Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 26

Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 26
njall@frettabladid.is Arch-mótorhjólamerkið er í eigu leikarans Keanu Reeves og Gard Hollinger en það kynnti á dögunum Arch 1s-sporthjólið. Þetta er annað hjól merkisins en fyrir nokkrum árum kynnti Arch KRGT-1 sem var aðeins á færi mjög fárra. Þótt að Arch 1s sé ekki af ódýrari gerðinni er það fyrsta alvöru tilraun merkisins til að koma með mótorhjól á markað. Það er margt sérstakt við hjólið, eins og sérhannaður, einfaldur afturgaffall sem var sérsmíðaður af Arch. Vélin er engin smásmíð enda 2.032 rsm S&S Cycle með sex gíra kassa. Hestaflatalan er ekki gefin upp en togið er 156 newtonmetrar. Íhlutir eru af bestu gferð og má þar nefna Dual I-bremsur með sex stimpla dælum, Öhlins-fjöðrun, og koltrrefja BST-felgur. Hjólið mun kosta litlar 18,5 milljónir í Banda- ríkjunum. n Arch kynnir 1s-mótorhjólið Arch var stofnað fyrir 10 árum og er 1s annað mótorhjól merkisins. njall@frettabladid.is Zundapp-merkið hefur nú aftur hafið framleiðslu á mótorhjólum og að þessu sinni í upphaflega heimalandi merkisins, Þýskalandi. Merkið kynnti á dögunum nýtt hjól sem kallast Zundapp ZXA 500 á Intermot-mótorhjólasýningunni í Köln. Zundapp ZXA 500 er fyrsta hjól merkisins í næstum 40 ár eða síðan 1984. Hjólið er nokkurs konar ævintýraferðahjól og minnir dálítið á Ducati Multi strada í útliti. Hjólið er fyrir A2-flokk réttinda enda með 476 rsm vél sem skilar 47 hestöflum. Það er búið 18 lítra tanki og er undir 200 kílóum að þyngd svo það mun keppa við hjól eins og Honda CB 500X. Zundapp framleiddi mótorhjól frá 1917 og voru þau vinsæl stríðstól meðal nasista í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir stríð var framleiðslan mest í tvígengishjólum og skellinöðrum. Zundapp var selt kínverskum eigendum á miðjum níunda ára- tugnum en var keypt af Dieter Neumeyer árið 2017 en hann er barnabarn upphaflega stofnand- ans, Fritz Ludwig Neumeyer. Síðan þá hefur merkið framleitt rafdrifin reiðhjól en nú er komið að mótor- hjólunum enn á ný, með aðstoð frá Kína til að byrja með. n Zundapp-merkið snýr aftur frá heimalandinu Þýskalandi Þótt hjólið sé þýskt er grunn- urinn eins og vél, gírkassi og grind upprunin frá kínverska framleiðand- anum MITT sem framleiðir 53O TT ferðahjólið. MYND/ MOTO-STATION njall@frettabladid.is Ducati hefur frumsýnt nýja útgáfu Panigale V4 R ofurhjólsins sem er með meira afli en áður. Með hjól- inu verður bilið milli götuhjóla og keppnishjóla enn minna því um 240 hestafla ofurhjól er að ræða. Vélin notast við DLC-stimpla eins og almennt er í Formúlu 1. Til viðbótar við hefðbundnar akstursstillingar í aksturstölu hjólsins er nú komnar tvær í viðbót, „Full“ fyrir fulla orku og „Low“ sem færir af lið niður í 160 hestöfl til að hjólið sé þægilegra í almennum götuakstri. Hvert Panigale V4 R verður númerað og fær skjöld á stýrishausinn með framleiðslunúmeri hjólsins. n Ducati kynnir 240 hestafla V4 R Yfirbyggingin er með nýjum litum og felgurnar eru svartar eins og á keppnishjólunum. 522 4600 www.krokur.net Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja. Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina. Krókur býður m.a. uppá: • Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum Taktu Krók á leiðarenda Vesturhraun 5 210 Garðabær á þinni leið 12 BÍ L A BL A ÐI Ð 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.