Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 11

Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 11
KYNN INGARBLAÐ ALLT MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022 Þrjú hundruð þráða rúmfötin okkar eru æðislega mjúk og þau eru líka flest straufrí sem fólk kann að meta, segir Hildur Þórðardóttir verslunarstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Rúmföt sem hæfa kóngafólki Hillurnar eru að fyllast fyrir jólavertíðina hjá Rúmföt.is, stærstu sérverslun landsins með rúmföt. Verslunin býður upp á afar vönduð rúmföt á sanngjörnu verði. 2 Leiðir hafa skilið hjá Gisele Bünd chen og Tom Brady. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY thordisg@frettabladid.is Ofurparið Gisele Bündchen og Tom Brady einblínir á velferð barna sinna nú þegar þau hafa ákveðið að skilja eftir þrettán ára hjóna- band. Saman eiga þau Benjamín, 12 ára, og Vivian, 9 ára, en auk þess er Gisele stjúpmóðir Jacks, 15 ára sonar Toms úr fyrra hjónabandi. Bæði hafa þau lýst yfir vilja til góðrar samvinnu í foreldra- hlutverkinu svo börnin bíði sem minnstan skaða af skilnaðinum. „Við nutum þeirrar blessunar að eignast yndisleg börn sem verða ætíð miðpunktur alheimsins í okkar tilveru og í sameiningu sjáum við til þess að þau njóti áfram ástar og athygli sem þau þurfa og verðskulda,“ sagði Tom í yfirlýsingu vegna skilnaðarins. Vildu meira af Tom heima Ofurfyrirsætan Gisele tók í sama streng og sagði í sinni yfirlýsingu: „Fremst í forgangsröðinni eru, og hafa alltaf verið, börnin okkar sem ég elska af öllu hjarta.“ Orsök skilnaðarins er ósætti Gisele við að Tom ætli að halda áfram sem atvinnumaður í amer- ískum fótbolta. Í nýlegu viðtali við tímaritið Elle sagði hún: „Þetta er afar ofbeldisfull íþrótt og við krakkarnir viljum að Tom sé meira til staðar. Við höfum rætt þetta fram og til baka en þegar upp er staðið verða allir að taka sínar ákvarðanir.“ n Velferð barnanna í hávegum höfð QUICK CALM Vellíðan - skerpa Fæst í Fjarðarkaup, www.celsus.is FLJÓTVIRKT FRÁBÆR MEÐMÆLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.