, með það að markmiði að tryggja fólki aðgang að fjármagni til að byggja eigin húsnæði óháð staðsetningu. Hægt er að fá lánin greidd út á framkvæmdatíma. Einnig erum við með sér þarfa- lán sem eru aukalán sem veitt eru einstaklingum sem hafa skerta starfsorku, eru með fötlun eða hreyfihömlun til að gera breyt- ingar á íbúðarhúsnæði sem nauð- synlegar eru vegna sérþarfa þeirra. Lánin eru einnig veitt til kaupa eða byggingar á húsnæði sem er dýrara en ella vegna sérþarfa.“ n Starfsmenn HMS aðstoða fólk með lánaumsóknir. HMS er í Borgartúni 21. Einnig er hægt að kynna sér lánin á vefsíðunni hms.is Þessi lán eru sér- stök að því leyti að þú greiðir ekki mánaðar- legar afborganir og þau eru hvorki með vexti né verð- bætur heldur fylgja verðmæti eignar- innar og eru endur- greidd við sölu. 2 kynningarblað 25. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFYRSTA HEIMILIÐ HLUTDEILDARLÁN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.