Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 4

Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 4
Nýir landsfundarfulltrúar eru sagðir óbundnari af foringja­ hollustu en hinir eldri. Bjarni er talinn hafa forskot sem sitjandi formaður. Hneykslis­ mál kunni þó að spilla fyrir. bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL Það er til marks um spennuna í Sjálfstæðisf lokknum þegar fjórir dagar eru í formanns­ kosningu að landsfundarfulltrúar Sjálfstæðisf lokksins vilja fæstir upplýsa um opinbera afstöðu þegar spurt er hvort stuðningur þeirra liggi hjá Bjarna Benediktssyni eða Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Háttsettur áhrifamaður í f lokkn­ um spáir að báðir fái góða kosningu. Sitjandi formaður hafi þó töluverða forgjöf. Undantekning hafi verið þegar Davíð lagði Þorstein Pálsson. Bjarni og Guðlaugur hafa tekist á um hvað teljist viðunandi fylgi Sjálf­ stæðisf lokksins. Stuðningsmenn Bjarna benda á að mestu skipti að hafa tryggt valdasetu síðustu ellefu ár. Úr Guðlaugs röðum heyrist án þess að menn vilji koma fram undir nafni að hneykslismálasaga Bjarna eigi þátt í að fylgi f lokksins sé ekki meira. Er nefnt að nú síðast hafi faðir Bjarna hagnast á sölu bréfa í Íslandsbanka. Spenna er um hvort skýrsla Ríkisendurskoðunar um bankasöluna lekur út fyrir fundinn. Því er einnig haldið fram að erf­ iðara sé að ráða í hug landsfundar­ gesta en oft áður. Mörg hundruð fulltrúar sitji sinn fyrsta landsfund eftir sögulega uppstokkun í sveitar­ stjórnarkjörum og rof á landsfund­ um vegna Covid. Eldri og reyndari fulltrúar leggi áherslu á foringja­ hollustu. Nýju fulltrúarnir séu ófyrirsjáanlegri. Foringjahollustan sé mest hjá „gömlum hundum“, eins og einn reyndur fulltrúi orðaði það. Það kunni að hjálpa Guðlaugi. Friðjón R. Friðjónsson borgarfull­ trúi segist styðja Bjarna, því hann hafi náð þeim árangri sem hann telji mikilvægastan, að tryggja stöðu flokksins í ríkisstjórn. „Það er alltaf markmið flokksins að hafa áhrif á stjórn landsins og leysa þau risavöxnu verkefni sem samfélagið stendur frammi fyrir. Bjarni hefur sýnt að hann hefur hæfileika og getu til að tryggja stöðugleika og sýnilegan árangur fyrir fólkið í landinu,“ segir Friðjón. Diljá Mist Einarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisf lokksins, segir spurð um hennar afstöðu til framboðs Guðlaugs Þórs að enginn efist um hennar stuðning við Guðlaug Þór. Hún vilji þó ekki tjá sig frekar, enda sé það hennar skoðun að valdafólk í flokknum eigi ekki að leggja lands­ fundarfulltrúum línurnar. „Ég hlakka til að eiga þetta samtal við fólkið á landsfundinum og mun styðja forystu Sjálfstæðisflokksins eftir sem áður,“ segir Diljá Mist. Langflestir þingmenn flokksins sem hafa gefið opinberlega upp afstöðu sína segjast styðja Bjarna. Þingmenn sem ekki styðja Bjarna benda þó á að þegar Davíð bylti Þor­ steini hafi aðeins einn sitjandi þing­ maður Sjálfstæðisflokksins lýst fyrir fram stuðningi við hann. n Ég hlakka til að eiga þetta samtal við fólkið á landsfundinum. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins Mér finnst þetta ekki vera forgangsmál. Kristrún Frosta- dóttir, formaður Samfylkingar- innar Yfir 50 uppskriftir eftir Lene Holme Samsøe að fallegum og sígildum fötum á nýfædd börn og upp í tólf ára. SPARI OG HVERSDAGS LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Virka daga 10–18 | Lau 11–17 | Sun 12–16 | www.forlagid.is bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að persónulegur hugur hennar um aðild að ESB hafi ekki breyst þótt hún leggi áherslu á að andstæðingar ESB eigi skjól í flokknum. „Ég er ófeimin að segja að ég er í grunninn jafnaðarkona og svo er ég Evrópusinni,“ segir Kristrún. „Ég vil fylkja fólki saman um grunngildi jafnaðarstefnunnar án ásteytingar­ steinsins sem aðild að ESB er.