Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 6
Hugtakið skógur fór út
eftir sameininguna í
Danmörku.
Jónatan
Garðarsson,
formaður Skóg-
ræktarfélags
Íslands
ragnarjon@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaðu r
Alþingis hefur tekið til skoðunar
umkvörtun Indriða Stefánssonar,
varaþingmanns Pírata, í talningar-
málinu svokallaða. Indriði vísaði
máli sínu til umboðsmanns eftir að
ríkissaksóknari vísaði kæru hans í
málinu frá þann 25. október.
Málið varðar mistök sem gerð
voru við talningu atkvæða í Norð-
vesturkjördæmi en eftir að vankant-
ar höfðu komið upp við talningu
atkvæða var ráðist í endurtalningu
sem leiddi til þess að niðurstöður
kosninganna breyttust.
„Þetta er eflaust núna á frumstigi
og það er verið að skoða hvaða for-
sendur séu fyrir hendi,“ segir Ind-
riði sem fagnar þeirri niðurstöðu að
málið sé til skoðunar hjá umboðs-
manni Alþingis.
„En eins og ég segi þá þykir mér
enn óskiljanlegt hvernig þetta gat
verið niðurstaðan hjá ríkissaksókn-
ara,“ segir Indriði en ein af umkvört-
unum hans til umboðsmanns var að
ríkissaksóknari hefði ekki svarað
um ástæðu þess að Indriði áfrýjaði
máli sínu til embættisins sem upp-
haf lega var hafnað af héraðssak-
sóknara. Hann telur því að málið
krefjist frekari skoðunar.
Talningarmálið til umboðsmanns
Talningarmálið
svokallaða kom
upp í Norð-
vesturkjördæmi
í alþingis-
kosningum árið
2021.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
„Eins og ég skil kosningalögin þá
breytir það engu um niðurstöðu
kosninga hvað kæmi út úr þessu því
allur sá frestur er liðinn og Alþingi
er búið að staðfesta kosningarnar,“
segir Indriði. „Svo einu hagsmun-
irnir sem virðast vera undir eru að
vernda þá aðila sem eru í yfirkjör-
stjórn í Norðvesturkjördæmi,“ segir
Indriði einnig og segist ekki skilja
hvers vegna héraðssaksóknari og
ríkissaksóknari svara ekki mörgum
af þeim atriðum sem hann lagði
fram í kæru sinni.
„Við erum að tala um kosningar,
við erum að tala um grundvöll
samfélagsins. Ég veit í raun ekki
hvert stjórnkerfið okkar er komið
þegar kosningar fara þannig fram
að menn komast upp með að því
virðist hvað sem er og viðbrögðin
eru lítil sem engin,“ segir Indriði.
Skúli Magnússon, umboðsmaður
Alþingis, var ekki tilbúinn að stað-
festa hvort eða hvernig málið væri
til skoðunar hjá umboðsmanni þar
sem hann gæti ekki tjáð sig um ein-
stök mál. n
6 Fréttir 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Formaður Skógræktarfélags
Íslands óttast að sameining
Skógræktar og Landgræðslu
snúist um sparnað. Þá geti
deilur milli starfsmanna
truflað sameiningu og vanda
þurfi undirbúning.
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Ótti er innan Skóg-
ræktarfélags Íslands um að Skóg-
ræktin verði undir í fyrirhugaðri
sameiningu við Landgræðsluna sem
Svandís Svavarsdóttir matvælaráð-
herra hefur boðað. Bæði hvað varðar
fjármagn til starfseminnar og stefnu.
„Við höfum áhyggjur af því að
sameiningin snúist of mikið um
sparnað. Þessi sparnaður gæti komið
niður á starfi sem er nú unnið á
þessum tveimur stöðum og við
horfum sérstaklega til skógræktar,“
segir Jónatan Garðarsson, formaður
félagsins sem á sér nærri 90 ára sögu
og heldur utan um 64 skógræktar-
félög um land allt. Fordæmið sé til
staðar í sams konar sameiningu í
Danmörku. „Hugtakið skógur fór
út eftir sameininguna í Danmörku,“
segir Jónatan.
Umræðan um sameiningu Skóg-
ræktarinnar og Landgræðslunnar
hefur lengi verið til staðar en um
miðjan október tilkynnti ráðherra
áætlanir sínar. Allt starfsfólk mun
fara yfir í nýja stofnun en Þröstur
Eysteinsson skógræktarstjóri og Árni
Bragason landgræðslustjóri munu
brátt báðir hætta vegna aldurs.
„Þessar stofnanir eiga samleið ef
rétt er staðið að málum,“ segir Jón-
atan. Landgræðslan hafi orðið til úr
Sandgræðslunni sem var eitt sinn
hliðarverkefni Skógræktarinnar.
Stjórnvöld verði hins vegar að passa
upp á að það halli ekki á starfið í
annarri hvorri stofnuninni eftir
sameiningu og að það verði ekki
horft fram hjá löngu og áhrifamiklu
starfi, svo sem rannsóknarvinnu og
fleiru. Ef allir eru með opinn huga
gæti sameiningin heppnast vel.
Deilur hafa hins vegar staðið milli
einstaklinga innan sem utan stofn-
ananna. Þessar deilur birtast meðal
annars í bókun Skógræktarfélagsins
frá því í byrjun september þar sem
skorað var á ráðherra að fara var-
lega í úrvinnslu hugmyndar um
sameiningu.
„Því miður virðast nokkrir starfs-
menn Landgræðslunnar á síðustu
árum telja það verkefni sitt að gagn-
rýna með óvægnum hætti starfsemi
Skógræktarinnar og skógræktar-
félaga út frá trúarlegum eða þjóð-
ernislægum lífsskoðunum svo sem
hvaða trjátegundir eigi sér þegnrétt
í íslenskri náttúru,“ segir þar.
