Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 14

Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 14
Helgi Guðmundsson húsa- smiður byrjaði að taka inn D-vítamín orkublöndu með burnirót frá ICEHERBS fyrir nokkrum árum. Hann segir blönduna gefa sér orku og hafi góð áhrif á sig almennt. „Ég byrjaði fyrst að taka þetta inn til að halda sjóninni við, en ég er fæddur og uppalinn í sveit og vandist við að borða mikið af krækiberjum sem ég held að hafi stuðlað að því að ég hef alltaf verið með góða sjón. En ég er viss um að D-vítamín orkublandan hafi líka sitt að segja við að styrkja sjónina enda er ég orðinn 81 árs gamall og ekki enn farinn að nota gleraugu,“ segir Helgi. Bætt orka bætir liðina Helgi er menntaður húsasmiður og starfaði lengi sem slíkur. „Ég var orðinn nokkuð slæmur í hnjánum á tíma enda var ég starf- andi smiður, lá mikið á hnjánum í vinnunni og bólgnaði upp í þeim. Fyrir nokkrum árum kynntist ég bætiefnunum frá ICEHERBS og fannst spennandi að prófa þau. Enda er ég vanur fjallagrösum, blá- berjum og krækiberjum frá jurta- ríkinu úr sveitinni fyrir vestan og trúi því að það sé rétt að treysta á náttúruna. Þegar ég byrjaði að taka inn D-vítamín blönduna frá ICE- HERBS fannst mér hún gera mér gott að ýmsu leyti. Ég er núna hættur að vinna en það er þó ekki langt síðan ég var að fikta í þessu að gamni. Það eru kannski um þrjú eða fjögur ár síðan ég var að leggja parket, þó þetta gamall. Ég tel mig nú nokkuð góðan og er viss um að D-vítamín orkublandan hafi haft góð áhrif á liðina en líka orkuna. Meiri orka gerir mér kleift að hreyfa mig reglulega, eða um 3-4 sinnum í viku. Þá fer ég 2-3 í viku í ræktina og geng 1-2 í viku. Það hefur hjálpað til við að minnka bólgurn- ar í hnjánum og bæta líðanina. Ég finn að ég er orkumeiri almennt og þetta hefur áhrif á hvort annað, orkan og líðanin. Eftir því sem maður hreyfir sig meira þá eykst orkan. Ég hef líka haldið sjóninni, eða hún hefur alla vega ekki versnað í þessu tíu ár,“ segir Helgi. Fann fyrir mun „Ég tek D-vítamín orkublönduna allt árið um kring en inntakan er ekki svo stíf að ég taki þetta með mér í hverja helgarferð. En svona flesta daga. Ég fann þó mun á mér, eftir að hafa farið í mánaðarferð norður í land án þess að taka bæti- efnið með mér. Ég er ekki frá því að ég hafi verið stirðari eftir á, en það batnaði fljótt aftur eftir að ég byrjaði að taka þetta inn aftur.“ Við fáum einfaldlega ekki nóg D-vítamín er eitt mikilvægasta vítamínið sem líkaminn þarfnast. Það hjálpar okkur að vinna kalk úr fæðunni til þess að fyrirbyggja kalkskort og hefur jákvæð áhrif á sjónheilsu á ýmsan hátt. Skortur á því getur valdið ýmsum kvillum eins og sársauka í liðum og í verstu tilfellum alvarlegum heilsufars- vandamálum. Í mörgum tilfellum þegar liðvandamál orsakast af D- vítamínskorti má snúa vandanum við með inntöku á D-vítamín bætiefni. D-vítamín fáum við úr fæðu og úr sólarljósinu en fjöldi rannsókna sýnir fram á að nútímamaðurinn fær ekki nóg af D-vítamíni úr fæð- unni. Við sem búum á norðlægum slóðum erum enn verr sett því við fáum líka of lítið af sólarljósi, hvað þá í svartasta skammdeginu. Því er lykilatriði að taka inn D-vítamín sem