Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.11.2022, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 02.11.2022, Qupperneq 2
Landsmenn hvattir til að synda Ein af vinsælustu tillögunum í hverfiskosningu Breiðholts á vefsvæði Betri Reykjavíkur er að reisa styttu af Sverri Þór Sverrissyni, betur þekktum sem Sveppa. Skemmtikraftur- inn góðkunni segir hugmynd- ina furðulega, en á sama tíma skemmtilega. kristinnpall@frettabladid.is SAMFÉLAG „Það eru rosaleg tíðindi. Ég var búinn að sjá þessa hugmynd en ég hélt að þetta væru bara ein- hverjir krakkar að setja þetta inn til gamans. Ég hef séð margt vit- lausara,“ segir Sveppi í samtali við Fréttablaðið þegar hugmyndin er borin undir hann. „Mér finnst þessi hugmynd aðal- lega bara fyndin en ég veit ekki hvernig maður myndi taka því. Þetta er absúrd en er samt hugmynd á blaði og mér finnst öll svona vit- leysa skemmtileg. Það eru allt of fáar styttur í Reykjavík. Það er alltaf gaman að þeim,“ segir Sveppi glett- inn. „Ég yrði smá hræddur við að það væri komið trúðanef og gleraugu eða búið að henda eggjum í hana innan skamms, en það er bara hluti af stemningunni. Það væri kannski bara ágætt.“ Á tillöguvefnum fyrir Breiðholtið kemur í ljós að aðeins fimm hug- myndir hafa fengið jákvæðari við- brögð en tillagan um að fá „styttu af Sveppa Krull því hann ólst upp í Breiðholtinu“. Nú er boltinn í hönd- um Reykjavíkurborgar. „Steindi og Egill hafa oft talað um það í útvarpsþættinum á FM957 að reyna að fá styttu af Audda (Auðuni Blöndal) á Sauðárkróki. Það kæmi mér ekki á óvart ef þessi hugmynd væri afsprengi af þeirri hugmynd því þeir hafa oft talað um það í útvarpinu.“ Sveppi til í styttu ef borgin samþykkir vinsæla tillögu Sveppi ásamt föður sínum Sverri Friðþjófssyni sem Sveppi telur að eigi skilið sína eigin styttu í Efra-Breiðholtinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þetta er ekki eina tillagan um styttugerð á þessu ári. Það var meðal annars gerð tilraun til að fá styttu af Kanye West í Vesturbæn- um en Sveppi segist sjá húmorinn í hugmyndinni, fái hann símtal frá Reykjavíkurborg til að kanna áhuga af hans hálfu. „Algjörlega. Ég myndi nú vilja fá að sjá gerð styttunnar svo ég lendi ekki í því sama og Cristiano Ronaldo lenti í með sína styttu. Svo er góð spurning hvar hún ætti að vera,“ segir Sveppi sem segir aðeins eitt póstnúmer koma til greina. „Styttan þyrfti að vera í 109. Þetta yrði í Bökkunum,“ segir Sveppi. n Fagráð tekur til skoðunar Eiríkur Búi Halldórsson, verk- efnastjóri Hverfisins míns, segir að næsta skref í ferlinu sé kosning á næsta ári um til- lögurnar sem bárust að þessu sinni. Fimmtán vinsælustu hugmyndirnar sem standast kröfur borgarinnar og tíu til- lögur sem íbúaráð hverfisins velur komast á næsta stig en þá er búið að fara yfir ýmis álita- mál, meðal annars sem varðar kostnað hugmyndanna. n N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði Komið og skoðið úrvalið benediktarnar@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Mengun af mann- gerðum efnum í og við Þingvalla- vatn er til rannsóknar. Eydís Salóme Eiríksdóttir, jarð- efnafræðingur hjá Hafrannsókna- stofnum, segir að um sé að ræða sér- verkefni fyrir þjóðgarðinn, þar sem sýni eru tekin úr Silfru til að mæla alls kyns manngerð efni sem gætu valdið mengun í Þingvallavatni. „Ef það myndi mælast hærri styrkur af manngerðum efnum, þá væri það eitthvað sem er að bætast við vegna köfunar á svæðinu,“ segir Eydís. Til stendur að rannsaka áhrif af köfun í Silfru. „Það er mikilvægt fyrir þjóð- garðinn að hafa mælingar sem sýna hvort við finnum þessi manngerðu efni í Silfru. Það er erfitt að halda því fram að manngerðu efnin séu meng- andi, án þess að hafa rannsóknir og mælingar á bak við það.“ n Kanna mengun frá köfun í Silfru Hægt er að kafa í Silfru allt árið um kring óháð veðri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Syndum, landsátak í sundi, hófst með formlegum hætti í Laugardalslaug í gær og eins og sjá má var mikil stemning í lauginni. Andri Stefánsson, framkvæmda- stjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, og Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands, fluttu ávörp í góðu haustveðri á sundlaugarbakkanum og var þar fólk hvatt til að nota sund sem sína daglegu hreyfingu. Í átakinu felst að þátttakendur skrái þá vegalengd sem synt er og markmiðið er að synda saman hringinn í kringum landið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK birnadrofn@frettabladid.is KVIKMYNDIR Íslenska kvikmynd- in Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar hlaut kvikmynda- verðlaun Norðurlandaráðs í gær. Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, afhenti Valdimar verð- launin í Helsinki, höfuðborg Finn- lands, en þetta er í fjórða sinn sem íslensk kvikmynd hlýtur verðlaunin. Dýrið hefur sópað til sín verðlaun- um og hlaut myndin til að mynda tólf verðlaun á Eddunni. Hilmir Snær Guðnason fer með aðalhlutverk í myndinni ásamt Noomi Rapace og segir hann verð- launin mikla lyftistöng fyrir mynd- ina. „Og fyrir Íslendinga, þetta er mikill heiður fyrir íslenska kvik- myndagerð,“ segir hann. „Það er dásamlegt að fá að taka þátt í verkefni eins og þessu,“ bætir Hilmir Snær við. n Dýrið hlaut verðlaunin ragnarjon@frettabladid.is DANMÖRK Samkvæmt útgönguspám í þingkosningunum í Danmörku heldur enginn vinstri eða hægri flokkur hreinum meirihluta. Virðist því vera að Lars Løkke, fyrrverandi forsætisráðherra, og nýr f lokkur hans Moderaterne séu komnir í lykilstöðu. Mette Fredriksen, núverandi for- sætisráðherra, og vinstri f lokkur hennar hljóta samkvæmt spám 80 þingmenn en hægri flokkar hljóta 79. Moderaterne næði 16 mönnum á þing. Athygli vekur að flokkurinn Radi- kale Venstre, sem knúði kosningarn- ar fram með vantrauststillögu sinni á Mette Fredriksen, missir meira en helming af fylgi sínu, fer úr 8,6 pró- sentum í 3,4 prósent, ef tölur halda. Niðurstöður lágu ekki fyrir þegar Fréttablaðið fór í prentun. n Løkke leikur lausum hala 2 Fréttir 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.