Jónatan segir skógræktarfólk
óttast hreintrúarstefnu varðandi
sumar jurtir, til dæmis stafafuruna
sem sumt landgræðslufólk telur
ágenga í náttúrunni. En stafafuruna
þekkja Íslendingar best sem vin-
sælasta jólatréð sem ræktað er hér
á landi.
„Deilurnar rista ekki djúpt en
ákveðnir starfsmenn innan beggja
stofnana hafa verið með skot hver
á annan,“ segir Jónatan. „Við ótt-
umst að það muni vera truflandi
í sameiningu. En það er þeirra að
finna leiðina og sætta sjónarmið.“
Nauðsynlegt sé að samráð og undir-
búningur að sameiningu sé betri en
hann hefur verið. n
Óttast að Skógræktin verði
undir við sameininguna
Deilurnar snúast
meðal annars
um stafafuru
sem sumt land-
græðslufólk
telur ágenga
í náttúrunni.
MYND/AÐSEND
bth@frettabladid.is
VEIÐI „Þetta er gleðidagur en ég
hefði viljað að skotveiðimenn hefðu
átt þess kost að veiða um síðustu
helgi,“ segir Áki Ármann Jónsson,
formaður Skotvís.
Rjúpnaveiðitímabilið hófst í
gær en skrýtin staða er uppi vegna
óvissu með veiðistofninn að sögn
Áka. Þar ber hæst áhyggjur af hruni
á Norðausturlandi.
„Við vitum ekki stöðuna í raun
fyrr en veiðimenn fara að ganga um
svæðin,“ segir Áki.
Alls verða veiðar leyfðar 24 daga
á þessari vertíð, frá föstudegi til
þriðjudags í nóvember auk fyrstu
helgarinnar í desember. Hins vegar
má aðeins veiða frá klukkan 12 á
hádegi uns birtu bregður.
Áki er ekki sáttur við það, enda
segir hann engin gögn styðja hálfa
veiðidaga en ekki heila.
„Við vorum líka ósátt við aðdrag-
anda ákvörðunar um fyrirkomulag
veiða. Okkur fannst að um sýndar-
samráð væri að ræða. Umhverfis-
stofnun boðaði okkur á fund en á
fundinum máttum við ekki ræða
okkar afstöðu efnislega,“ segir Áki.
Talið er að veiðistofninn nú sé
um 297.000 rjúpur. Í fyrra veiddust
26–27.000 rjúpur og þetta árið er
kvótinn 25.000 fuglar. Mælst er til
að veiði á hvern veiðimann verði
ekki meiri en en sex rjúpur. Formað-
ur Skotvís brýnir skotveiðimenn til
að gæta hófs í veiðum. n
Gagnrýnir Umhverfisstofnun
Áki Ármann Jónsson stefnir að því
að ganga til rjúpna á næstunni.
ragnarjon@frettabladid.is
BANDARÍKIN John Roberts, hæsta-
réttardómari í Bandaríkjunum,
hefur tímabundið stöðvað framsal
á skattaupplýsingum fyrrverandi
Bandar ík jaforset ans Donalds
Trump til þingnefndar Bandaríkja-
þings sem stjórnað er af Demó-
krötum. Ástæðan fyrir töfinni er
sú að hæstiréttur mun þurfa að fara
yfir áfrýjun Trumps til hæstaréttar
í málinu en barist hefur verið um
skattaupplýsingar Trumps allt frá
2019.
Trump hefur áður þurft að
af henda saksóknara í New York-
fylki eintak af skattagögnum
sínum í tengslum við sakamál.
Ekki hefur þó enn komið fram nein
kæra í tengslum við það mál. Máls-
vörn Trumps er sú að falast sé eftir
skattaupplýsingum hans af f lokks-
pólitískum ástæðum. n
Skattagögn Trumps ekki afhent
benediktboas@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Flug félagið PLAY
hefur fengið af henta glænýja far-
þegaþotu beint frá Airbus. Af
mörgu er að taka í nýrri vél en í
uppáhaldi er LED-lýsingin sem
lætur farþegana f ljúga í norður-
ljósasýningu. „Þessi er beint úr
kassanum. Það er meira að segja
nýjabílslykt inni í henni,“ segir
Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, um
þotuna sem er 180 sæta A320neo.
Vinna við þotuna hófst fyrir um
einu og hálfu ári og völdu starfs-
menn PLAY allan þann búnað sem
er í vélinni. Meðal annars voru
valin sæti sem eru einstaklega létt
en þægileg. Sætin verða einnig búin
höldum fyrir spjaldtölvur og síma
sem farþegar geta notað ef þeir vilja
horfa á eigið af þreyingarefni. Þau
hafa einnig USB A- og USB C-hleðslu
sem getur komið sér vel. Sætisbeltin
verða að sjálfsögðu rauð sem er ein-
kennislitur flugfélagsins.
„Svo er það nú smá í uppáhaldi
hjá mér hvernig við getum stillt
lýsinguna í farþegarýminu. Þetta
er sérútbúin LED-lýsing þar sem við
getum meðal annars sett á norður-
ljósastillingu, sem er einmitt helsta
aðdráttarafl Íslands þegar kemur að
ferðamönnum,“ segir Birgir. n
Play fékk nýja farþegaþotu afhenta
Jens Þór Jensson flugmaður tekur við lyklunum að nýju vélinni. MYND/AÐSEND
John Roberts hæstaréttardómari.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY