Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 10

Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 10
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Ekki er að undra að erfitt sé að treysta stofnunum landsins. Eftir höfð- inu dansa limirnir. Svona van- hugsaðar ákvarðanir fjármála- ráðherra geta haft mikil og neikvæð áhrif á lífs- kjör okkar almennt. Ástæðan fyrir því að ríkið er talið áhættulaus skuldari er sú að ríkið getur skattlagt eða prentað sig út úr skuldavanda. Nú er ríkisstjórn Íslands búin að senda þau skilaboð að sparnaður sem byggist á ríkisábyrgð er ekki öruggur. Í ofanálag er ríkisábyrgð gagnvart fyrirtækjum eins og Lands- virkjun lítils virði. Í stað þess að leggja á fjármagns- tekjuskatt, veiðigjald og aðra auðlegðarskatta á yfirstéttina, sem færði þessum stjórnmálamönnum völdin þegar gjörningurinn var gerður, og þar með hlífa þeim sem minnst mega sín með því að standa við skuldbindingar sínar, ætlar ríkisstjórnin að láta lífeyrisþega borga skuldir óreiðustjórnmála og bera hér þyngstu byrðarnar vegna greiðslufalls sem vofir yfir eignum þeirra í formi íbúðabréfa með ríkisábyrgð. Yngri kynslóðir geta vonandi rétt sinn hlut síðar. Það er ljóst að tryggingafræðileg staða mun versna hjá mörgum lífeyrissjóðum sem mögu- lega getur leitt til þess að skerða þurfi lífeyri vegna þessarar aðgerðar. Við slæma stöðu eldri borgara hangir svo mis- kunnarlaus skerðingadraugur almannatrygginga. Þetta eru kaldar kveðjur sem ríkisstjórnin sendir eldri hópum samfélagsins. Með þessum lagakrókum eru allar líkur á að fjármálamarkaðir leggi hærri álögur á allan almenning til frambúðar, með hærri grunnvöxtum og hækkuðu vaxtaálagi, þar sem lof- orð íslenska ríkisins eru lítils virði. Hvað er ríkið að spara þegar ljóst þykir að hækka þurfi framlög inn í almannatryggingar á móti auk kostnaðar sem skert lánshæfi hefur í för með sér og hærra vaxtastig? Hvar er verðmiðinn á því? Ég er enginn sérstakur aðdáandi íslenska lífeyris- sjóðakerfisins en mér er mjög annt um afkomu eldra fólks og framtíðarkynslóða. Svona vanhugsaðar ákvarðanir fjármálaráðherra geta haft mikil og neikvæð áhrif á lífskjör okkar almennt. Ég fagna því að vakin sé athygli á þessum löngu fyrirséða vanda og varðandi vandamál eigum við að ræða lausnir en ekki að skapa glundroða með óábyrgum hætti sem getur haft ófyrirséð áhrif á lífskjör okkar til lengri og skemmri tíma. n Skuldir óreiðustjórnmála Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR Það er sama hvar borið er niður í mót- sögnum samtímans. Á sama tíma og umhverfisváin vomir yfir komandi kynslóðum og þörf fyrir vistvænar samgöngur hefur aldrei verið meiri – skerðir strætó þjónustu. Á sama tíma og vísindin færa okkur stað- reyndir um stórskaðlegar afleiðingar svifryks af völdum nagladekkja segir Umhverfisstofnun að fjöldi bíleigenda í Reykjavík hafi farið á nagla- dekk löngu áður en það var heimilt, í gær. Á sama tíma og horft hefur verið til Íslands og árangurs okkar í forvarnamálum síðustu ár, leggur varfærnasti stjórnmálaflokkur landsins, Framsóknarflokkurinn, til að ÁTVR fái heimild til að selja áfengi á sunnudögum. Á sama tíma og fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að Íslandsbanki verði seldur á næstunni virðist engin pólitísk samstaða um söluna innan ríkisstjórnarinnar. Á sama tíma og Bjarni Benediktsson ber sér á brjóst vegna vanda Íbúðalánasjóðs liggur fyrir að hann er að hluta ábyrgur fyrir þeirri stöðu sem upp er komin. Á sama tíma og Svandís Svavarsdóttir kennir sig við náttúru og umhverfisvernd sniðgengur nefnd á hennar vegum atkvæðagreiðslu um griðastaði hvala í Suður-Atlantshafi. Ekki er að undra að erfitt sé að treysta stofn- unum landsins. Eftir höfðinu dansa limirnir. Ef ríkið hegðar sér eins og það gerir og fer ekki að góðum siðum, því ættu þá borgararnir að gera það? Í kjölfar hrunsins var hrópað hallelúja og varð til öflugt ákall um nýjan samfélagssáttmála. Hann átti að byggja á nýju trausti. Niðurstaðan nokkrum árum síðar er öndverð. Við lifum einn dag í einu þar sem furðu lostinn almúginn gleymir sér helst ef boðið er upp á brauð og leika. Nú er það slagurinn um formennsku í Sjálf- stæðisflokknum sem skemmtir múgnum. Við sitjum uppi með banka sem guma af eigin græðgi sem erfitt er að skilja að sé ekki brot á lögum: að það þyki í lagi að knésetja fólk sem skuldar, en inneign fái enga rentu. Þjóðkirkjan er í kreppu vegna þeirra hneyksl- ismála sem skekja hana. Þau snúa mörg hver að ofbeldi og eru í fullkominni andstöðu við sjálfan grundvallarboðskap kirkjunnar. Útlendingaandúð, óttahyggjan alræmda, grass erar í upplausnarástandinu sem einkennir samtímann. Ef við erum öll ringluð og allt of margir hafa það skítt, freistast jaðarsettir til að reyna að gleyma eigin auma hlutskipti með því að finna óvin í ókunnugu fólki, sparka út í loftið. Gósentíð vantraustsins er runnin upp. Inni í þokunni er ýmislegt að varast. n Brauð og leikar Björn Þorláksson bth @frettabladid.is benediktboas@frettabladid.is gar@frettabladid.is Ráðningarbann Loksins, loksins ætlar Reykjavíkur- borg að setja örlitlar hömlur á ráðn- ingar. Borgin hefur verið dugleg að ráða inn fólk, sérstaklega fjölmiðla- fólk sem vill komast í inniskó og langan kaffitíma. Þannig hrúgast inn tölvupóstar á ritstjórnir frá fyrrverandi fréttastjórum og verð- launablaðamönnum um Ánægju með sumarfrístund eða Innköllun á sykurlausum Opal með saltlakkrís- bragði. Enginn vill verða upplýs- ingafulltrúi þótt nauðsynlegt starf sé og því þarf borgin að hækka launin fyrir þessa blaðamenn. Þetta er ekkert draumastarf og því þarf borgin að borga. Og ætli ritstjórn borgarinnar sé ekki sú næststærsta – á eftir Landspítalanum. Esperantó, nei takk! Vá er fyrir dyrum íslenskra esperantista þessa dagana. Hefur fækkað svo í félagi þess ágæta hóps áhugafólks um hið alþjóðlega tungumál að ekki er þar lengur bolmagn til að halda úti húsakosti fyrir yfirgripsmikinn bókakost sem safnast hefur upp á langri veg- ferð. Töldu esperantistar upplagt að fela Landsbókasafninu þessa arfleifð sína til varðveislu en þar á bæ sagði fólk nei takk. Spurningin er núna hvort efnt verði til mót- mælagöngu að bókasafni hinna vanþakklátu þar sem hrópuð verða vígorð á esperantó í von um að mæta skilningi. n MIÐVIKUDAGA KL. 19.30 SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.