Fréttablaðið - 25.10.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 25.10.2022, Blaðsíða 32
Fagmenn og starfsfólk með mikla reynslu vinnur hjá Flügger þar sem viðskipta- vinir geta valið á milli rúm- lega 40.000 lita þegar kemur að því að mála heimilið og hafa miklar tækniframfarir orðið í framleiðslu á máln- ingu. Fyrir utan málninguna fæst í versluninni meðal annars litað spartl og ný veggfóðurslína. „Hjá Flügger fæst breitt úrval fyrir fólk sem hefur hug á að fara í máln- ingarvinnu og við erum með allt í málningarverkefni enda er slagorð okkar „Fyrir fólk í framkvæmdum“ og við erum þekkt fyrir gæðavöru á góðu verði,“ segir Elín Ólafs- dóttir, sölu- og mannauðsstjóri hjá Flügger. „Hjá Flügger starfa bæði fag- menn og fólk með mikla reynslu sem getur leiðbeint viðskipta- vinum og þá skiptir ekki máli hvað þeir eru fara að gera innan- eða utanhúss. Við fáum mis- munandi fyrirspurnir á hverjum einasta degi og við erum með allar lausnirnar, hvort sem fólk ætlar til dæmis að mála vegg eða spartla. Við erum með góðar upplýsingar á vefsíðunni okkar og er verslunin við Stórhöfða 44 opin frá sjö á morgnana til 19 á kvöldin alla daga vikunnar. Það er mikilvægt þegar fólk er á fullu og vantar kannski meiri málningu, málningarlím- band eða pensil að geta þá farið í búðina.“ Elín segir að 75% af vörunum hjá Flügger séu umhverfisvæn og með umhverfisvænum merkingum. „Þetta skiptir miklu máli varðandi loftgæði og við erum afar stolt af að bjóða upp á svona umhverfisvænar vörur. Þetta er orðin meiri krafa og við sjáum það til dæmis í útboðum á stærri byggingarframkvæmdum og þar erum við mjög sterk. Við erum auk þess stolt af að sinna samfélagslegri ábyrgð og það gerum við í gegnum Andelin- verkefnið okkar. Þar erum við í samstarfi við fjölmörg félög og hagsmunasamtök þar sem fólk getur komið til okkar og valið sér félög og hagsmunasamtök til að styrkja en 5% af kaupum við- skiptavinarins fer til dæmis til ákveðins styrktarfélags sem hann velur og viðskiptavinurinn fær svo afslátt.“ Rúmlega 40.000 litir Elín segir að málning sé ekki bara málning og að þetta sé ótrúlega magnaður heimur og að kosturinn við að mála sé að þetta sé ódýrasta andlitslyfting sem hægt er að gera fyrir heimili. „Hvítt er ekki einu sinni bara hvítt og við aðstoðum fólk varðandi það hvað þarf í verkið og hvað þarf að gera. Við bjóðum upp á þúsundir lita: nánar tiltekið yfir 40.000 liti,“ segir Elín. En það er ekki einungis máln- ingarlitur sem þarf að velja þegar mála á heimilið heldur þarf að huga að fleiru. Hún talar um hver sé tilgangurinn með rýminu sem á að mála og hvort fólk vilji slaka þar á eða skapa stemningu. „Litir eru frábær leið til að skapa stemningu. Það getur verið misjafnt á milli manna hvernig fólk upplifir litina og mikilvægasti ráðgjafinn er í raun og veru tilfinning við- komandi fyrir rýminu sem á að fara að mála. Það þarf til dæmis að spá í hvaða aðrir litir eru í rýminu, hvernig gólfefnið er og hvernig lýsingin er þar inni.“ Hvað með litatískuna? „Það er mikil tíska í litum. Það er ekki langt síðan hvítt og grátt var vinsælast en núna er fólk farið að velja meira aðra liti og mála til dæmis loft og veggi í sama lit. Við sjáum að það er farið að velja dekkri liti í svefnherbergi; á sumrin er bjart allan sólarhring- inn og það veitir meiri slökun að vera með dekkri liti bæði á lofti og veggjum. Þetta er annars smekks- atriði. Þá eru jarðlitir í tísku núna – grænir og brúnir – og svo einnig bláir og bleikir pastellitir. Þá eru gulir tónar með. Þetta var vinsælt á árum áður en er að koma aftur.“ Alveg mött Miklar tækniframfarir hafa orðið í framleiðslu á málningu. „Það eru mismunandi gljástig á málningu og það eru mismunandi bindiefni í málningu og þetta eru hlutir sem starfsfólk Flügger er sér- fræðingar í og getur aðstoðað við- skiptavinina við að finna út úr. Við erum til dæmis með mismunandi tegundir af veggjamálningu. Áður fyrr þurfti fólk að velja mjög hátt gljástig og gljástig þýðir hversu mikið birtan endurkastast af veggnum. Það þurfti alltaf að vera hátt gljástig til þess að geta þrifið. Í dag seljum við til dæmis málningu sem kallast DEKSO 1 sem er alveg mött en hún er samt þrifheldin. Auk þess er hægt að mála með henni bæði loft og veggi af því að hún er mött og endurkast er lítið sem ekkert. Ef það eru til dæmis misfellur í veggjum þá verða þær ekki eins sýnilegar þar sem það er lítill sem enginn gljái. Þetta breytir líka upplifuninni á litnum sem verður mýkri og þægilegri og litirnir verða ekki eins áhrifa- miklir þegar þeir eru mattari. Það er meira áreiti í litum sem í er meiri glans. Þessari DEKSO 1-málningu fylgir líka mikill vinnusparn- aður þar sem loft og veggir eru þá gjarnan málaðir í sömu litunum þannig að það þarf ekki að skipta um málningu og teipa við loft heldur mála alla fletina með sömu málningarrúllunni.“ Sumt fólk vill þó meira gljástig og hjá Flügger fæst úrval af slíkri málningu. Veggfóður og litað spartl Hjá Flügger fæst meðal annars ný veggfóðurslína og litað spartl sem hægt er að setja á gólf, veggi og húsgögn. Elín segir að spartlið sé tilvalið þegar á að fríska upp á umhverfið og að margir arki- tektar hafi valið það. „Það verða engir tveir veggir eins með lituðu spartli.“ Veggfóðurslínan og litaða spartlið er frá dótturfyrirtæki Flügger, DETALE CPH. „Þetta eru ótrúlega skemmtilegar vörur sem hafa vakið mikla athygli og er hægt að skoða úrvalið og fá leiðbeining- ar á heimasíðunni. Veggfóðrið sem við erum að selja er mjög vandað og við reynum að hafa hönnunina sígilda þannig að þetta standist tímans tönn. Okkur finnst það vera mikilvægt.“ Hjá Flügger fæst notendavænt spartl til að gera við sprungur í veggjum og verkfæri í þá vinnu. „Stundum er fólk að setja upp veggi og þá þarf að ganga vel frá því og þá þarf að grunna og kítta sem og til dæmis kaupa vörslupappír til að verja gólfið og framlengjanleg sköft til að geta málað loftið.“ Ýmiss konar upplýsingar og ráð er að finna á heimasíðu Flügger, f lugger.is „Við gefum út tímarit með ráðgjöf, erum með fullt af innblæstri fyrir framkvæmdir á síðunni okkar og við erum sterk á samfélagsmiðlum. Við mælum með að fólk skoði þetta allt svolítið og pæli í þessu og komi til okkar í ráðgjöf og versli allt á staðnum sem þarf og fari svo heim og græi þetta.“ n Það er mikil tíska í litum. Það er ekki langt síðan hvítt og grátt var vinsælast en núna er fólk farið að velja meira aðra liti og mála til dæmis loft og veggi í sama lit. Við sjáum að það er farið að velja dekkri liti í svefnher- bergi: á sumrin er bjart allan sólarhringinn og það veitir meiri slökun að vera með dekkri liti bæði á lofti og veggjum. Fagmenn Flügger gefa góð ráð um litavalið Elín Ólafsdóttir segir að það séu ótrúlega margir litir að velja úr hjá Flügger. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 12 kynningarblað 25. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFYRSTA HEIMILIÐ MÁLNING

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.