bætiefni til þess að tryggja nægilegt magn. Einstök orkublanda Orkublandan frá ICEHERBS inni- heldur 2.000 einingar af D-víta- míni og hreina íslenska burnirót. Orkublandan er sniðin fyrir þá sem glíma við skammdegisslen. ICEHERBS fær mikið af góðum viðbrögðum frá neytendum um hvað varan gerir þeim gott. Flestallir finna mun á sér eftir að hafa tekið Orkublönduna dag- lega í 5-10 daga, og fólk vaknar mun hressara. Hið norræna ginseng Burnirótin er ein magnaðasta lækninga- jurt sem vex á Íslandi og eitt best geymda leyndarmál jurta- ríkisins. Jurtin er oft kölluð hið norræna ginseng en hún er þekkt fyrir einstök áhrif sín á aukna orku, einbeitingu og úthald. Áður fyrr var hún meira að segja notuð til að auka frammi- stöðu hermanna. Klínískar rann- sóknir sýna einnig fram á að hún hjálpar fólki að vinna gegn stressi og álagi. Burnirótin er oft notuð til að vinna gegn orkuleysi, sleni og depurð og þannig vinnur hún vel með D-vítamíninu. Innihaldsefni sem Orkubland- an frá ICEHERBS samanstendur af eru algert dúndur fyrir aukna orku, snerpu og úthald. Í hverju hylki eru 2000 einingar af D-víta- míni sem er viðmiðunargildi fyrir efri mörk daglegrar meðalneyslu á D-vítamíni. Burnirótin í Orku- blöndunni er handtínd á Íslandi, þurrkuð, verkuð og mulin. Öll bætiefni ICEHERBS eru framleidd á Blönduósi. n ICEHERBS fæst í öllum betri matvöruverslunum, apótekum, heilsuvöruverslunum og í glæsi- legri vefverslun iceherbs.is. Þetta verður bara mjög spennandi. Við höfum sjaldan verið með jafnöflugt lið og nú og höfum náð að mynda sterkasta liðið sem við höfum farið með á heimsmeistaramót. Friðleifur Friðleifsson Ísland á tíu fulltrúa á heims- meistaramótinu í utan- vegahlaupum sem fram fer í Chiang Mai í Taílandi á laugardaginn en íslenski hópurinn kom á áfangastað í gær eftir sólarhringsferðalag frá Íslandi. gummih@frettabladid.is Allir sterkustu utanvegahlaup- arar heims taka þátt í mótinu en keppt verður í tveimur vega- lengdum í fjalllendi Chiang Mai, 40 kílómetrum og 80 kílómetrum. Friðleifur Friðleifsson er liðsstjóri íslenska liðsins sem í eru fimm konur og fimm karlar. Konurnar eru: Andrea Kolbeinsdóttir, Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, Elísabet Margeirsdóttir, Íris Anna Skúla- dóttir og Rannveig Oddsdóttir. Í karlaliðinu eru: Halldór Hermann Jónsson, Sigurjón Ernir Sturluson, Þorbergur Ingi Jónsson, Þorsteinn Roy Jóhannsson og Þórólfur Ingi Þórsson. „Þetta verður bara mjög spenn- andi. Við höfum sjaldan verið með jafnöflugt lið og nú. Við höfum náð að mynda sterkasta liðið sem við höfum farið með á heimsmeistara- mót og ég er virkilega ánægður með það,“ segir Friðleifur. Keppt verður bæði í liða- og einstaklingskeppni í Taílandi við krefjandi aðstæður þar sem það er bæði heitt og rakt á þessum slóðum. Andrea er rísandi stjarna „Við tökum þátt í báðum keppn- unum og verðum með fimm kepp- endur í hvorri grein. Þrír karlar og tvær konur hlaupa 80 kílómetra og þrjár konur og tveir karlar keppa í 40 kílómetra hlaupinu. Í 40 kíló- metra hlaupinu erum við til að mynda með Andreu Kolbeinsdótt- ur sem er rísandi stjarna í þessum utanvegahlaupaheimi. Hún er skráð til leiks í sæti númer átta af