Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 9
Þessi nýja kynslóð
tölvuleikja fjallar
miklu meira um að
vera saman og eiga
samskipti.
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
Íslenska tölvuleikjafyrir-
tækið Arctic Theory vinnur
að framleiðslu nýs tölvuleiks
sem er sambland af fjölspilun
og samfélagsmiðli. Leikurinn
ber vinnuheitið Annex og er
væntanlegur á næsta ári.
helgisteinar@frettabladid.is
Gísli Konráðsson er einn af fjórum
stofnendum Arctic Theory, íslensks
tölvuleikjafyrirtækis sem stofnað
var í júní 2020 af honum, Matthíasi
Guðmundssyni, Snorra Sturlu-
syni og Jóni Bjarna Bjarnasyni, og
deila þeir yfir 100 ára samanlagðri
reynslu af tölvuleikjum sín á milli.
Stofnendurnir fjórir hafa einnig
komið að nokkrum metnaðarfyllstu
tölvuleikjum síðustu áratuga, þar á
meðal EVE Online og Sims og er
starfsemin rekin úr litlu húsi sem
byggt var árið 1908 við Strandgötu
í Hafnarfirði.
„Við viljum hafa þetta umhverfi
heimilislegt því okkur finnst mjög
mikilvægt að fólki líði vel í vinnunni.
Við erum að sjálfsögðu að vinna sem
miklir fagmenn og brautryðjendur
en á sama tíma skiptir vinnustaða-
menning miklu máli. Við lítum á
skrifstofuna hér sem hjartað, en við
viljum fá fólk úti um allan heim með
mismunandi bakgrunn,“ segir Gísli.
Hann bendir á að hugmyndafræði
fyrirtækisins byggist fyrst og fremst
á þremur þáttum: sköpunargáfu,
samvinnu og samfélagi og bætir við
að Covid-19 hafi einnig spilað stóran
þátt í breyttum tölvuleikjaheimi
þar sem fólk leitaði oft til sýndar-
heima fyrir nýsköpun í faraldrinum
eftir að hafa misst aðgang að raun-
heiminum. Á sama tíma er Arctic
Theory frábrugðið mörgum stærri
tölvuleikjaframleiðendum að því
leytinu til að fyrirtækið vill frekar
tryggja sér langtímaviðskiptavini
með tölvuleik sínum heldur en
skjótfenginn gróða.
Fyrr á árinu tryggði Arctic Theory
sér 260 milljóna króna fjármögnun
frá Brunni vaxtarsjóði II sem stýrt
er af Brunni Ventures og Lands-
bréfum og hefur fyrirtækið einnig
fengið 50 milljóna styrk frá Rannís
fyrir þróun á nýrri tæknilausn fyrir
tölvuleik sinn.
Tölvuleikurinn ber vinnuheitið
Annex þar sem spilari leiðir per-
sónu sína í gegnum framtíðarheim
sem hefur upplifað einhvers konar
dómsdagsörlög. Innblásturinn að
umhverfi leiksins kemur mikið frá
íslenskri náttúru og norðurslóðum
og er leikurinn keyrður á hinum
svokallaða samtengda heimi eða
„Single-Shard“ líkani þar sem allir
spila í sama heimi frekar en á mis-
munandi netþjónum. Hlutverk
spilarans er þá að endurbyggja
samfélagið og ólíkt mörgum slíkum
bardaga- og hamfaraleikjum byggir
velgengni í Annex mikið á góðu
samstarfi milli þeirra sem spila leik-
inn í rauntíma.
„Við viljum vera með samvinnu
frekar en samkeppni og til þess að
búa til leik sem lifir í mörg ár eins og
EVE Online og Minecraft, þar sem
samvinnuumhverfið er svo sterkt,
þá viljum við ýta undir það að
styrkja tengsl á milli fólks sem verð-
ur til þess að það eyði meiri tíma í
leiknum.“ Leikurinn leyfir þar með
leikmönnum að búa til sinn eigin
fullkomna heim í ákveðnum tölvu-
leikjasandkassa.
Þrátt fyrir mikla spennu í tölvu-
leikjaheiminum hefur Annex líka
hlotið ákveðna gagnrýni fyrir að
sleppa þessum samkeppniseigin-
leika sem einkennir marga leiki þar
sem persónan þarf að lifa af. „Það eru
svo margir sem vilja setja samasem-
merki á milli tölvuleikja og ofbeldis
og að blóðþrýstingurinn þurfi að
vera alveg í toppi. En það sem við
viljum segja er að þessi nýja kyn-
slóð tölvuleikja fjallar miklu meira
um að vera saman og eiga samskipti.
Það sem ég sé er að þessi tilfinning
er miklu langlífari en samkeppnis-
tilfinningin af því í fæstum tilfellum
endar þú á því að þér líði illa eftir
að hafa spilað Sims. En þér líður
hins vegar illa ef þú tapar í World of
Warcraft eða ert skotinn því það er
svo neikvæð persónuleg upplifun
að þú sért verri en einhver annar í
leiknum,“ segir Gísli.
Tæknilausnin sem Arctic Theory
þróaði einnig snýr að ákveðinni
veður- og landslagshermun þar sem
veður breytist eftir því hvar spilar-
inn er í leikjaheiminum og geta leik-
menn einnig haft áhrif á landslagið í
kringum sig. Ef leikmaður til dæmis
heggur niður tré mun það vaxa aftur
hægt og rólega. Ef stíf lu er komið
fyrir á einum stað mun að sama
skapi vatnsmagnið minnka á öðrum
stað og ef leikmenn byrja á ákveðnu
verkefni og hætta svo skyndilega
viðhaldi á því mun það hægt og
rólega brotna niður og hverfa.
