Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 14
Helgi Guðmundsson húsa-
smiður byrjaði að taka inn
D-vítamín orkublöndu með
burnirót frá ICEHERBS fyrir
nokkrum árum. Hann segir
blönduna gefa sér orku og
hafi góð áhrif á sig almennt.
„Ég byrjaði fyrst að taka þetta
inn til að halda sjóninni við, en
ég er fæddur og uppalinn í sveit
og vandist við að borða mikið af
krækiberjum sem ég held að hafi
stuðlað að því að ég hef alltaf verið
með góða sjón. En ég er viss um að
D-vítamín orkublandan hafi líka
sitt að segja við að styrkja sjónina
enda er ég orðinn 81 árs gamall og
ekki enn farinn að nota gleraugu,“
segir Helgi.
Bætt orka bætir liðina
Helgi er menntaður húsasmiður
og starfaði lengi sem slíkur. „Ég
var orðinn nokkuð slæmur í
hnjánum á tíma enda var ég starf-
andi smiður, lá mikið á hnjánum í
vinnunni og bólgnaði upp í þeim.
Fyrir nokkrum árum kynntist ég
bætiefnunum frá ICEHERBS og
fannst spennandi að prófa þau.
Enda er ég vanur fjallagrösum, blá-
berjum og krækiberjum frá jurta-
ríkinu úr sveitinni fyrir vestan og
trúi því að það sé rétt að treysta á
náttúruna. Þegar ég byrjaði að taka
inn D-vítamín blönduna frá ICE-
HERBS fannst mér hún gera mér
gott að ýmsu leyti.
Ég er núna hættur að vinna en
það er þó ekki langt síðan ég var
að fikta í þessu að gamni. Það eru
kannski um þrjú eða fjögur ár
síðan ég var að leggja parket, þó
þetta gamall. Ég tel mig nú nokkuð
góðan og er viss um að D-vítamín
orkublandan hafi haft góð áhrif á
liðina en líka orkuna. Meiri orka
gerir mér kleift að hreyfa mig
reglulega, eða um 3-4 sinnum í
viku. Þá fer ég 2-3 í viku í ræktina
og geng 1-2 í viku. Það hefur
hjálpað til við að minnka bólgurn-
ar í hnjánum og bæta líðanina.
Ég finn að ég er orkumeiri
almennt og þetta hefur áhrif á
hvort annað, orkan og líðanin.
Eftir því sem maður hreyfir sig
meira þá eykst orkan. Ég hef líka
haldið sjóninni, eða hún hefur alla
vega ekki versnað í þessu tíu ár,“
segir Helgi.
Fann fyrir mun
„Ég tek D-vítamín orkublönduna
allt árið um kring en inntakan er
ekki svo stíf að ég taki þetta með
mér í hverja helgarferð. En svona
flesta daga. Ég fann þó mun á mér,
eftir að hafa farið í mánaðarferð
norður í land án þess að taka bæti-
efnið með mér. Ég er ekki frá því
að ég hafi verið stirðari eftir á, en
það batnaði fljótt aftur eftir að ég
byrjaði að taka þetta inn aftur.“
Við fáum einfaldlega ekki nóg
D-vítamín er eitt mikilvægasta
vítamínið sem líkaminn þarfnast.
Það hjálpar okkur að vinna kalk
úr fæðunni til þess að fyrirbyggja
kalkskort og hefur jákvæð áhrif á
sjónheilsu á ýmsan hátt. Skortur
á því getur valdið ýmsum kvillum
eins og sársauka í liðum og í verstu
tilfellum alvarlegum heilsufars-
vandamálum. Í mörgum tilfellum
þegar liðvandamál orsakast af D-
vítamínskorti má snúa vandanum
við með inntöku á D-vítamín
bætiefni.
D-vítamín fáum við úr fæðu og
úr sólarljósinu en fjöldi rannsókna
sýnir fram á að nútímamaðurinn
fær ekki nóg af D-vítamíni úr fæð-
unni. Við sem búum á norðlægum
slóðum erum enn verr sett því við
fáum líka of lítið af sólarljósi, hvað
þá í svartasta skammdeginu. Því er
lykilatriði að taka inn D-vítamín
sem bætiefni til þess að tryggja
nægilegt magn.
