Fréttablaðið - 02.11.2022, Side 26
njall@frettabladid.is
Arch-mótorhjólamerkið er í
eigu leikarans Keanu Reeves og
Gard Hollinger en það kynnti á
dögunum Arch 1s-sporthjólið.
Þetta er annað hjól merkisins en
fyrir nokkrum árum kynnti Arch
KRGT-1 sem var aðeins á færi
mjög fárra. Þótt að Arch 1s sé ekki
af ódýrari gerðinni er það fyrsta
alvöru tilraun merkisins til að
koma með mótorhjól á markað.
Það er margt sérstakt við hjólið,
eins og sérhannaður, einfaldur
afturgaffall sem var sérsmíðaður af
Arch. Vélin er engin smásmíð enda
2.032 rsm S&S Cycle með sex gíra
kassa. Hestaflatalan er ekki gefin
upp en togið er 156 newtonmetrar.
Íhlutir eru af bestu gferð og má
þar nefna Dual I-bremsur með sex
stimpla dælum, Öhlins-fjöðrun, og
koltrrefja BST-felgur. Hjólið mun
kosta litlar 18,5 milljónir í Banda-
ríkjunum. n
Arch kynnir
1s-mótorhjólið
Arch var stofnað fyrir 10 árum og er
1s annað mótorhjól merkisins.
njall@frettabladid.is
Zundapp-merkið hefur nú aftur
hafið framleiðslu á mótorhjólum
og að þessu sinni í upphaflega
heimalandi merkisins, Þýskalandi.
Merkið kynnti á dögunum nýtt
hjól sem kallast Zundapp ZXA 500
á Intermot-mótorhjólasýningunni
í Köln.
Zundapp ZXA 500 er fyrsta hjól
merkisins í næstum 40 ár eða síðan
1984. Hjólið er nokkurs konar
ævintýraferðahjól og minnir
dálítið á Ducati Multi strada í útliti.
Hjólið er fyrir A2-flokk réttinda
enda með 476 rsm vél sem skilar
47 hestöflum. Það er búið 18 lítra
tanki og er undir 200 kílóum að
þyngd svo það mun keppa við hjól
eins og Honda CB 500X. Zundapp
framleiddi mótorhjól frá 1917 og
voru þau vinsæl stríðstól meðal
nasista í seinni heimsstyrjöldinni.
Eftir stríð var framleiðslan mest í
tvígengishjólum og skellinöðrum.
Zundapp var selt kínverskum
eigendum á miðjum níunda ára-
tugnum en var keypt af Dieter
Neumeyer árið 2017 en hann er
barnabarn upphaflega stofnand-
ans, Fritz Ludwig Neumeyer. Síðan
þá hefur merkið framleitt rafdrifin
reiðhjól en nú er komið að mótor-
hjólunum enn á ný, með aðstoð frá
Kína til að byrja með. n
Zundapp-merkið snýr aftur frá heimalandinu Þýskalandi
Þótt hjólið sé
þýskt er grunn-
urinn eins og
vél, gírkassi og
grind upprunin
frá kínverska
framleiðand-
anum MITT sem
framleiðir 53O
TT ferðahjólið.
MYND/
MOTO-STATION
njall@frettabladid.is
Ducati hefur frumsýnt nýja útgáfu
Panigale V4 R ofurhjólsins sem er
með meira afli en áður. Með hjól-
inu verður bilið milli götuhjóla og
keppnishjóla enn minna því um
240 hestafla ofurhjól er að ræða.
Vélin notast við DLC-stimpla eins
og almennt er í Formúlu 1.
Til viðbótar við hefðbundnar
akstursstillingar í aksturstölu
hjólsins er nú komnar tvær í
viðbót, „Full“ fyrir fulla orku og
„Low“ sem færir af lið niður í 160
hestöfl til að hjólið sé þægilegra
í almennum götuakstri. Hvert
Panigale V4 R verður númerað og
fær skjöld á stýrishausinn með
framleiðslunúmeri hjólsins. n
Ducati kynnir 240
hestafla V4 R
Yfirbyggingin er með nýjum litum
og felgurnar eru svartar eins og á
keppnishjólunum.
522 4600
www.krokur.net
Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða
þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum
viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
Taktu Krók á leiðarenda
Vesturhraun 5 210 Garðabær
á þinni leið
12 BÍ L A BL A ÐI Ð 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR