Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 21

Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 21
Margmiðlunar- skjárinn fyrir miðju er staðsettur frekar ofarlega svo auðvelt er að lesa á hann og þráðlaust Apple CarPlay ásamt Android Auto er staðal- búnaður. Það fer vel um tvo farþega í aftursætum en sá þriðji fær ekki mikið fótapláss vegna fyrir- ferðar miðju- stokks. Fjöðrunin ræður vel við gróft undirlag en hún sé í mýkri kantinum. metrum áður en hann kveikir á bensínvélinni. Að innan er bíllinn nokkuð svip- aður hefðbundinni Corollu nema að þú situr hærra og sérð betur út. Sætin eru nokkuð þægileg og auðvelt að stilla þau og áferð og efnisval er í betri kantinum. Marg- miðlunarskjárinn fyrir miðju er staðsettur frekar ofarlega svo það er auðvelt að lesa á hann og þráð- laust Apple CarPlay ásamt Android Auto er staðalbúnaður. Það er kostur hversu hurðir opnast vel og aðgengi um bílinn er gott enda hæðin þannig að maður sest beint inn í hann. Vert er að benda á að allar hliðarhurðir bílsins eru með viðvörun gagnvart aðkomandi reiðhjólafólki. Aftursæti eru einn- ig þægileg, alla vega sætin fyrir aftan framsætin en það verður örugglega þröngt um miðjufar- þegann ef hann er kominn fram yfir fermingaraldur. Auk þess er miðjustokkur í gólfi nokkuð fyrir- ferðarmikill. Hann gefur nokkuð góða tilfinn- ingu fyrir stýrinu en leggst aðeins á hornin í beygjunum. Á móti kemur að hann ræður vel við ójöfnur eins og prófað var á nokkrum malar- vegum á leiðinni. Rafdrifið fjór- hjóladrifið virkar á allt að 70-100 km hraða en ekki fyrir ofan það, svo ef bíllinn er ekki í einhverjum rallíakstri ætti það að duga vel hérlendis. Við akstur utan vega tókst einu sinni að reka bílinn upp undir og við nánari skoðun var það neðsti hluti pústkerfisins, sem er frekar neðarlega aftast í bílnum. Þótt Corolla Cross sé búinn CVT-sjálfskiptingu er hún alltaf að verða betri og betri og í Corolla Cross er hún frekar hljóðlát mestallan tímann. Það er ekki nema þegar botna þarf bílinn í framúrakstri eða þess háttar sem hvinurinn frá henni heyrist en það er líka vegna þess að bíllinn er sjálfur tiltölulega hljóðlátur og laus við vind- eða veghljóð að mestu. Verðið á Corolla Cross í grunn- inn er 6.590.000 kr. á sjálfskiptum en bæta þarf 400.000 kr. við til að fá fjórhjóladrifið. Óhætt er að tala um Nissan Qashqai sem einn aðalkeppinaut Corolla Cross hér- lendis sem erlendis. Þegar horft er á grunnverð kostar sjálfskiptur Qashqai 5.990.000 kr. en Corolla Cross er aðeins fáanlegur sjálf- skiptur. Sjálfskiptur Peugeot 3008 er á 6.240.000 kr. svo segja má að verðið á Corolla Cross sé í hærri kantinum. Það lagast þó honum í hag þegar horft er á búnað í dýrari útfærslum en Launch Edition- útgáfan er búin glerþaki, leður- innréttingu, JBL-hljómkerfi, 360 gráðu myndavél og bílastæðaað- stoð. n BÍLABÚÐ BENNA KOLEFNISJAFNAR SSANGYONG Bílasala Suðurnesja Reykjanesbæ Njarðarbraut � Sími: ��� ���� Ib bílar Selfoss Fossnes A Sími: ��� ���� Bb, betri bílar Akureyri Njarðarnesi �� Sími: ��� ���� Bílabúð Benna Reykjavík Krókháls � Sími: ��� ���� Alvöru jeppi • Byggður á grind • Hátt og lágt drif • Sparneytin dísel vél • Læstur millikassi • Sjálfstæð fjöðrun • � manna • Læst afturdrif* • � t dráttargeta • � ára ábyrgð * Í Adventure og Ultimate. | ** Verð á Rexton Premium gildir út desember ����. Birt m eð fyrirvara um m ynd- og textabrengl. Bílabúð Benna áskilur sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Rexton Ultimate Rexton Verð frá �.���.��� kr.** Bíll á mynd: Rexton Ultimate með ��” hækkunarpakka. benni.is BÍLABLAÐIÐ 7MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.