Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 6

Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 6
Hugtakið skógur fór út eftir sameininguna í Danmörku. Jónatan Garðarsson, formaður Skóg- ræktarfélags Íslands ragnarjon@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Umboðsmaðu r Alþingis hefur tekið til skoðunar umkvörtun Indriða Stefánssonar, varaþingmanns Pírata, í talningar- málinu svokallaða. Indriði vísaði máli sínu til umboðsmanns eftir að ríkissaksóknari vísaði kæru hans í málinu frá þann 25. október. Málið varðar mistök sem gerð voru við talningu atkvæða í Norð- vesturkjördæmi en eftir að vankant- ar höfðu komið upp við talningu atkvæða var ráðist í endurtalningu sem leiddi til þess að niðurstöður kosninganna breyttust. „Þetta er eflaust núna á frumstigi og það er verið að skoða hvaða for- sendur séu fyrir hendi,“ segir Ind- riði sem fagnar þeirri niðurstöðu að málið sé til skoðunar hjá umboðs- manni Alþingis. „En eins og ég segi þá þykir mér enn óskiljanlegt hvernig þetta gat verið niðurstaðan hjá ríkissaksókn- ara,“ segir Indriði en ein af umkvört- unum hans til umboðsmanns var að ríkissaksóknari hefði ekki svarað um ástæðu þess að Indriði áfrýjaði máli sínu til embættisins sem upp- haf lega var hafnað af héraðssak- sóknara. Hann telur því að málið krefjist frekari skoðunar. Talningarmálið til umboðsmanns Talningarmálið svokallaða kom upp í Norð- vesturkjördæmi í alþingis- kosningum árið 2021. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK „Eins og ég skil kosningalögin þá breytir það engu um niðurstöðu kosninga hvað kæmi út úr þessu því allur sá frestur er liðinn og Alþingi er búið að staðfesta kosningarnar,“ segir Indriði. „Svo einu hagsmun- irnir sem virðast vera undir eru að vernda þá aðila sem eru í yfirkjör- stjórn í Norðvesturkjördæmi,“ segir Indriði einnig og segist ekki skilja hvers vegna héraðssaksóknari og ríkissaksóknari svara ekki mörgum af þeim atriðum sem hann lagði fram í kæru sinni. „Við erum að tala um kosningar, við erum að tala um grundvöll samfélagsins. Ég veit í raun ekki hvert stjórnkerfið okkar er komið þegar kosningar fara þannig fram að menn komast upp með að því virðist hvað sem er og viðbrögðin eru lítil sem engin,“ segir Indriði. Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, var ekki tilbúinn að stað- festa hvort eða hvernig málið væri til skoðunar hjá umboðsmanni þar sem hann gæti ekki tjáð sig um ein- stök mál. n 6 Fréttir 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ Formaður Skógræktarfélags Íslands óttast að sameining Skógræktar og Landgræðslu snúist um sparnað. Þá geti deilur milli starfsmanna truflað sameiningu og vanda þurfi undirbúning. kristinnhaukur@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Ótti er innan Skóg- ræktarfélags Íslands um að Skóg- ræktin verði undir í fyrirhugaðri sameiningu við Landgræðsluna sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráð- herra hefur boðað. Bæði hvað varðar fjármagn til starfseminnar og stefnu. „Við höfum áhyggjur af því að sameiningin snúist of mikið um sparnað. Þessi sparnaður gæti komið niður á starfi sem er nú unnið á þessum tveimur stöðum og við horfum sérstaklega til skógræktar,“ segir Jónatan Garðarsson, formaður félagsins sem á sér nærri 90 ára sögu og heldur utan um 64 skógræktar- félög um land allt. Fordæmið sé til staðar í sams konar sameiningu í Danmörku. „Hugtakið skógur fór út eftir sameininguna í Danmörku,“ segir Jónatan. Umræðan um sameiningu Skóg- ræktarinnar og Landgræðslunnar hefur lengi verið til staðar en um miðjan október tilkynnti ráðherra áætlanir sínar. Allt starfsfólk mun fara yfir í nýja stofnun en Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri og Árni Bragason landgræðslustjóri munu brátt báðir hætta vegna aldurs. „Þessar stofnanir eiga samleið ef rétt er staðið að málum,“ segir Jón- atan. Landgræðslan hafi orðið til úr Sandgræðslunni sem var eitt sinn hliðarverkefni Skógræktarinnar. Stjórnvöld verði hins vegar að passa upp á að það halli ekki á starfið í annarri hvorri stofnuninni eftir sameiningu og að það verði ekki horft fram hjá löngu og áhrifamiklu starfi, svo sem rannsóknarvinnu og fleiru. Ef allir eru með opinn huga gæti sameiningin heppnast vel. Deilur hafa hins vegar staðið milli einstaklinga innan sem utan stofn- ananna. Þessar deilur birtast meðal annars í bókun Skógræktarfélagsins frá því í byrjun september þar sem skorað var á ráðherra að fara var- lega