“ Kristrún er nýbakaður formaður stjórnmálaflokks sem fyrir nokkr­ um vikum lagði fram þingsálykt­ unartillögu ásamt Pírötum og Við­ reisn um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Þingmennirnir vilja að þjóðin verði spurð hvort Ísland eigi að taka upp þráðinn í viðræðum við Evrópu­ sambandið með það að markmiði að aðildarsamningur yrði borinn undir þjóðina til samþykktar eða synjunar. Svarmöguleikar yrðu já eða nei. Þegar Kristrún er spurð hvort hún myndi standa að þingsályktunar­ tillögunni í dag svarar hún: „Mér finnst þetta ekki vera forgangsmál. Eins og ég hef áður sagt þá er þetta ekki rétti tíminn að mínu mati til að leggja áherslu á málið. Það eru mörg önnur stór og áríðandi verkefni fram undan og það getur ekki allt verið í forgangi. Mitt fyrsta þingmál sneri að velferðar­ og húsnæðismálum. Ég tel samt að það sé mikilvægt og gott að þetta sé rætt inni á Alþingi.“ Spurð hvort limirnir dansi eftir höfði formannsins, svarar Kristrún: „Spurningin snýst um tímasetn­ ingu. Mér finnst skipta máli fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu að fyrst hafi farið fram ígrunduð umræða og að önnur mál séu framar í forgangi.“ n Tillaga um þjóðaratkvæði ekki lengur forgangsmál Metfjöldi nýrra fulltrúa á landsfundi gæti sett mark sitt á formannskjörið Margir lands- fundargestir eru sagðir hafa fengið sím- töl eða verið boðaðir á fundi til að ræða afstöðu til fram- bjóðenda. Bjarni Benediktsson er sagður með forskot. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI kristinnpall@frettabladid.is ÍSAFJÖRÐUR Stjórn eldri borgara á Ísafirði og nágrenni og stjórn Kubba, íþróttafélags eldri borgara á Ísafirði, lögðu fram erindi á síðasta fundi bæjarráðs Ísafjarðar þar sem lýst var vonbrigðum með að tilvon­ andi stækkun á hjúkrunarheimilinu Eyri yrði á kostnað púttvallarins við hjúkrunarheimilið. Í erindinu minnist Félag eldri borgara á Ísa­ firði á að félagið hafi lagt til stórar fjárhæðir í völlinn á sínum tíma. Í frétt Bæjarins besta frá 2017 kom fram að völlurinn væri sá stærsti sinnar tegundar á landinu og að hefði kostað 7,5 milljónir. Félag eldri borgara ítrekaði því beiðni sína um að farið yrði eftir upprunalegum teikningum um stækkun hjúkr­ unarheimilisins á kostnað bíla­ stæðisins í stað púttvallarins. Áður hafði bæjarráð lofað félaginu nýrri staðsetningu fyrir púttvöllinn. n Óttast örlög púttvallarins benediktboas@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA „Í upphafi vill BSRB benda á að ekkert samráð var við­ haft við bandalagið áður en þing­ málið var lagt fram á Alþingi, eins og lög um réttindi og skyldur starfs­ manna ríkisins gera ráð fyrir að sé gert. Þó um þingmannamál sé að ræða þá ber að viðhafa slíkt sam­ ráð,“ segir í umsögn bandalagsins um frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Með frumvarpinu er meðal ann­ ars lagt til að fella niður þá skyldu forstöðumanns að áminna starfs­ mann með formlegum hætti vegna brots á starfsskyldum hans eða annarra atvika er hann varðar sem undanfara uppsagnar. Í umsögninni segir einnig að vandséð sé hvernig hægt sé að fella áminningarskylduna úr gildi með þeim hætti sem frumvarpið felur í sér. n BSRB undrast samráðsleysið Sonja Ýr Þor- bergsdóttir, formaður BSRB 4 Fréttir 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.