Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 21
Margmiðlunar-
skjárinn fyrir miðju
er staðsettur frekar
ofarlega svo auðvelt er að
lesa á hann og þráðlaust
Apple CarPlay ásamt
Android Auto er staðal-
búnaður.
Það fer vel um
tvo farþega í
aftursætum en
sá þriðji fær ekki
mikið fótapláss
vegna fyrir-
ferðar miðju-
stokks.
Fjöðrunin ræður vel við gróft undirlag en hún sé í mýkri kantinum.
metrum áður en hann kveikir á
bensínvélinni.
Að innan er bíllinn nokkuð svip-
aður hefðbundinni Corollu nema
að þú situr hærra og sérð betur
út. Sætin eru nokkuð þægileg og
auðvelt að stilla þau og áferð og
efnisval er í betri kantinum. Marg-
miðlunarskjárinn fyrir miðju er
staðsettur frekar ofarlega svo það
er auðvelt að lesa á hann og þráð-
laust Apple CarPlay ásamt Android
Auto er staðalbúnaður. Það er
kostur hversu hurðir opnast vel
og aðgengi um bílinn er gott enda
hæðin þannig að maður sest beint
inn í hann. Vert er að benda á að
allar hliðarhurðir bílsins eru með
viðvörun gagnvart aðkomandi
reiðhjólafólki. Aftursæti eru einn-
ig þægileg, alla vega sætin fyrir
aftan framsætin en það verður
örugglega þröngt um miðjufar-
þegann ef hann er kominn fram
yfir fermingaraldur. Auk þess er
miðjustokkur í gólfi nokkuð fyrir-
ferðarmikill.
Hann gefur nokkuð góða tilfinn-
ingu fyrir stýrinu en leggst aðeins á
hornin í beygjunum. Á móti kemur
að hann ræður vel við ójöfnur eins
og prófað var á nokkrum malar-
vegum á leiðinni. Rafdrifið fjór-
hjóladrifið virkar á allt að 70-100
km hraða en ekki fyrir ofan það,
svo ef bíllinn er ekki í einhverjum
rallíakstri ætti það að duga vel
hérlendis. Við akstur utan vega
tókst einu sinni að reka bílinn upp
undir og við nánari skoðun var það
neðsti hluti pústkerfisins, sem er
frekar neðarlega aftast í bílnum.
Þótt Corolla Cross sé búinn
CVT-sjálfskiptingu er hún alltaf
að verða betri og betri og í Corolla
Cross er hún frekar hljóðlát
mestallan tímann. Það er ekki
nema þegar botna þarf bílinn í
framúrakstri eða þess háttar sem
hvinurinn frá henni heyrist en
það er líka vegna þess að bíllinn er
sjálfur tiltölulega hljóðlátur og laus
við vind- eða veghljóð að mestu.
Verðið á Corolla Cross í grunn-
inn er 6.590.000 kr. á sjálfskiptum
en bæta þarf 400.000 kr. við til
að fá fjórhjóladrifið. Óhætt er að
tala um Nissan Qashqai sem einn
aðalkeppinaut Corolla Cross hér-
lendis sem erlendis. Þegar horft
er á grunnverð kostar sjálfskiptur
Qashqai 5.990.000 kr. en Corolla
Cross er aðeins fáanlegur sjálf-
skiptur. Sjálfskiptur Peugeot 3008
er á 6.240.000 kr. svo segja má að
verðið á Corolla Cross sé í hærri
kantinum. Það lagast þó honum í
hag þegar horft er á búnað í dýrari
útfærslum en Launch Edition-
útgáfan er búin glerþaki, leður-
innréttingu, JBL-hljómkerfi, 360
gráðu myndavél og bílastæðaað-
stoð. n
BÍLABÚÐ BENNA
KOLEFNISJAFNAR SSANGYONG
Bílasala Suðurnesja
Reykjanesbæ
Njarðarbraut �
Sími: ��� ����
Ib bílar
Selfoss
Fossnes A
Sími: ��� ����
Bb, betri bílar
Akureyri
Njarðarnesi ��
Sími: ��� ����
Bílabúð Benna
Reykjavík
Krókháls �
Sími: ��� ����
Alvöru jeppi
• Byggður á grind
• Hátt og lágt drif
• Sparneytin dísel vél
• Læstur millikassi
• Sjálfstæð fjöðrun
• � manna
• Læst afturdrif*
• � t dráttargeta
• � ára ábyrgð
* Í Adventure og Ultimate. | ** Verð á Rexton Premium gildir út desember ����.
Birt m
eð fyrirvara um
m
ynd- og textabrengl. Bílabúð Benna áskilur sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara.
Rexton Ultimate
Rexton
Verð frá �.���.��� kr.**
Bíll á mynd: Rexton Ultimate með ��” hækkunarpakka.
benni.is
BÍLABLAÐIÐ 7MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022