Fréttablaðið - 02.11.2022, Qupperneq 10
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Ekki er að
undra að
erfitt sé
að treysta
stofnunum
landsins.
Eftir höfð-
inu dansa
limirnir.
Svona van-
hugsaðar
ákvarðanir
fjármála-
ráðherra
geta haft
mikil og
neikvæð
áhrif á lífs-
kjör okkar
almennt.
Ástæðan fyrir því að ríkið er talið áhættulaus
skuldari er sú að ríkið getur skattlagt eða prentað
sig út úr skuldavanda. Nú er ríkisstjórn Íslands
búin að senda þau skilaboð að sparnaður sem
byggist á ríkisábyrgð er ekki öruggur. Í ofanálag er
ríkisábyrgð gagnvart fyrirtækjum eins og Lands-
virkjun lítils virði. Í stað þess að leggja á fjármagns-
tekjuskatt, veiðigjald og aðra auðlegðarskatta á
yfirstéttina, sem færði þessum stjórnmálamönnum
völdin þegar gjörningurinn var gerður, og þar með
hlífa þeim sem minnst mega sín með því að standa
við skuldbindingar sínar, ætlar ríkisstjórnin að
láta lífeyrisþega borga skuldir óreiðustjórnmála
og bera hér þyngstu byrðarnar vegna greiðslufalls
sem vofir yfir eignum þeirra í formi íbúðabréfa með
ríkisábyrgð. Yngri kynslóðir geta vonandi rétt sinn
hlut síðar. Það er ljóst að tryggingafræðileg staða
mun versna hjá mörgum lífeyrissjóðum sem mögu-
lega getur leitt til þess að skerða þurfi lífeyri vegna
þessarar aðgerðar.
Við slæma stöðu eldri borgara hangir svo mis-
kunnarlaus skerðingadraugur almannatrygginga.
Þetta eru kaldar kveðjur sem ríkisstjórnin sendir
eldri hópum samfélagsins. Með þessum lagakrókum
eru allar líkur á að fjármálamarkaðir leggi hærri
álögur á allan almenning til frambúðar, með hærri
grunnvöxtum og hækkuðu vaxtaálagi, þar sem lof-
orð íslenska ríkisins eru lítils virði. Hvað er ríkið að
spara þegar ljóst þykir að hækka þurfi framlög inn í
almannatryggingar á móti auk kostnaðar sem skert
lánshæfi hefur í för með sér og hærra vaxtastig?
Hvar er verðmiðinn á því?
Ég er enginn sérstakur aðdáandi íslenska lífeyris-
sjóðakerfisins en mér er mjög annt um afkomu eldra
fólks og framtíðarkynslóða. Svona vanhugsaðar
ákvarðanir fjármálaráðherra geta haft mikil og
neikvæð áhrif á lífskjör okkar almennt. Ég fagna því
að vakin sé athygli á þessum löngu fyrirséða vanda
og varðandi vandamál eigum við að ræða lausnir en
ekki að skapa glundroða með óábyrgum hætti sem
getur haft ófyrirséð áhrif á lífskjör okkar til lengri
og skemmri tíma. n
Skuldir óreiðustjórnmála
Ragnar Þór
Ingólfsson
formaður VR
Það er sama hvar borið er niður í mót-
sögnum samtímans.
Á sama tíma og umhverfisváin
vomir yfir komandi kynslóðum og
þörf fyrir vistvænar samgöngur hefur
aldrei verið meiri – skerðir strætó þjónustu.
Á sama tíma og vísindin færa okkur stað-
reyndir um stórskaðlegar afleiðingar svifryks af
völdum nagladekkja segir Umhverfisstofnun að
fjöldi bíleigenda í Reykjavík hafi farið á nagla-
dekk löngu áður en það var heimilt, í gær.
Á sama tíma og horft hefur verið til Íslands
og árangurs okkar í forvarnamálum síðustu ár,
leggur varfærnasti stjórnmálaflokkur landsins,
Framsóknarflokkurinn, til að ÁTVR fái heimild
til að selja áfengi á sunnudögum.
