Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 16

Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 16
Toyota bZ3 svipar mjög mikið til SDN-tilraunabílsins sem kynntur var í desember í fyrra. MYNDIR/TOYOTA Innanrými bZ3 er ólíkt bZ4X með lóðréttum skjá og nýjum miðjustokki. Toyota hefur formlega kynnt til sögunnar bZ3-rafbílinn sem annan rafbíl merkisins. Bíllinn verður á sama grunni og bZ4X og líkt og hann er bZ3 mjög líkur tilrauna- bílnum sem kynntur var í desember í fyrra, þótt sjá megi áherslu frá bZ4X. njall@frettabladid.is Afturrúðan nær langt aftur sem gefur bZ3 hlaðbakslag. Ólíkt bZ4X er hleðsluportið á aftanverðum bílnum í stað framhluta. Það er helst að sjá breytingar frá bZ4X þegar komið er inn í bílinn en miðjuskjárinn er lóðréttur í bZ3. Einnig er miðjustokkurinn alveg ný hönnun þó að stýrið sé í laginu eins og veðhlaupabraut eins og í bZ4X. Toyota hefur ekki gefið mikið upp um tæknimál bílsins annað en að hann sé á sama eTNGA- undirvagni og bZ4X. Það þýðir að hann er líklega með sams konar rafhlöðu og mótorum og hann, en þar er val um 201 hestafls framdrif eða 215 hestafla fjór- hjóladrif. Toyota segir þó að BYD sé samstarfsaðili um nýja bílinn sem gefur til kynna að rafhlaðan gæti komið frá kínverska fram- leiðandanum. Drægi bílsins er betra en í bZ4X enda bíllinn með minni loftmótstöðu, en uppgefið drægi Toyota er 600 km. Toyota bZ3 er 4.725 mm langur, 1.835 mm breiður og 1.475 mm á hæð sem gerir hann svipaðan að stærð og Toyota Camry sem hefur verið tekinn úr framleiðslu. n Toyota kynnir bZ3-rafbílinn njall@frettabladid.is Það styttist óðum í frumsýningu nýs Volvo EX90 sem leysa mun XC90 af hólmi. Bíllinn verður frumsýndur 9. nóvember og Volvo hefur sent frá sér myndir sem gefa innsýn í það hvernig hann mun líta út að innan. Myndin sýnir, auk upplýsinga- skjás og lóðrétts marg miðlunar- skjás, hnappalaust stýri og miðju- stokk. Því lítur út fyrir að Volvo fari sömu leið og Tesla í að lágmarka fjölda hnappa í og að öllu sé stjórn- að frá stóra skjánum í miðjustokki. Það kemur kannski ekki á óvart þegar horft er til Polestar 3 sem frumsýndur var nýlega en hann verður smíðaður á sama undirvagni og í sömu verksmiðju og EX90. EX90 verður mjög tæknivæddur og þá sérstaklega öryggisbúnaði en myndavélar munu fylgjast með öllu sem fram fer kringum bílinn. n Engum hnöppum að hneppa í EX90 Hvort talan í mælaborðinu, sem sýnir 488 kílómetra drægi, sé það sem bíll- inn kemst á rafhlöðunni mun koma í ljós í næstu viku. MYND/VOLVO Fyrsta útgáfan verður fjórhjóladrifin og hestöflin 321 en drægið betra en í Ioniq 5 vegna loftmótstöðunnar. MYND/HYUNDAI njall@frettabladid.is Áætlað er að fyrsta sending á Hyundai Ioniq 6 fólksbílnum komi til landsins í vor, eða um mánaðamótin mars/apríl. Forsala á bílnum hefst núna í nóvember en verð á bílnum hérlendis er ekki tilbúið. Á Bretlandseyjum mun fyrsta útgáfa bílsins kosta frá 9,1 milljón króna. Hyundai Ioniq 6 mun nota sama E-GMP-undirvagn og tækni og Ioniq 5 en fyrsta útgáfa hans kemur með 77,4 kWst rafhlöðunni og verður með fjórhjóladrifi og 321 hestafli með 605 Nm togi. Hann verður með 800 volta rafkerfi með möguleika á allt að 350 kW hrað- hleðslu. Ioniq 6 mun keppa beint við Tesla Model 3 og Polestar 2 en hann er þó aðeins stærri. Lengdin er 4.855 mm en það sem er mest um vert er 2.950 mm hjólhaf sem ætti að gefa gott rými innandyra og þá sérstaklega í aftursætum. Meðal staðalbúnaðar í fyrstu útgáfu verða upphituð aftursæti, upphitað stýri, opnanlegt sólþak og rafdrifin afturlúga. n Hyundai Ioniq 6 kemur í vor Samstarfsaðili Toyota um bZ3 er BYD sem gefur til kynna að rafhlaðan gæti komið frá kínverska framleið- andanum. ERT ÞÚ EKKI NÓGU HARÐUR? Man Power er hannað fyrir karlmenn sem vilja auka orku og úthald í rúminu. Man Power inniheldur gingseng ásamt amínósýrum sem hafa jákvæð áhrif á þessa þætti. M an P ow er fæ st í Fj ar ða rk au p, H ag ka up o g a p ót ek um . 2 BÍ L A BL A ÐI Ð 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.