Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 4
Nýir landsfundarfulltrúar eru
sagðir óbundnari af foringja
hollustu en hinir eldri. Bjarni
er talinn hafa forskot sem
sitjandi formaður. Hneykslis
mál kunni þó að spilla fyrir.
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Það er til marks um
spennuna í Sjálfstæðisf lokknum
þegar fjórir dagar eru í formanns
kosningu að landsfundarfulltrúar
Sjálfstæðisf lokksins vilja fæstir
upplýsa um opinbera afstöðu þegar
spurt er hvort stuðningur þeirra
liggi hjá Bjarna Benediktssyni eða
Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
Háttsettur áhrifamaður í f lokkn
um spáir að báðir fái góða kosningu.
Sitjandi formaður hafi þó töluverða
forgjöf. Undantekning hafi verið
þegar Davíð lagði Þorstein Pálsson.
Bjarni og Guðlaugur hafa tekist á
um hvað teljist viðunandi fylgi Sjálf
stæðisf lokksins. Stuðningsmenn
Bjarna benda á að mestu skipti að
hafa tryggt valdasetu síðustu ellefu
ár. Úr Guðlaugs röðum heyrist án
þess að menn vilji koma fram undir
nafni að hneykslismálasaga Bjarna
eigi þátt í að fylgi f lokksins sé ekki
meira. Er nefnt að nú síðast hafi
faðir Bjarna hagnast á sölu bréfa í
Íslandsbanka. Spenna er um hvort
skýrsla Ríkisendurskoðunar um
bankasöluna lekur út fyrir fundinn.
Því er einnig haldið fram að erf
iðara sé að ráða í hug landsfundar
gesta en oft áður. Mörg hundruð
fulltrúar sitji sinn fyrsta landsfund
eftir sögulega uppstokkun í sveitar
stjórnarkjörum og rof á landsfund
um vegna Covid. Eldri og reyndari
fulltrúar leggi áherslu á foringja
hollustu. Nýju fulltrúarnir séu
ófyrirsjáanlegri. Foringjahollustan
sé mest hjá „gömlum hundum“, eins
og einn reyndur fulltrúi orðaði það.
Það kunni að hjálpa Guðlaugi.
Friðjón R. Friðjónsson borgarfull
trúi segist styðja Bjarna, því hann
hafi náð þeim árangri sem hann
telji mikilvægastan, að tryggja stöðu
flokksins í ríkisstjórn.
„Það er alltaf markmið flokksins
að hafa áhrif á stjórn landsins og
leysa þau risavöxnu verkefni sem
samfélagið stendur frammi fyrir.
Bjarni hefur sýnt að hann hefur
hæfileika og getu til að tryggja
stöðugleika og sýnilegan árangur
fyrir fólkið í landinu,“ segir Friðjón.
Diljá Mist Einarsdóttir, þingkona
Sjálfstæðisf lokksins, segir spurð
um hennar afstöðu til framboðs
Guðlaugs Þórs að enginn efist um
hennar stuðning við Guðlaug Þór.
Hún vilji þó ekki tjá sig frekar, enda
sé það hennar skoðun að valdafólk
í flokknum eigi ekki að leggja lands
fundarfulltrúum línurnar.
„Ég hlakka til að eiga þetta samtal
við fólkið á landsfundinum og mun
styðja forystu Sjálfstæðisflokksins
eftir sem áður,“ segir Diljá Mist.
Langflestir þingmenn flokksins
sem hafa gefið opinberlega upp
afstöðu sína segjast styðja Bjarna.
Þingmenn sem ekki styðja Bjarna
benda þó á að þegar Davíð bylti Þor
steini hafi aðeins einn sitjandi þing
maður Sjálfstæðisflokksins lýst fyrir
fram stuðningi við hann. n
Ég hlakka til að eiga
þetta samtal við fólkið
á landsfundinum.
Diljá Mist
Einarsdóttir,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins
Mér finnst þetta ekki
vera forgangsmál.
Kristrún Frosta-
dóttir, formaður
Samfylkingar-
innar
Yfir 50 uppskriftir eftir Lene Holme Samsøe að fallegum og sígildum
fötum á nýfædd börn og upp í tólf ára.
SPARI OG HVERSDAGS
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Virka daga 10–18 | Lau 11–17 | Sun 12–16 | www.forlagid.is
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Kristrún Frostadóttir,
formaður Samfylkingarinnar, segir
að persónulegur hugur hennar um
aðild að ESB hafi ekki breyst þótt
hún leggi áherslu á að andstæðingar
ESB eigi skjól í flokknum.