Einstök orkublanda
Orkublandan frá ICEHERBS inni-
heldur 2.000 einingar af D-víta-
míni og hreina íslenska burnirót.
Orkublandan er sniðin fyrir þá
sem glíma við skammdegisslen.
ICEHERBS fær mikið af góðum
viðbrögðum frá neytendum um
hvað varan gerir þeim gott.
Flestallir finna mun á
sér eftir að hafa tekið
Orkublönduna dag-
lega í 5-10 daga, og
fólk vaknar mun
hressara.
Hið norræna ginseng
Burnirótin er ein
magnaðasta lækninga-
jurt sem vex á Íslandi
og eitt best geymda
leyndarmál jurta-
ríkisins. Jurtin er oft
kölluð hið norræna
ginseng en hún er
þekkt fyrir einstök áhrif
sín á aukna orku, einbeitingu og
úthald. Áður fyrr var hún meira
að segja notuð til að auka frammi-
stöðu hermanna. Klínískar rann-
sóknir sýna einnig fram á að hún
hjálpar fólki að vinna gegn stressi
og álagi. Burnirótin er oft notuð til
að vinna gegn orkuleysi, sleni og
depurð og þannig vinnur hún vel
með D-vítamíninu.
Innihaldsefni sem Orkubland-
an frá ICEHERBS samanstendur
af eru algert dúndur fyrir aukna
orku, snerpu og úthald. Í hverju
hylki eru 2000 einingar af D-víta-
míni sem er viðmiðunargildi fyrir
efri mörk daglegrar meðalneyslu
á D-vítamíni. Burnirótin í Orku-
blöndunni er handtínd á Íslandi,
þurrkuð, verkuð og mulin. Öll
bætiefni ICEHERBS eru framleidd
á Blönduósi. n
ICEHERBS fæst í öllum betri
matvöruverslunum, apótekum,
heilsuvöruverslunum og í glæsi-
legri vefverslun iceherbs.is.
Þetta verður bara
mjög spennandi.
Við höfum sjaldan verið
með jafnöflugt lið og nú
og höfum náð að mynda
sterkasta liðið sem við
höfum farið með á
heimsmeistaramót.
Friðleifur Friðleifsson
Ísland á tíu fulltrúa á heims-
meistaramótinu í utan-
vegahlaupum sem fram
fer í Chiang Mai í Taílandi
á laugardaginn en íslenski
hópurinn kom á áfangastað í
gær eftir sólarhringsferðalag
frá Íslandi.
gummih@frettabladid.is
Allir sterkustu utanvegahlaup-
arar heims taka þátt í mótinu
en keppt verður í tveimur vega-
lengdum í fjalllendi Chiang Mai,
40 kílómetrum og 80 kílómetrum.
Friðleifur Friðleifsson er liðsstjóri
íslenska liðsins sem í eru fimm
konur og fimm karlar. Konurnar
eru: Andrea Kolbeinsdóttir, Sigþóra
Brynja Kristjánsdóttir, Elísabet
Margeirsdóttir, Íris Anna Skúla-
dóttir og Rannveig Oddsdóttir. Í
karlaliðinu eru: Halldór Hermann
Jónsson, Sigurjón Ernir Sturluson,
Þorbergur Ingi Jónsson, Þorsteinn
Roy Jóhannsson og Þórólfur Ingi
Þórsson.
„Þetta verður bara mjög spenn-
andi. Við höfum sjaldan verið með
jafnöflugt lið og nú. Við höfum náð
að mynda sterkasta liðið sem við
höfum farið með á heimsmeistara-
mót og ég er virkilega ánægður
með það,“ segir Friðleifur.
Keppt verður bæði í liða- og
einstaklingskeppni í Taílandi við
krefjandi aðstæður þar sem það
er bæði heitt og rakt á þessum
slóðum.
