Fréttamolinn : óháð fréttablað - 13.11.1985, Qupperneq 8
Vík í Mýrdal
Glerharðar
snj ómokstursreglur
Góð síldveiði hefur verið
undanfarinn hálfan mánuð og
hefur hún veiðst fyrir austan
land og á Austfjörðum. Langt
hefur því verið að sækja silfrið,
en bátarnir hafa verið fljótir að
fylla sig og því hafa hlutirnir
gengið vel fyrir sig. Það má
eiginlega segja að undanfarinn
hálfan mánuð hafi verið fastar
áætlunarferðir Þorlákshöfn-
Austfirðir-Þorlákshöfn, hjá öll-
um nótabátunum. Síldin hefur
verið mjög stór og falleg, allt að
75% í fyrsta stærðarflokk sem er
mjög gott.
Söltun er að mestu lokið og
lýkur væntanlega í öllum stöðv-
unum nú eftir helgina. Veðrátt-
an í október og það að síldin
hefur svo til eingöngu veiðst
fyrir austan hefur orsakað það
að Þorlákshöfn fer með veruleg-
an skertan hlut út úr síldar-
söltununni, þó svo ræst hafi úr
að undanförnu. Það sem eftir
verður af afla verður fryst eftir
að söltun lýkur, en frysting er
þegar hafin hjá Meitlinum.
Einn nótabátur héðan úr Þor-
lákshöfn er búinn með sinn síld-
arkvóta, en það er Friðrik Sig-
urðsson ÁR 17, en hann kláraði
fyrir síðustu mánaðamót. Flest
allir hinna nótabátanna eiga eftir
um 100-200 tonn og eiga eftir
þetta eina til tvær veiðiferðir ef
vel gengur, en sumir eru nú í
sinni síðustu. Flestir þessara
báta fara á net eftir síld.
Tregt hefur verið í flest veiðar-
færi önnur en þau sem snúa að
síldveiðum, og fáir bátar að. Þó
fékk Dalaröstin tvo mjög góða
túra á snurvoðinni, samtals 55
tonn í báðum, og það á rétt
rúmri viku. Aflinn var að mestu
leiti koli.
Mjög lélegt hefur verið í
trollið, eiginlega hvergi bein að
fá. Þeir bátar sem róið hafa á
línu hafa verið að kroppa þetta
um 100 kg. á bala þegar gefið
hefur á sjó.
Fyrsta snjóhret vetrarins skall
á fyrirvaralaust dagana 3. og 4.
nóvember. Víða voru vegfar-
endur aðstoðaðir af liprum vega-
gerðarmönnum, en annarsstaðar
ekki. í Vík í Mýrdal hafnaði
Gylfi Júlíusson vegaverkstjóri
allri aðstoð við vegfarendur. Á
sunnudeginum urðu á annað
hundrað manns innilokaðir í
Vík. Flest af þessu fólki var
langt að komið. Má þar nefna
tvo langferðabíla, annarsvegar
áætlunarbíll sem var að koma
frá Höfn í Hornafirði og hinsveg-
ar hópferðarbíll sem var að
koma frá Kirkjubæjarklaustri.
Snjór hafði safnast í neðstu
brekkuna við Víkurskarð. Þess
var farið á leit við verkstjóra
vegagerðarinnar á staðnum að
hann léti ryðja snjó úr brekkunni
svo vegfarendur kæmust leiðar
sinnar. Því hafnaði hann alger-
lega á þeim forsendum að hann
ætti að starfa eftir ákveðnum
snjómokstursreglum og í þeim
fælist að ekki ætti að ryðja veg-
inn frá Vík nema virka daga...
Blm. innti Gylfa eftir því
hvort hann sæi ekki ástæðu til
þess að gera undantekningu frá
reglunum þar sem hér væri um
að ræða fyrsta snjóhret vetrarins
í Hveragerði er félagslíf með
miklum blóma sem endranær.
Nú á nýbyrjuðu leikári er margt
á prjónunum hjá leikfélaginu.
Nú er verið að vinna að svoköll-
uðu Kjartanskvöldi sem verður
haldið 16. nóv. n.k. kl. 21.00 í
Hótel Ljósbrá. Flutt verður efni
eftir Kjartan Ragnarsson, brot
úr leikritum, sögur o.fl. Um 40
manns taka þátt í sýningunni.
Samkoman mun síðan enda með
fjörugum dansleik. Miðapantan-
og margt fólk a ferðinni óviðbúið
ósköpunum, ásamt því væri hér
um að ræða smávægilegt snjó-
haft í einni brekku, en síðan var
greiðfært til Reykjavíkur.