„Ég er ófeimin að segja að ég er í
grunninn jafnaðarkona og svo er
ég Evrópusinni,“ segir Kristrún. „Ég
vil fylkja fólki saman um grunngildi
jafnaðarstefnunnar án ásteytingar
steinsins sem aðild að ESB er.“
Kristrún er nýbakaður formaður
stjórnmálaflokks sem fyrir nokkr
um vikum lagði fram þingsálykt
unartillögu ásamt Pírötum og Við
reisn um þjóðaratkvæðagreiðslu
um framhald viðræðna við ESB.
Þingmennirnir vilja að þjóðin verði
spurð hvort Ísland eigi að taka upp
þráðinn í viðræðum við Evrópu
sambandið með það að markmiði
að aðildarsamningur yrði borinn
undir þjóðina til samþykktar eða
synjunar. Svarmöguleikar yrðu já
eða nei.
Þegar Kristrún er spurð hvort hún
myndi standa að þingsályktunar
tillögunni í dag svarar hún: „Mér
finnst þetta ekki vera forgangsmál.
Eins og ég hef áður sagt þá er þetta
ekki rétti tíminn að mínu mati til að
leggja áherslu á málið. Það eru mörg
önnur stór og áríðandi verkefni fram
undan og það getur ekki allt verið í
forgangi. Mitt fyrsta þingmál sneri
að velferðar og húsnæðismálum. Ég
tel samt að það sé mikilvægt og gott
að þetta sé rætt inni á Alþingi.“
Spurð hvort limirnir dansi eftir
höfði formannsins, svarar Kristrún:
„Spurningin snýst um tímasetn
ingu. Mér finnst skipta máli fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu að fyrst hafi
farið fram ígrunduð umræða og að
önnur mál séu framar í forgangi.“ n
Tillaga um þjóðaratkvæði ekki lengur forgangsmál
Metfjöldi nýrra fulltrúa á landsfundi
gæti sett mark sitt á formannskjörið
Margir lands-
fundargestir
eru sagðir hafa
fengið sím-
töl eða verið
boðaðir á fundi
til að ræða
afstöðu til fram-
bjóðenda. Bjarni
Benediktsson
er sagður með
forskot.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
kristinnpall@frettabladid.is
ÍSAFJÖRÐUR Stjórn eldri borgara
á Ísafirði og nágrenni og stjórn
Kubba, íþróttafélags eldri borgara
á Ísafirði, lögðu fram erindi á síðasta
fundi bæjarráðs Ísafjarðar þar sem
lýst var vonbrigðum með að tilvon
andi stækkun á hjúkrunarheimilinu
Eyri yrði á kostnað púttvallarins
við hjúkrunarheimilið. Í erindinu
minnist Félag eldri borgara á Ísa
firði á að félagið hafi lagt til stórar
fjárhæðir í völlinn á sínum tíma.
Í frétt Bæjarins besta frá 2017 kom
fram að völlurinn væri sá stærsti
sinnar tegundar á landinu og að
hefði kostað 7,5 milljónir. Félag eldri
borgara ítrekaði því beiðni sína um
að farið yrði eftir upprunalegum
teikningum um stækkun hjúkr
unarheimilisins á kostnað bíla
stæðisins í stað púttvallarins. Áður
hafði bæjarráð lofað félaginu nýrri
staðsetningu fyrir púttvöllinn. n
Óttast örlög
púttvallarins
benediktboas@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA „Í upphafi vill BSRB
benda á að ekkert samráð var við
haft við bandalagið áður en þing
málið var lagt fram á Alþingi, eins
og lög um réttindi og skyldur starfs
manna ríkisins gera ráð fyrir að sé
gert. Þó um þingmannamál sé að
ræða þá ber að viðhafa slíkt sam
ráð,“ segir í umsögn bandalagsins
um frumvarp til laga um breytingu
á lögum um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins.
Með frumvarpinu er meðal ann
ars lagt til að fella niður þá skyldu
forstöðumanns að áminna starfs
mann með formlegum hætti vegna
brots á starfsskyldum hans eða
annarra atvika er hann varðar sem
undanfara uppsagnar.
Í umsögninni segir einnig að
vandséð sé hvernig hægt sé að fella
áminningarskylduna úr gildi með
þeim hætti sem frumvarpið felur í
sér. n
BSRB undrast
samráðsleysið
Sonja Ýr Þor-
bergsdóttir,
formaður BSRB
4 Fréttir 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