Andrea er rísandi stjarna
„Við tökum þátt í báðum keppn-
unum og verðum með fimm kepp-
endur í hvorri grein. Þrír karlar og
tvær konur hlaupa 80 kílómetra og
þrjár konur og tveir karlar keppa
í 40 kílómetra hlaupinu. Í 40 kíló-
metra hlaupinu erum við til að
mynda með Andreu Kolbeinsdótt-
ur sem er rísandi stjarna í þessum
utanvegahlaupaheimi. Hún er
skráð til leiks í sæti númer átta af
þeim sem taka þátt í hlaupinu. Það
verður mjög fróðlegt að sjá hvernig
henni mun ganga gegn stelpum
sem hafa komist á verðlaunapall í
stórum hörkuhlaupum í Evrópu og
Ameríku,“ segir Friðleifur.
Spurður um væntingar hans til
síns fólks segir Friðleifur: „Númer
eitt, tvö og þrjú er að allir geri sitt
allra besta eins og alltaf. Við förum
þannig séð ekki á þetta mót frekar
en fyrri daginn með háleit mark-
mið um verðlaunasæti. Þetta er
í raun og veru verkefni sem snýr
aðallega að því að gera hlaupurum
á Íslandi kleift að taka þátt í svona
stórum viðburði eins og heims-
meistaramótið í utanvegahlaupum
er. Við leggjum mikið upp úr því
að fara með eins marga og Frjáls-
íþróttasambandið ræður fjárhags-
lega við og að mynda meiri stemn-
ingu í kringum utanvegahlaup á
Íslandi. Við viljum gera þetta að
eftirsóknarverðu verkefni og að ýta
vonandi á einhverja takka með að
fá fljótari og betri hlaupara eftir því
sem árin líða,“ segir Friðleifur.
Gífurlega vinsælt á Íslandi
Er þetta ekki vaxandi íþróttagrein
hér á landi?
„Utanvegahlaup er að verða
gífurlega vinsæl á Íslandi og ef við
höfum tök á að senda tíu hlaupara
á heimsmeistaramót þá hikum
við ekki við að gera það. Þetta
er í leiðinni hvatning fyrir yngri
hlaupara að það sé svona stórt og
flott verkefni í boði. Svo er aldrei
að vita hvernig þetta sport þróast.
Ég hef fulla trú á því að þessi íþrótt
endi á Ólympíuleikunum innan
tíðar,“ segir Friðleifur.
Friðleifur segir að undirbúning-
urinn fyrir heimsmeistaramótið
hafi aðallega verið í höndum
hlauparanna sjálfra.
„Þeir hafa verið mjög duglegir.
Fjórir úr liðinu eru frá Akureyri
og aðrir frá höfuðborgarsvæðinu.
Þau hafa ýmist verið að nota
fjöllin í Eyjafirði eða Esjuna og
önnur fjöll hér í kringum höfuð-
borgina til þess að reyna að ná
sér í einhverja hæðarmetra. Þetta
snýst oft um það að reyna að
verða sé út um klifurmetra. Það
hefur bara gengið vel. Við vitum
hvernig aðstæður munu verða.
Hitinn verður í kringum 30 gráður
og mikill raki bíður hlauparanna
í Taílandi. Aðstæður á Íslandi til
að stunda utanvegahlaup eru frá-
bærar. Hitinn er aldrei of mikill en
það getur stundum blásið svo-
lítið. Á Taílandi erum við að fara í
aðstæður sem hlaupararnir hafa
nánast aldrei komið í. Það mun
reyna vel á hlauparana, ekki bara
á okkur Íslendingana, heldur alla
frá Evrópu,“ segir Friðleifur. Hann
hefur ekki nákvæma tölu yfir
fjölda keppenda sem tekur þátt í
heimsmeistaramótinu en þeir eru
um 3.000 talsins frá 50 þjóðum.
„Það má segja frá því að við
sendum jafnstórt lið til leiks eins
og til dæmis Japan og stefnan er
sú að vera með lið á hverju einasta
HM sem við getum. Þetta er upp-
byggingarstarf sem mun taka
einhver ár en við erum komin með
Andreu Kolbeinsdóttur sem er
mjög hátt skrifuð.“ n
Krefjandi aðstæður
bíða í Taílandi
Íslenski hópurinn sem tekur þátt á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupi. MYND/AÐSEND
Áttræður og orkumikill
Helgi Guðmundsson hefur tekið D-vítamín orkublöndu frá ICEHERBS í um
árabil og segir áhrifin ekki hafa látið á sér standa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
4 kynningarblað A L LT 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR