Fréttamolinn : óháð fréttablað - 13.11.1985, Page 3

Fréttamolinn : óháð fréttablað - 13.11.1985, Page 3
Fréttamolinn Fréttamolinn Símar: 4144 & 4233. Heimasími: 4434 HVERGERÐINGAR - SUNNLENDINGAR Hef fengið mikið úrval af ljósum og kösturum. Verslið við fa gm anninn Kynnið ykkur jólatilboðin á: Myndböndum, sjónvörpum og hljómflutningstækjum. Hrafnhildur skrifar um sund Nú í haust hefur fjölgað á sundáefingum og koma inn nýir meðlimir á hverja æfingu. Fram undir þetta hafa nýliðar mætt á mánudögum miðvikudögum og föstudögum kl. 17.30 og byrjað þrek og úthaldsþjálfun með skokki og léttum æfingum, en síðan í sund og þar hafa þau synt í u.þ.b. 30 mínútur. Hefur þetta verið glaðlegur og áhugasamur hópur sem gaman er að starfa með. Fyrsta sundmót keppnisársins hófst 13. október með því að KR hélt sitt árlega félagsmót í Sund- höll Hafnarfjarðar. Þar sem ég reyni að velja yngra liðinu skemmtilegri mótin tók ég þau eldri og reyndari á þetta mót. Til verðlauna voru auk hin hefð- bundnu 1., 2. og 3. verðlauna veglegur gripur, Flugfreyjubik- arinn fyrir 100 m skriðsund kvenna sem gefinn var af Rögn- valdi Sigurjónssyni til minningar um systur sína Báru Sigurjóns- dóttur fyrstu flugfreyju íslend- inga sem fórst í flugslysi norður í Héðinsfirði 1947. Einnig voru gefin verðlaun fyrir flesta sigra í karla og kvennagreinum. Þar fengu bæði Magnús og Bryndís fullt hús, eða þrjá sigra og Bryndís fékk hinn veglega Flugfreyjubikar. Þetta er í annað sinn sem hún vinnur þennan gnp- Tímar keppenda Þórs í þessu móti eru: 200 m. skriilsund kvenna: 1. BryndísÓl...............2:15,8 4. Hugrún Ó1...............2:17,2 200 m. skriðsund karla: 1. MagnúsÓl................2:05,0 100 m. baksund kvenna: 5. HugrúnÓl..................1:18,5 100 m. flugsund kvenna: 1. Bryndís Ól................1:11,0 lOOm. flugsund karla: 1. MagnúsM. Ól ........... 1:03,3 100 m skriðsunbd kvenna: 1. BryndísÓl.................1:00,3 Flugfreyjubikarinn 5. HugrúnÓl..................1:06,1 100 m skriðsund karla: 1. MagnúsM. Ó1.............. 54,8 27. október var haldið á Sel- fossi unglingamót HSK í sundi sem er fyrir 14 ára og yngri. Þar voru fleiri keppendur frá Þór en á KR mótinu. Stigin féllu þannig: Félag Kepp SkránStig Sæti Selfoss 33 66 112 1 UFHÖ 16 38 41 3 Þór 9 24 71 2 Hekla 8 10 12 Bisk. 3 5 10 Hrun.hr. 6 11 15 Skeið 2 5 14 Keppt var um bikar sem Haf- steinn Þórisson gaf og fékk hann sá keppandi sem mest hafði bætt sig í grein frá því á síðasta unglingamóti HSK. Hreppti Guðný Ingvarsdóttir Selfossi þann grip fyrir að bælta sig um 10 sekúndur í 50 m bringusundi meyja (12 ára og yngri). Þeir sem kepptu voru: Gísli Böðvarsson ‘71 Eggert S. Stefánsson ’72 Arnar F. Ólafsson ’73 Einar Ö. Davíðsson ’73 Hugrún Ólafsdóttir ’71 Jóhanna Kr. Jakobsdóttir ’74 Harpa Böðvarsdóttir ’75 Guðbjörg Heimisdóttir '16. Fjölbreytt og aukið úrval gjafavöru. Jólabækurnar eru á leiðinni og sumar eru komnar. Kaupið jólagjafirnar í tíma. Til sölu: Dodge Aspen S:E 6 cyl., sjálfskiptur ekinn ca. 70.000 km. Sami eigandi frá byrjun, má ræða skilmála, skipti möguleg, verð 290.000. Upplýsing- ar í síma 3702 og 1885 á kvöldin. Hljómsveitin Ópera Flytur vandaða danstónlist við allra hæfi. Umboð: Heimir, sími 99-3660.

x

Fréttamolinn : óháð fréttablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttamolinn : óháð fréttablað
https://timarit.is/publication/1719

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.