Fréttablaðið - 02.11.2022, Qupperneq 16
Toyota bZ3 svipar mjög mikið til SDN-tilraunabílsins sem kynntur var í desember í fyrra. MYNDIR/TOYOTA
Innanrými bZ3 er ólíkt bZ4X með lóðréttum skjá og nýjum miðjustokki.
Toyota hefur formlega kynnt
til sögunnar bZ3-rafbílinn
sem annan rafbíl merkisins.
Bíllinn verður á sama grunni
og bZ4X og líkt og hann er
bZ3 mjög líkur tilrauna-
bílnum sem kynntur var í
desember í fyrra, þótt sjá
megi áherslu frá bZ4X.
njall@frettabladid.is
Afturrúðan nær langt aftur sem
gefur bZ3 hlaðbakslag. Ólíkt bZ4X
er hleðsluportið á aftanverðum
bílnum í stað framhluta. Það er
helst að sjá breytingar frá bZ4X
þegar komið er inn í bílinn en
miðjuskjárinn er lóðréttur í bZ3.
Einnig er miðjustokkurinn alveg
ný hönnun þó að stýrið sé í laginu
eins og veðhlaupabraut eins og í
bZ4X.
Toyota hefur ekki gefið mikið
upp um tæknimál bílsins annað
en að hann sé á sama eTNGA-
undirvagni og bZ4X. Það þýðir að
hann er líklega með sams konar
rafhlöðu og mótorum og hann,
en þar er val um 201 hestafls
framdrif eða 215 hestafla fjór-
hjóladrif. Toyota segir þó að BYD
sé samstarfsaðili um nýja bílinn
sem gefur til kynna að rafhlaðan
gæti komið frá kínverska fram-
leiðandanum. Drægi bílsins er
betra en í bZ4X enda bíllinn með
minni loftmótstöðu, en uppgefið
drægi Toyota er 600 km. Toyota
bZ3 er 4.725 mm langur, 1.835 mm
breiður og 1.475 mm á hæð sem
gerir hann svipaðan að stærð og
Toyota Camry sem hefur verið
tekinn úr framleiðslu. n
Toyota kynnir bZ3-rafbílinn
njall@frettabladid.is
Það styttist óðum í frumsýningu
nýs Volvo EX90 sem leysa mun
XC90 af hólmi. Bíllinn verður
frumsýndur 9. nóvember og Volvo
hefur sent frá sér myndir sem gefa
innsýn í það hvernig hann mun
líta út að innan.
Myndin sýnir, auk upplýsinga-
skjás og lóðrétts marg miðlunar-
skjás, hnappalaust stýri og miðju-
stokk. Því lítur út fyrir að Volvo fari
sömu leið og Tesla í að lágmarka
fjölda hnappa í og að öllu sé stjórn-
að frá stóra skjánum í miðjustokki.
Það kemur kannski ekki á óvart
þegar horft er til Polestar 3 sem
frumsýndur var nýlega en hann
verður smíðaður á sama undirvagni
og í sömu verksmiðju og EX90.
EX90 verður mjög tæknivæddur
og þá sérstaklega öryggisbúnaði
en myndavélar munu fylgjast
með öllu sem fram fer kringum
bílinn. n
Engum hnöppum að hneppa í EX90
Hvort talan í mælaborðinu, sem sýnir 488 kílómetra drægi, sé það sem bíll-
inn kemst á rafhlöðunni mun koma í ljós í næstu viku. MYND/VOLVO
Fyrsta útgáfan verður fjórhjóladrifin og hestöflin 321 en drægið betra en í
Ioniq 5 vegna loftmótstöðunnar. MYND/HYUNDAI
njall@frettabladid.is
Áætlað er að fyrsta sending á
Hyundai Ioniq 6 fólksbílnum
komi til landsins í vor, eða um
mánaðamótin mars/apríl. Forsala
á bílnum hefst núna í nóvember
en verð á bílnum hérlendis er ekki
tilbúið. Á Bretlandseyjum mun
fyrsta útgáfa bílsins kosta frá 9,1
milljón króna.
Hyundai Ioniq 6 mun nota
sama E-GMP-undirvagn og tækni
og Ioniq 5 en fyrsta útgáfa hans
kemur með 77,4 kWst rafhlöðunni
og verður með fjórhjóladrifi og 321
hestafli með 605 Nm togi. Hann
verður með 800 volta rafkerfi með
möguleika á allt að 350 kW hrað-
hleðslu. Ioniq 6 mun keppa beint
við Tesla Model 3 og Polestar 2 en
hann er þó aðeins stærri. Lengdin
er 4.855 mm en það sem er mest
um vert er 2.950 mm hjólhaf sem
ætti að gefa gott rými innandyra
og þá sérstaklega í aftursætum.
Meðal staðalbúnaðar í fyrstu
útgáfu verða upphituð aftursæti,
upphitað stýri, opnanlegt sólþak
og rafdrifin afturlúga. n
Hyundai Ioniq 6 kemur í vor
Samstarfsaðili
Toyota um bZ3 er
BYD sem gefur til kynna
að rafhlaðan gæti komið
frá kínverska framleið-
andanum.
ERT ÞÚ EKKI
NÓGU HARÐUR?
Man Power er hannað fyrir karlmenn sem
vilja auka orku og úthald í rúminu.
Man Power inniheldur gingseng ásamt
amínósýrum sem hafa jákvæð áhrif á þessa
þætti.
M
an
P
ow
er
fæ
st
í
Fj
ar
ða
rk
au
p,
H
ag
ka
up
o
g
a
p
ót
ek
um
.
2 BÍ L A BL A ÐI Ð 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR