Fréttablaðið - 25.10.2022, Blaðsíða 48
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
„Verður 82 ekki örugglega áfram
82, góurinn?“ – ég skildi ekki alveg
spurninguna. Svo kom það. „Heims
um ból! Nei, ég held að hann verði
númer 35.“ „Það er góð tala, eruð
þið nokkuð búin að breyta jólunum
frekar?“ var svarað og spurt um
hæl.
Það eru alltaf tímamót í menn-
ingarsögu landsins þegar gefin er út
sálmabók kirkjunnar. Ný sálmabók
verður afhent biskupi Íslands og
tekin í almenna notkun sunnudag-
inn 13. nóvember. Verk sem beðið
hefur verið eftir.
Í útgáfunni er úrval nýrra
tónverka eftir fremstu tónskáld
landsins – úrval texta og sálma eftir
ljóðskáld landsins. Sálmabókin
geymir menningararf höfuðskálda
þjóðarinnar, sálma sem hafa lifað
með þjóðinni í aldanna rás. Sálma
sem sungnir hafa verið í harm-
óníum – hjartfagurt, hver með sínu
nefi. Sungnir yfir sorg sveitarinnar,
ástinni, upprisu ljóssins og ljóstíru
jólanna. Þjóðsungnir og einsungnir
– yfir harmi allra og yfir þeim sem
enginn vildi muna eftir. Sálma-
söngur kirkjunnar er bergmál
sögunnar – hann endurómar sálar-
líf þjóðar gegnum aldir og daga,
kynslóð af kynslóð.
Söngur fólksins í kirkjunni er
sveitasættir, sagði við mig öld-
ungur um daginn. Sumir splæsa
í setningar sem geyma allt sem
skiptir máli.
Samantekið er verkið lýsandi
fyrir mikilvægt hlutverk og framlag
þjóðkirkjunnar til menningarsögu
landsins – gjöf til menningarfram-
tíðar þjóðarinnar.
„En er Hallgrímur ekki örugglega
síðastur?“ – „Jú, Gefðu að móður-
málið mitt er síðasti sálmurinn eins
og í fyrri bók, sálmur 795.“ „Það er
réttur endir,“ var aftur svarað um
hæl.
Meðan þín náð, lætur vort láð,
lýði og byggðum halda. n
Gefðu að
móðurmálið mitt
Péturs Georgs
Markan
n Bakþankar
G E R I Ð G Æ Ð A - O G V E R Ð S A M A N B U R Ð
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUR OG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVAL AF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
ENGJATEIGI 17-19,
REYKJAVÍK
S:581 2233
BALDURSNESI 6,
AKUREYRI
S: 461 1150
OPIÐ:
VIRKA DAGA.......KL. 10:00 -18:00
LAUGARDAGA....KL. 12:00 - 16:00
UMBOÐSAÐILAR:
HÚSGAGNAVAL, HÖFN Í HF.
BARA SNILLD, EGILSSTAÐIR
Svefn heilsa&
VERSLANIR:
Stoltur styrktaraðili
Bleiku Slaufunnar í 16 ár