þeim sem taka þátt í hlaupinu. Það verður mjög fróðlegt að sjá hvernig henni mun ganga gegn stelpum sem hafa komist á verðlaunapall í stórum hörkuhlaupum í Evrópu og Ameríku,“ segir Friðleifur. Spurður um væntingar hans til síns fólks segir Friðleifur: „Númer eitt, tvö og þrjú er að allir geri sitt allra besta eins og alltaf. Við förum þannig séð ekki á þetta mót frekar en fyrri daginn með háleit mark- mið um verðlaunasæti. Þetta er í raun og veru verkefni sem snýr aðallega að því að gera hlaupurum á Íslandi kleift að taka þátt í svona stórum viðburði eins og heims- meistaramótið í utanvegahlaupum er. Við leggjum mikið upp úr því að fara með eins marga og Frjáls- íþróttasambandið ræður fjárhags- lega við og að mynda meiri stemn- ingu í kringum utanvegahlaup á Íslandi. Við viljum gera þetta að eftirsóknarverðu verkefni og að ýta vonandi á einhverja takka með að fá fljótari og betri hlaupara eftir því sem árin líða,“ segir Friðleifur. Gífurlega vinsælt á Íslandi Er þetta ekki vaxandi íþróttagrein hér á landi? „Utanvegahlaup er að verða gífurlega vinsæl á Íslandi og ef við höfum tök á að senda tíu hlaupara á heimsmeistaramót þá hikum við ekki við að gera það. Þetta er í leiðinni hvatning fyrir yngri hlaupara að það sé svona stórt og flott verkefni í boði. Svo er aldrei að vita hvernig þetta sport þróast. Ég hef fulla trú á því að þessi íþrótt endi á Ólympíuleikunum innan tíðar,“ segir Friðleifur. Friðleifur segir að undirbúning- urinn fyrir heimsmeistaramótið hafi aðallega verið í höndum hlauparanna sjálfra. „Þeir hafa verið mjög duglegir. Fjórir úr liðinu eru frá Akureyri og aðrir frá höfuðborgarsvæðinu. Þau hafa ýmist verið að nota fjöllin í Eyjafirði eða Esjuna og önnur fjöll hér í kringum höfuð- borgina til þess að reyna að ná sér í einhverja hæðarmetra. Þetta snýst oft um það að reyna að verða sé út um klifurmetra. Það hefur bara gengið vel. Við vitum hvernig aðstæður munu verða. Hitinn verður í kringum 30 gráður og mikill raki bíður hlauparanna í Taílandi. Aðstæður á Íslandi til að stunda utanvegahlaup eru frá- bærar. Hitinn er aldrei of mikill en það getur stundum blásið svo- lítið. Á Taílandi erum við að fara í aðstæður sem hlaupararnir hafa nánast aldrei komið í. Það mun reyna vel á hlauparana, ekki bara á okkur Íslendingana, heldur alla frá Evrópu,“ segir Friðleifur. Hann hefur ekki nákvæma tölu yfir fjölda keppenda sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu en þeir eru um 3.000 talsins frá 50 þjóðum. „Það má segja frá því að við sendum jafnstórt lið til leiks eins og til dæmis Japan og stefnan er sú að vera með lið á hverju einasta HM sem við getum. Þetta er upp- byggingarstarf sem mun taka einhver ár en við erum komin með Andreu Kolbeinsdóttur sem er mjög hátt skrifuð.“ n Krefjandi aðstæður bíða í Taílandi Íslenski hópurinn sem tekur þátt á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupi. MYND/AÐSEND Áttræður og orkumikill Helgi Guðmundsson hefur tekið D-vítamín orkublöndu frá ICEHERBS í um árabil og segir áhrifin ekki hafa látið á sér standa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 4 kynningarblað A L LT 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.