Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 9

Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 9
Þessi nýja kynslóð tölvuleikja fjallar miklu meira um að vera saman og eiga samskipti. GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR 588 80 40 www.scanver.is RAFMÓTORAR Íslenska tölvuleikjafyrir- tækið Arctic Theory vinnur að framleiðslu nýs tölvuleiks sem er sambland af fjölspilun og samfélagsmiðli. Leikurinn ber vinnuheitið Annex og er væntanlegur á næsta ári. helgisteinar@frettabladid.is Gísli Konráðsson er einn af fjórum stofnendum Arctic Theory, íslensks tölvuleikjafyrirtækis sem stofnað var í júní 2020 af honum, Matthíasi Guðmundssyni, Snorra Sturlu- syni og Jóni Bjarna Bjarnasyni, og deila þeir yfir 100 ára samanlagðri reynslu af tölvuleikjum sín á milli. Stofnendurnir fjórir hafa einnig komið að nokkrum metnaðarfyllstu tölvuleikjum síðustu áratuga, þar á meðal EVE Online og Sims og er starfsemin rekin úr litlu húsi sem byggt var árið 1908 við Strandgötu í Hafnarfirði. „Við viljum hafa þetta umhverfi heimilislegt því okkur finnst mjög mikilvægt að fólki líði vel í vinnunni. Við erum að sjálfsögðu að vinna sem miklir fagmenn og brautryðjendur en á sama tíma skiptir vinnustaða- menning miklu máli. Við lítum á skrifstofuna hér sem hjartað, en við viljum fá fólk úti um allan heim með mismunandi bakgrunn,“ segir Gísli. Hann bendir á að hugmyndafræði fyrirtækisins byggist fyrst og fremst á þremur þáttum: sköpunargáfu, samvinnu og samfélagi og bætir við að Covid-19 hafi einnig spilað stóran þátt í breyttum tölvuleikjaheimi þar sem fólk leitaði oft til sýndar- heima fyrir nýsköpun í faraldrinum eftir að hafa misst aðgang að raun- heiminum. Á sama tíma er Arctic Theory frábrugðið mörgum stærri tölvuleikjaframleiðendum að því leytinu til að fyrirtækið vill frekar tryggja sér langtímaviðskiptavini með tölvuleik sínum heldur en skjótfenginn gróða. Fyrr á árinu tryggði Arctic Theory sér 260 milljóna króna fjármögnun frá Brunni vaxtarsjóði II sem stýrt er af Brunni Ventures og Lands- bréfum og hefur fyrirtækið einnig fengið 50 milljóna styrk frá Rannís fyrir þróun á nýrri tæknilausn fyrir tölvuleik sinn. Tölvuleikurinn ber vinnuheitið Annex þar sem spilari leiðir per- sónu sína í gegnum framtíðarheim sem hefur upplifað einhvers konar dómsdagsörlög. Innblásturinn að umhverfi leiksins kemur mikið frá íslenskri náttúru og norðurslóðum og er leikurinn keyrður á hinum svokallaða samtengda heimi eða „Single-Shard“ líkani þar sem allir spila í sama heimi frekar en á mis- munandi netþjónum. Hlutverk spilarans er þá að endurbyggja samfélagið og ólíkt mörgum slíkum bardaga- og hamfaraleikjum byggir velgengni í Annex mikið á góðu samstarfi milli þeirra sem spila leik- inn í rauntíma. „Við viljum vera með samvinnu frekar en samkeppni og til þess að búa til leik sem lifir í mörg ár eins og EVE Online og Minecraft, þar sem samvinnuumhverfið er svo sterkt, þá viljum við ýta undir það að styrkja tengsl á milli fólks sem verð- ur til þess að það eyði meiri tíma í leiknum.“ Leikurinn leyfir þar með leikmönnum að búa til sinn eigin fullkomna heim í ákveðnum tölvu- leikjasandkassa. Þrátt fyrir mikla spennu í tölvu- leikjaheiminum hefur Annex líka hlotið ákveðna gagnrýni fyrir að sleppa þessum samkeppniseigin- leika sem einkennir marga leiki þar sem persónan þarf að lifa af. „Það eru svo margir sem vilja setja samasem- merki á milli tölvuleikja og ofbeldis og að blóðþrýstingurinn þurfi að vera alveg í toppi. En það sem við viljum segja er að þessi nýja kyn- slóð tölvuleikja fjallar miklu meira um að vera saman og eiga samskipti. Það sem ég sé er að þessi tilfinning er miklu langlífari en samkeppnis- tilfinningin af því í fæstum tilfellum endar þú á því að þér líði illa eftir að hafa spilað Sims. En þér líður hins vegar illa ef þú tapar í World of Warcraft eða ert skotinn því það er svo neikvæð persónuleg upplifun að þú sért verri en einhver annar í leiknum,“ segir Gísli. Tæknilausnin sem Arctic Theory þróaði einnig snýr að ákveðinni veður- og landslagshermun þar sem veður breytist eftir því hvar spilar- inn er í leikjaheiminum og geta leik- menn einnig haft áhrif á landslagið í kringum sig. Ef leikmaður til dæmis heggur niður tré mun það vaxa aftur hægt og rólega. Ef stíf lu er komið fyrir á einum stað mun að sama skapi vatnsmagnið minnka á öðrum stað og ef leikmenn byrja á ákveðnu verkefni og hætta svo skyndilega viðhaldi á því mun það hægt og rólega brotna niður og hverfa. Gísli bendir á að nútíma tölvu- leikir virki einfaldlega eins og ný útgáfa af samfélagsmiðli. Þar sem eldri kynslóðir eru á Facebook og Instagram, hafa framleiðendur tekið eftir því að unga fólkið kemur heim úr skólanum og vinnur heimavinnu sína í gegnum spjall-flipann í tölvu- leiknum Fortnite. Á undanförnum árum hefur f jölspilunarmenn- ingin stækkað úr afmörkuðum hópi áhugamanna og blandast saman við samfélagsmiðla til að þróa nýjan raunveruleika. Áætluð prufuútgáfa af leiknum verður gefin út á næsta ári og mun Arctic Theory viðhalda og breyta leiknum eftir þörfum. Tækifæri fyrir ráðningar hafa þar með opnast og leitast félagið nú við að ráða í um 20 nýjar stöður, þar á meðal mark- aðsstjóra, listrænan stjórnanda, yfirframleiðanda, leikjahönnuð, leikjaforritara, framendaforritara, bakendaforritara og grafískan hönnuð. „Ég trúi því að þetta sé grunnur- inn að næstu stóru umturnun á því sem við þekkjum sem tölvu- leiki. Þetta sambland af samfélags- miðlum og tölvuleikjum mun búa til eitthvað nýtt sem ég hef kallað samfélagsheima og við hlökkum til að fá fólk í þetta sem er jafn spennt fyrir þessu og við,“ segir Gísli. n Vilja umturna tölvuleikjum eins og við þekkjum þá Gísli Konráðsson, einn af stofnendum Arctic Theory, segir tölvuleiki virka eins og nýja útgáfu af samfélagsmiðli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI arnartomas@frettabladid.is  Rannsóknarsetur verslunarinnar (RSV) hefur frá stofnun beitt sér fyrir því að fylgjast með þróun og breyt- ingum sem varða verslun og neyslu- hegðun og koma upplýsingum því tengdum til fyrirtækja og almenn- ings. Í gær fór í loftið nýr notenda- vefur, Sarpurinn, þar sem lagt er upp með að hafa upplýsingarnar allar á einum stað. „Þetta er lokaður notendavefur sem er hugsaður fyrir alla sem hafa einhvern áhuga á að fylgjast með tölfræðiupplýsingum og fréttum,“ segir Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir, forstöðumaður RSV. „Grunnhug- myndin okkar er að vera sá staður sem uppfyllir allar þarfir þeirra sem leita sér upplýsinga um verslun og þjónustu.“ Stærsta hlutverk RSV hefur til þessa verið og mun áfram verða að halda utan um kortaveltugögn. „Gögnin koma frá öllum færslu- hirðum sem sjá um hirðuveltu á Íslandi. Það hefur verið okkar helsta greiningarvara – það er mikið vitnað í kortaveltugögnin okkar í fjölmiðlum mánaðarlega, þau eru notuð af bönkunum og seðlabönk- unum,“ útskýrir Sigrún Ösp. „Okkar langtímamarkmið er líka að nálgast gögn frá erlendum færsluhirðum sem vantar í gagnasafnið okkar og eru eftir því sem við vitum best að herja á innlendan markað.“ Á vefnum verða einnig birtar greiningar sem RSV hefur unnið í samstarfi við ýmsa aðila, vísitölur sem og verkefni sem unnið er með tollsviði skattsins þar sem teknar eru saman upplýsingar um netverslun Íslendinga frá útlöndum. Meira um Sarpinn má finna á rsv.is. n Nýr upplýsingavefur verslunar og þjónustu Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir, forstöðumaður RSV Sverrir Birgir Sverrisson og Hrafn Norðdahl hafa verið ráðnir sölu- stjórar hjá Torgi ehf. Sverrir stofnaði fyrirtækin Ske og Skyn og byrjaði ungur að vinna sem verslunarstjóri hjá Smash áður en hann fór yfir til 365 miðla 22 ára að aldri. Hann býr yfir 13 ára starfs- reynslu í markaðsstörfum og mun starfa sem sölustjóri yfir prent- miðlum. „Fréttablaðið er mest lesna blað Íslands og við viljum halda því áfram með frábæru starfsfólki og við stefnum á að gera Fréttablaðið enn sterkara með betri dreifingu,“ segir Sverrir. Hrafn hefur unnið við sölu- mennsku frá 18 ára aldri en vann í hótelrekstri frá 2013-2018. Eftir það byrjaði Hrafn hjá DV þar sem hann vann í fimm ár. Hann hefur einnig unnið sem verktaki hjá bæði DV og Pressunni. „Ég hlakka til að halda áfram að vinna með frábæru fólki á lifandi vinnustað og hjálpa stórum sem smáum fyrirtækjum að stækka og finna sitt pláss á markaðnum,“ segir Hrafn. n Tveir sölustjórar ráðnir til Torgs Sverrir Birgir Sverrisson og Hrafn Norðdahl. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022 Fréttir 9FRÉTTABLAÐIÐ MARKAÐURINNFRÉTTABLAÐIÐMIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.