í úrvinnslu hugmyndar um sameiningu. „Því miður virðast nokkrir starfs- menn Landgræðslunnar á síðustu árum telja það verkefni sitt að gagn- rýna með óvægnum hætti starfsemi Skógræktarinnar og skógræktar- félaga út frá trúarlegum eða þjóð- ernislægum lífsskoðunum svo sem hvaða trjátegundir eigi sér þegnrétt í íslenskri náttúru,“ segir þar. Jónatan segir skógræktarfólk óttast hreintrúarstefnu varðandi sumar jurtir, til dæmis stafafuruna sem sumt landgræðslufólk telur ágenga í náttúrunni. En stafafuruna þekkja Íslendingar best sem vin- sælasta jólatréð sem ræktað er hér á landi. „Deilurnar rista ekki djúpt en ákveðnir starfsmenn innan beggja stofnana hafa verið með skot hver á annan,“ segir Jónatan. „Við ótt- umst að það muni vera truflandi í sameiningu. En það er þeirra að finna leiðina og sætta sjónarmið.“ Nauðsynlegt sé að samráð og undir- búningur að sameiningu sé betri en hann hefur verið. n Óttast að Skógræktin verði undir við sameininguna Deilurnar snúast meðal annars um stafafuru sem sumt land- græðslufólk telur ágenga í náttúrunni. MYND/AÐSEND bth@frettabladid.is VEIÐI „Þetta er gleðidagur en ég hefði viljað að skotveiðimenn hefðu átt þess kost að veiða um síðustu helgi,“ segir Áki Ármann Jónsson, formaður Skotvís. Rjúpnaveiðitímabilið hófst í gær en skrýtin staða er uppi vegna óvissu með veiðistofninn að sögn Áka. Þar ber hæst áhyggjur af hruni á Norðausturlandi. „Við vitum ekki stöðuna í raun fyrr en veiðimenn fara að ganga um svæðin,“ segir Áki. Alls verða veiðar leyfðar 24 daga á þessari vertíð, frá föstudegi til þriðjudags í nóvember auk fyrstu helgarinnar í desember. Hins vegar má aðeins veiða frá klukkan 12 á hádegi uns birtu bregður. Áki er ekki sáttur við það, enda segir hann engin gögn styðja hálfa veiðidaga en ekki heila. „Við vorum líka ósátt við aðdrag- anda ákvörðunar um fyrirkomulag veiða. Okkur fannst að um sýndar- samráð væri að ræða. Umhverfis- stofnun boðaði okkur á fund en á fundinum máttum við ekki ræða okkar afstöðu efnislega,“ segir Áki. Talið er að veiðistofninn nú sé um 297.000 rjúpur. Í fyrra veiddust 26–27.000 rjúpur og þetta árið er kvótinn 25.000 fuglar. Mælst er til að veiði á hvern veiðimann verði ekki meiri en en sex rjúpur. Formað- ur Skotvís brýnir skotveiðimenn til að gæta hófs í veiðum. n Gagnrýnir Umhverfisstofnun Áki Ármann Jónsson stefnir að því að ganga til rjúpna á næstunni. ragnarjon@frettabladid.is BANDARÍKIN John Roberts, hæsta- réttardómari í Bandaríkjunum, hefur tímabundið stöðvað framsal á skattaupplýsingum fyrrverandi Bandar ík jaforset ans Donalds Trump til þingnefndar Bandaríkja- þings sem stjórnað er af Demó- krötum. Ástæðan fyrir töfinni er sú að hæstiréttur mun þurfa að fara yfir áfrýjun Trumps til hæstaréttar í málinu en barist hefur verið um skattaupplýsingar Trumps allt frá 2019. Trump hefur áður þurft að af henda saksóknara í New York- fylki eintak af skattagögnum sínum í tengslum við sakamál. Ekki hefur þó enn komið fram nein kæra í tengslum við það mál. Máls- vörn Trumps er sú að falast sé eftir skattaupplýsingum hans af f lokks- pólitískum ástæðum. n Skattagögn Trumps ekki afhent benediktboas@frettabladid.is SAMGÖNGUR Flug félagið PLAY hefur fengið af henta glænýja far- þegaþotu beint frá Airbus. Af mörgu er að taka í nýrri vél en í uppáhaldi er LED-lýsingin sem lætur farþegana f ljúga í norður- ljósasýningu. „Þessi er beint úr kassanum. Það er meira að segja nýjabílslykt inni í henni,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, um þotuna sem er 180 sæta A320neo.  Vinna við þotuna hófst fyrir um einu og hálfu ári og völdu starfs- menn PLAY allan þann búnað sem er í vélinni. Meðal annars voru valin sæti sem eru einstaklega létt en þægileg. Sætin verða einnig búin höldum fyrir spjaldtölvur og síma sem farþegar geta notað ef þeir vilja horfa á eigið af þreyingarefni. Þau hafa einnig USB A- og USB C-hleðslu sem getur komið sér vel. Sætisbeltin verða að sjálfsögðu rauð sem er ein- kennislitur flugfélagsins. „Svo er það nú smá í uppáhaldi hjá mér hvernig við getum stillt lýsinguna í farþegarýminu. Þetta er sérútbúin LED-lýsing þar sem við getum meðal annars sett á norður- ljósastillingu, sem er einmitt helsta aðdráttarafl Íslands þegar kemur að ferðamönnum,“ segir Birgir. n Play fékk nýja farþegaþotu afhenta Jens Þór Jensson flugmaður tekur við lyklunum að nýju vélinni. MYND/AÐSEND John Roberts hæstaréttardómari. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.