Fréttablaðið - 02.11.2022, Side 2
Landsmenn hvattir til að synda
Ein af vinsælustu tillögunum
í hverfiskosningu Breiðholts
á vefsvæði Betri Reykjavíkur
er að reisa styttu af Sverri Þór
Sverrissyni, betur þekktum
sem Sveppa. Skemmtikraftur-
inn góðkunni segir hugmynd-
ina furðulega, en á sama tíma
skemmtilega.
kristinnpall@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Það eru rosaleg tíðindi.
Ég var búinn að sjá þessa hugmynd
en ég hélt að þetta væru bara ein-
hverjir krakkar að setja þetta inn
til gamans. Ég hef séð margt vit-
lausara,“ segir Sveppi í samtali við
Fréttablaðið þegar hugmyndin er
borin undir hann.
„Mér finnst þessi hugmynd aðal-
lega bara fyndin en ég veit ekki
hvernig maður myndi taka því.
Þetta er absúrd en er samt hugmynd
á blaði og mér finnst öll svona vit-
leysa skemmtileg. Það eru allt of
fáar styttur í Reykjavík. Það er alltaf
gaman að þeim,“ segir Sveppi glett-
inn.
„Ég yrði smá hræddur við að það
væri komið trúðanef og gleraugu
eða búið að henda eggjum í hana
innan skamms, en það er bara hluti
af stemningunni. Það væri kannski
bara ágætt.“
Á tillöguvefnum fyrir Breiðholtið
kemur í ljós að aðeins fimm hug-
myndir hafa fengið jákvæðari við-
brögð en tillagan um að fá „styttu
af Sveppa Krull því hann ólst upp í
Breiðholtinu“. Nú er boltinn í hönd-
um Reykjavíkurborgar.
„Steindi og Egill hafa oft talað um
það í útvarpsþættinum á FM957 að
reyna að fá styttu af Audda (Auðuni
Blöndal) á Sauðárkróki. Það kæmi
mér ekki á óvart ef þessi hugmynd
væri afsprengi af þeirri hugmynd
því þeir hafa oft talað um það í
útvarpinu.“
Sveppi til í styttu ef borgin
samþykkir vinsæla tillögu
Sveppi ásamt föður sínum Sverri Friðþjófssyni sem Sveppi telur að eigi skilið
sína eigin styttu í Efra-Breiðholtinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þetta er ekki eina tillagan um
styttugerð á þessu ári. Það var
meðal annars gerð tilraun til að fá
styttu af Kanye West í Vesturbæn-
um en Sveppi segist sjá húmorinn
í hugmyndinni, fái hann símtal
frá Reykjavíkurborg til að kanna
áhuga af hans hálfu.
„Algjörlega. Ég myndi nú vilja
fá að sjá gerð styttunnar svo ég
lendi ekki í því sama og Cristiano
Ronaldo lenti í með sína styttu. Svo
er góð spurning hvar hún ætti að
vera,“ segir Sveppi sem segir aðeins
eitt póstnúmer koma til greina.
„Styttan þyrfti að vera í 109. Þetta
yrði í Bökkunum,“ segir Sveppi. n
Fagráð tekur til skoðunar
Eiríkur Búi Halldórsson, verk-
efnastjóri Hverfisins míns,
segir að næsta skref í ferlinu
sé kosning á næsta ári um til-
lögurnar sem bárust að þessu
sinni. Fimmtán vinsælustu
hugmyndirnar sem standast
kröfur borgarinnar og tíu til-
lögur sem íbúaráð hverfisins
velur komast á næsta stig en þá
er búið að fara yfir ýmis álita-
mál, meðal annars sem varðar
kostnað hugmyndanna. n
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
benediktarnar@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Mengun af mann-
gerðum efnum í og við Þingvalla-
vatn er til rannsóknar.
Eydís Salóme Eiríksdóttir, jarð-
efnafræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnum, segir að um sé að ræða sér-
verkefni fyrir þjóðgarðinn, þar sem
sýni eru tekin úr Silfru til að mæla
alls kyns manngerð efni sem gætu
valdið mengun í Þingvallavatni.
„Ef það myndi mælast hærri
styrkur af manngerðum efnum, þá
væri það eitthvað sem er að bætast
við vegna köfunar á svæðinu,“ segir
Eydís. Til stendur að rannsaka áhrif
af köfun í Silfru.
„Það er mikilvægt fyrir þjóð-
garðinn að hafa mælingar sem sýna
hvort við finnum þessi manngerðu
efni í Silfru. Það er erfitt að halda því
fram að manngerðu efnin séu meng-
andi, án þess að hafa rannsóknir og
mælingar á bak við það.“ n
Kanna mengun
frá köfun í Silfru
Hægt er að kafa í Silfru allt árið um
kring óháð veðri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Syndum, landsátak í sundi, hófst með formlegum hætti í Laugardalslaug í gær og eins og sjá má var mikil stemning í lauginni. Andri Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, og Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands, fluttu ávörp í góðu haustveðri á sundlaugarbakkanum
og var þar fólk hvatt til að nota sund sem sína daglegu hreyfingu. Í átakinu felst að þátttakendur skrái þá vegalengd sem synt er og markmiðið er að synda
saman hringinn í kringum landið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
birnadrofn@frettabladid.is
KVIKMYNDIR Íslenska kvikmynd-
in Dýrið í leikstjórn Valdimars
Jóhannssonar hlaut kvikmynda-
verðlaun Norðurlandaráðs í gær.
Sanna Marin, forsætisráðherra
Finnlands, afhenti Valdimar verð-
launin í Helsinki, höfuðborg Finn-
lands, en þetta er í fjórða sinn sem
íslensk kvikmynd hlýtur verðlaunin.
Dýrið hefur sópað til sín verðlaun-
um og hlaut myndin til að mynda
tólf verðlaun á Eddunni.
Hilmir Snær Guðnason fer með
aðalhlutverk í myndinni ásamt
Noomi Rapace og segir hann verð-
launin mikla lyftistöng fyrir mynd-
ina. „Og fyrir Íslendinga, þetta er
mikill heiður fyrir íslenska kvik-
myndagerð,“ segir hann.
„Það er dásamlegt að fá að taka
þátt í verkefni eins og þessu,“ bætir
Hilmir Snær við. n
Dýrið hlaut
verðlaunin
ragnarjon@frettabladid.is
DANMÖRK Samkvæmt útgönguspám
í þingkosningunum í Danmörku
heldur enginn vinstri eða hægri
flokkur hreinum meirihluta. Virðist
því vera að Lars Løkke, fyrrverandi
forsætisráðherra, og nýr f lokkur
hans Moderaterne séu komnir í
lykilstöðu.
Mette Fredriksen, núverandi for-
sætisráðherra, og vinstri f lokkur
hennar hljóta samkvæmt spám 80
þingmenn en hægri flokkar hljóta
79. Moderaterne næði 16 mönnum
á þing.
Athygli vekur að flokkurinn Radi-
kale Venstre, sem knúði kosningarn-
ar fram með vantrauststillögu sinni
á Mette Fredriksen, missir meira en
helming af fylgi sínu, fer úr 8,6 pró-
sentum í 3,4 prósent, ef tölur halda.
Niðurstöður lágu ekki fyrir þegar
Fréttablaðið fór í prentun. n
Løkke leikur
lausum hala
2 Fréttir 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