Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022
Þrjú hundruð þráða rúmfötin okkar eru æðislega mjúk og þau eru líka flest straufrí sem fólk kann að meta, segir Hildur Þórðardóttir verslunarstjóri.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Rúmföt sem hæfa kóngafólki
Hillurnar eru að fyllast fyrir jólavertíðina hjá Rúmföt.is, stærstu sérverslun landsins með
rúmföt. Verslunin býður upp á afar vönduð rúmföt á sanngjörnu verði. 2
Leiðir hafa skilið hjá Gisele Bünd chen
og Tom Brady. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
thordisg@frettabladid.is
Ofurparið Gisele Bündchen og Tom
Brady einblínir á velferð barna
sinna nú þegar þau hafa ákveðið
að skilja eftir þrettán ára hjóna-
band. Saman eiga þau Benjamín,
12 ára, og Vivian, 9 ára, en auk þess
er Gisele stjúpmóðir Jacks, 15 ára
sonar Toms úr fyrra hjónabandi.
Bæði hafa þau lýst yfir vilja
til góðrar samvinnu í foreldra-
hlutverkinu svo börnin bíði sem
minnstan skaða af skilnaðinum.
„Við nutum þeirrar blessunar að
eignast yndisleg börn sem verða
ætíð miðpunktur alheimsins í
okkar tilveru og í sameiningu
sjáum við til þess að þau njóti áfram
ástar og athygli sem þau þurfa og
verðskulda,“ sagði Tom í yfirlýsingu
vegna skilnaðarins.
Vildu meira af Tom heima
Ofurfyrirsætan Gisele tók í sama
streng og sagði í sinni yfirlýsingu:
„Fremst í forgangsröðinni eru, og
hafa alltaf verið, börnin okkar sem
ég elska af öllu hjarta.“
Orsök skilnaðarins er ósætti
Gisele við að Tom ætli að halda
áfram sem atvinnumaður í amer-
ískum fótbolta. Í nýlegu viðtali við
tímaritið Elle sagði hún:
„Þetta er afar ofbeldisfull íþrótt
og við krakkarnir viljum að Tom
sé meira til staðar. Við höfum rætt
þetta fram og til baka en þegar upp
er staðið verða allir að taka sínar
ákvarðanir.“ n
Velferð barnanna
í hávegum höfð
QUICK CALM
Vellíðan - skerpa
Fæst í Fjarðarkaup, www.celsus.is
FLJÓTVIRKT
FRÁBÆR
MEÐMÆLI