Gísli bendir á að nútíma tölvu-
leikir virki einfaldlega eins og ný
útgáfa af samfélagsmiðli. Þar sem
eldri kynslóðir eru á Facebook og
Instagram, hafa framleiðendur tekið
eftir því að unga fólkið kemur heim
úr skólanum og vinnur heimavinnu
sína í gegnum spjall-flipann í tölvu-
leiknum Fortnite. Á undanförnum
árum hefur f jölspilunarmenn-
ingin stækkað úr afmörkuðum hópi
áhugamanna og blandast saman við
samfélagsmiðla til að þróa nýjan
raunveruleika.
Áætluð prufuútgáfa af leiknum
verður gefin út á næsta ári og mun
Arctic Theory viðhalda og breyta
leiknum eftir þörfum. Tækifæri
fyrir ráðningar hafa þar með opnast
og leitast félagið nú við að ráða í um
20 nýjar stöður, þar á meðal mark-
aðsstjóra, listrænan stjórnanda,
yfirframleiðanda, leikjahönnuð,
leikjaforritara, framendaforritara,
bakendaforritara og grafískan
hönnuð.
„Ég trúi því að þetta sé grunnur-
inn að næstu stóru umturnun á
því sem við þekkjum sem tölvu-
leiki. Þetta sambland af samfélags-
miðlum og tölvuleikjum mun búa
til eitthvað nýtt sem ég hef kallað
samfélagsheima og við hlökkum til
að fá fólk í þetta sem er jafn spennt
fyrir þessu og við,“ segir Gísli. n
Vilja umturna tölvuleikjum
eins og við þekkjum þá
Gísli Konráðsson, einn af stofnendum Arctic Theory, segir tölvuleiki virka eins og nýja útgáfu af samfélagsmiðli.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
arnartomas@frettabladid.is
Rannsóknarsetur verslunarinnar
(RSV) hefur frá stofnun beitt sér fyrir
því að fylgjast með þróun og breyt-
ingum sem varða verslun og neyslu-
hegðun og koma upplýsingum því
tengdum til fyrirtækja og almenn-
ings. Í gær fór í loftið nýr notenda-
vefur, Sarpurinn, þar sem lagt er upp
með að hafa upplýsingarnar allar á
einum stað.
„Þetta er lokaður notendavefur
sem er hugsaður fyrir alla sem hafa
einhvern áhuga á að fylgjast með
tölfræðiupplýsingum og fréttum,“
segir Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir,
forstöðumaður RSV. „Grunnhug-
myndin okkar er að vera sá staður
sem uppfyllir allar þarfir þeirra sem
leita sér upplýsinga um verslun og
þjónustu.“
Stærsta hlutverk RSV hefur til
þessa verið og mun áfram verða að
halda utan um kortaveltugögn.
„Gögnin koma frá öllum færslu-
hirðum sem sjá um hirðuveltu á
Íslandi. Það hefur verið okkar helsta
greiningarvara – það er mikið
vitnað í kortaveltugögnin okkar í
fjölmiðlum mánaðarlega, þau eru
notuð af bönkunum og seðlabönk-
unum,“ útskýrir Sigrún Ösp. „Okkar
langtímamarkmið er líka að nálgast
gögn frá erlendum færsluhirðum
sem vantar í gagnasafnið okkar og
eru eftir því sem við vitum best að
herja á innlendan markað.“
Á vefnum verða einnig birtar
greiningar sem RSV hefur unnið í
samstarfi við ýmsa aðila, vísitölur
sem og verkefni sem unnið er með
tollsviði skattsins þar sem teknar eru
saman upplýsingar um netverslun
Íslendinga frá útlöndum. Meira um
Sarpinn má finna á rsv.is. n
Nýr upplýsingavefur
verslunar og þjónustu
Sigrún Ösp
Sigurjónsdóttir,
forstöðumaður
RSV
Sverrir Birgir Sverrisson og Hrafn
Norðdahl hafa verið ráðnir sölu-
stjórar hjá Torgi ehf.
Sverrir stofnaði fyrirtækin Ske
og Skyn og byrjaði ungur að vinna
sem verslunarstjóri hjá Smash áður
en hann fór yfir til 365 miðla 22 ára
að aldri. Hann býr yfir 13 ára starfs-
reynslu í markaðsstörfum og mun
starfa sem sölustjóri yfir prent-
miðlum.
„Fréttablaðið er mest lesna blað
Íslands og við viljum halda því
áfram með frábæru starfsfólki og
við stefnum á að gera Fréttablaðið
enn sterkara með betri dreifingu,“
segir Sverrir.
Hrafn hefur unnið við sölu-
mennsku frá 18 ára aldri en vann í
hótelrekstri frá 2013-2018. Eftir það
byrjaði Hrafn hjá DV þar sem hann
vann í fimm ár. Hann hefur einnig
unnið sem verktaki hjá bæði DV og
Pressunni.
„Ég hlakka til að halda áfram að
vinna með frábæru fólki á lifandi
vinnustað og hjálpa stórum sem
smáum fyrirtækjum að stækka og
finna sitt pláss á markaðnum,“ segir
Hrafn. n
Tveir sölustjórar ráðnir til Torgs
Sverrir Birgir Sverrisson og Hrafn
Norðdahl. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022 Fréttir 9FRÉTTABLAÐIÐ MARKAÐURINNFRÉTTABLAÐIÐMIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022