Snjókoma og skafrenningur var
nánast enginn þennan dag og
lítil ástæða til að ætla að verkið
yrði ónýtt að morgni. Gylfi svar-
aði því einfaldlega til að hann
sæi enga ástæðu til að hvika frá
snjómokstursreglugerðinni
góðu.
Blm. hafði samband við Hjör-
leif Ólafsson hjá Vegaeftirliti
ríkisins í Reykjavík: „Ég hef
ekki kynnt mér þetta einstaka
atvik en það er rétt að snjó-
mokstur á að framkvæma á
ákveðnum moksturdögum sem
eru misjafnlega margir eftir því
hvar er á landinu.“ Þar sem blm.
hafði vitneskju fyrir því að snjór
hafði verið ruddur austur í Öræf-
um þennan sama dag, var Hjör-
leifur spurður sérstaklega hvort
það hefði ekki verið framkvæmt
í leyfisleysi?
„Að vísu mun það ekki vera
innan ramma reglugerðarinnar,
en túlka má hana á ýmsan máta
og einnig mun það vera misjafnt
hvort menn láta þessar mokst-
ursreglur taka gildi strax í fyrstu
snjóum, en það meta vegastjór-
Fyrirhugað er að frumsýna
leikverk á bilinu febrúar eða
mars 1986. Ekki er búið að taka
endanlega ákvörðun um hvaða
leikrit verður tekið fyrir. Grímu-
ball er aftur fyrirhugað á þrett-
ándanum, fyrir þau yngstu með
veglegri álfabrennu, einnig er
stefnt að útimarkaði fyrir næsta
sumar. Kabarett mun verða
arnir á hverjum stað fyrir sig.
Þeim er uppálagt að vinna eftir
þessari reglugerð sem miðar að
sparnaði, fjármagn til snjó-
moksturs er í algeru lágmarki og
við verðum að gera allt til þess
að spara þá fjármuni,“ sagði
Hjörleifur.
Á meðan vegfarendur létu fyr-
ir berast í Víkurskála blöstu
snjómoksturstækin við þeim fyr-
ir utan hús vegagerðarinnar.
Einhver starfsmaður (eða menn)
voru við störf, væntan-
lega í næturvinnu, þar sem veg-
hefill hafði augljóslega verið
gangsettur og bifreið merkt
Vegagerð ríkisins öslaði götur
staðarins, en ekki mátti renna
heflinum í brekkuna á sunnu-
degi, þá er næturvinna. Snjó-
mokstur hófst aftur á móti kl.
hálf sex á mánudagsmorgni. Ef
unnið er fyrir kl. átta á morgn-
anna hlýtur sú vinna að teljast
með næturvinnu, eða hvað?
Eftir svona atvik leiðir maður
ósjáifrátt hugann að því hvort
eðlileg og mannleg samskipti
manna í milli eigi í framtíðinni
að víkja fyrir botnlausu feni laga
og reglugerða, ásamt steinrunn-
um varðhundum skrifstofukerf-
isins, staðsettum víðsvegar um
landsbyggðina.
haldinn og þá væntanlega síðasta
vetrardag. í gagnfræðaskólanum
er hafin kennsla í leikrænni tján-
ingu og framsögn. Markmið
kennslunnar er að æfa nemendur
í framsögn og til að ná betra
valdi á hreyfingum. Kennd er
ein kennslustund á viku hjá
hverjum bekk. Kennari er Ingvi
Hrafn Hauksson. Hvergerðingar
eru að lokum hvattir til að mæta
vel, sér og öðrum til skemmtunar
og leikfélaginu til stuðnings..
Skipstjórar
Útgerðarmenn
Leikfélag Hveragerðis
ir verða í símum 4434-4455-4729.
Sýnið fyrirhyggju og pantið björgunar-
netið Markús hjá Björgunarsveitinni
Mannbjörg Þorlákshöfn, Björg Eyrar-
bakka og Dröfn Stokkseyri.
STYÐJUM
SJÓBJÖRGUNARSVEITIRNAR
Björgunarnetið Markús hf.
Sími 91-51465 box 13 Hafnarfirði
Sölumenn:
Mannbjörg: Smári Tómasson s. 3873
og Hjálmar Kristjánsson s. 3945.
Dröfn: Stefán M. Jónsson s. 3450.
Björg: Guðmundur Magnússon s. 3158
og Rúnar Eiríksson s. 3388.
Leikendur í Delerium Búbonis frá árinu 1983.
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★ ★
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★ ★
★★
★★
★★
★★
★★
★ ★
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★★
★lÁ
★★
★★
★Íá
★Ía
★ lA
★ lN
★Í
★ ^4
★ ^
★Í5
★^i
★^
★ ú
★l£