Á sama tíma og fjárlagafrumvarpið gerir ráð
fyrir að Íslandsbanki verði seldur á næstunni
virðist engin pólitísk samstaða um söluna innan
ríkisstjórnarinnar.
Á sama tíma og Bjarni Benediktsson ber sér á
brjóst vegna vanda Íbúðalánasjóðs liggur fyrir
að hann er að hluta ábyrgur fyrir þeirri stöðu
sem upp er komin.
Á sama tíma og Svandís Svavarsdóttir kennir
sig við náttúru og umhverfisvernd sniðgengur
nefnd á hennar vegum atkvæðagreiðslu um
griðastaði hvala í Suður-Atlantshafi.
Ekki er að undra að erfitt sé að treysta stofn-
unum landsins. Eftir höfðinu dansa limirnir. Ef
ríkið hegðar sér eins og það gerir og fer ekki að
góðum siðum, því ættu þá borgararnir að gera
það?
Í kjölfar hrunsins var hrópað hallelúja og varð
til öflugt ákall um nýjan samfélagssáttmála.
Hann átti að byggja á nýju trausti. Niðurstaðan
nokkrum árum síðar er öndverð. Við lifum
einn dag í einu þar sem furðu lostinn almúginn
gleymir sér helst ef boðið er upp á brauð og leika.
Nú er það slagurinn um formennsku í Sjálf-
stæðisflokknum sem skemmtir múgnum.
Við sitjum uppi með banka sem guma af eigin
græðgi sem erfitt er að skilja að sé ekki brot á
lögum: að það þyki í lagi að knésetja fólk sem
skuldar, en inneign fái enga rentu.
Þjóðkirkjan er í kreppu vegna þeirra hneyksl-
ismála sem skekja hana. Þau snúa mörg hver að
ofbeldi og eru í fullkominni andstöðu við sjálfan
grundvallarboðskap kirkjunnar.
Útlendingaandúð, óttahyggjan alræmda,
grass erar í upplausnarástandinu sem einkennir
samtímann. Ef við erum öll ringluð og allt of
margir hafa það skítt, freistast jaðarsettir til að
reyna að gleyma eigin auma hlutskipti með því
að finna óvin í ókunnugu fólki, sparka út í loftið.
Gósentíð vantraustsins er runnin upp.
Inni í þokunni er ýmislegt að varast. n
Brauð og leikar
Björn
Þorláksson
bth
@frettabladid.is
benediktboas@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
Ráðningarbann
Loksins, loksins ætlar Reykjavíkur-
borg að setja örlitlar hömlur á ráðn-
ingar. Borgin hefur verið dugleg að
ráða inn fólk, sérstaklega fjölmiðla-
fólk sem vill komast í inniskó og
langan kaffitíma. Þannig hrúgast
inn tölvupóstar á ritstjórnir frá
fyrrverandi fréttastjórum og verð-
launablaðamönnum um Ánægju
með sumarfrístund eða Innköllun á
sykurlausum Opal með saltlakkrís-
bragði. Enginn vill verða upplýs-
ingafulltrúi þótt nauðsynlegt starf
sé og því þarf borgin að hækka
launin fyrir þessa blaðamenn. Þetta
er ekkert draumastarf og því þarf
borgin að borga. Og ætli ritstjórn
borgarinnar sé ekki sú næststærsta
– á eftir Landspítalanum.
Esperantó, nei takk!
Vá er fyrir dyrum íslenskra
esperantista þessa dagana. Hefur
fækkað svo í félagi þess ágæta hóps
áhugafólks um hið alþjóðlega
tungumál að ekki er þar lengur
bolmagn til að halda úti húsakosti
fyrir yfirgripsmikinn bókakost
sem safnast hefur upp á langri veg-
ferð. Töldu esperantistar upplagt
að fela Landsbókasafninu þessa
arfleifð sína til varðveislu en þar
á bæ sagði fólk nei takk. Spurningin
er núna hvort efnt verði til mót-
mælagöngu að bókasafni hinna
vanþakklátu þar sem hrópuð verða
vígorð á esperantó í von um að
mæta skilningi. n
MIÐVIKUDAGA KL. 19.30
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR