Fréttablaðið - 02.11.2022, Side 31
Ég vil þakka Einari Sveini Hálfdán-
arsyni fyrir tækifærið til að skýra
betur orð mín sem féllu í Silfrinu sl.
sunnudag. Eitthvað tókst Einari að
misskilja það sem ég sagði og hrós
mitt til Guðlaugs Þórs Þórðarsonar.
Mér fannst einmitt ástæða til að
hrósa Guðlaugi fyrir þrautseigjuna
því alltaf heldur hann áfram að
markmiði sínu.
Ég játa það að það var kannski
ekki nógu skýrt hjá mér í ati sjón-
varpsins að þegar ég sagði Guðlaug
og Gísla Martein Baldursson hafa
verið nefnda þegar landsfundur
samþykkti ályktun fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Rangár-
vallasýslu um að kjörnir fulltrúar
flokksins, sem þegið hefðu óhóflega
háa styrki, ættu að sýna ábyrgð sína
með því að segja af sér. Þeir voru
ekki nefndir í ályktuninni heldur í
ræðu tillöguflytjanda sem uppskar
mikið lófatak og hluti salarins stóð
á fætur.
Ég sat þann fund, greiddi atkvæði
gegn ályktuninni og klappaði
hvorki né stóð á fætur, því mér
fannst ályktunin ekki til bóta. Það
er rétt að útkljá svona mál lýð-
ræðislega í próf kjörum en ekki
með þessum hætti. Þannig fékk
Árni Johnsen t.d. sína uppreist æru
í tvennum prófkjörum bæði fyrir
alþingiskosningarnar 2007 og 2009
þrátt fyrir að útstrikanir færðu
hann niður um sæti árið 2009. Það
sama átti sér stað með Guðlaug í
kosningunum 2009 þegar fjórð-
ungur kjósenda Sjálfstæðisflokks-
ins í kjördæmi Guðlaugs strikaði
hann út, þá vegna styrkjamálsins
svonefnda. Eftir það mál sýndi
Sjálfstæðisflokkurinn og formaður
hans í sér manndóm og hóf endur-
greiðslur styrkjanna. Ekki var fyrir
því að fara hjá Samfylkingunni sem
stakk því illa fengna fé í vasa flokks-
ins og nýtti í kosningabaráttu til að
koma Jóhönnu Sigurðardóttur í stól
forsætisráðherra. Samviska okkar
Sjálfstæðismanna er þó hrein í því
máli.
En svo Einar S. Hálfdánarson og
aðrir í nánasta stuðningsliði Guð-
laugs velkist ekki í vafa, þá er mér
það ljúft og skylt að taka fram að
landsfundur ályktaði ekki beint
um Guðlaug Þór. Hann var ekki
nefndur á nafn í ályktuninni heldur
í ræðu framsögumanns tillögunnar.
Til þess vísaði ég á sunnudag. Eins
var þó nokkur fjölmiðlaumfjöllun
um málið sumarið 2010 þar sem
fjölmiðlar leituðu álits þeirra sem
spjótin beindust að, þeirra Guð-
laugs og Gísla Marteins. Þá eins og
nú fannst mér óréttlátt að taka þá
sérstaklega fyrir þegar þeir höguðu
sínum málum innan þeirra reglna
sem þá voru í gildi.
En vissulega er það hæfileiki að
stíga alltaf upp úr þeim málum sem
myndu leggja f lesta aðra stjórn-
málamenn í duftið. Þrautseigja
er þannig mikilvægur hæfileiki í
stjórnmálum. n
Þakkir til Einars S.
Friðjón
Friðjónsson
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins
LAGERSALA
VÖRUR FRÁ EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM
EINFALT OG ÞÆGILEGT
lagersalantc lagersalantc Holtagarðar
YFIR 100 VINSÆL VÖRUMERKI
TATUAGGI
OPIÐ
MÁN-FÖS
KL. 12-18
LAUG-SUN
KL. 12-17
Í HOLTAGÖRÐUM
NÝ OG FLOTTARI
2.000.- KR • 3.000.- KR • 4.000.- KR • 5.000.- KR 7.000.- KR • 9.000.- KR • 12.000.- KR • 15.000.- KR • 20.000.- KR
AFSLÁTTUR
60-
80%
Sjálfstæðisflokkurinn vann sannar-
lega varnarsigur í alþingiskosning-
unum 2009. Hrunið var það eina sem
komst að í umræðunni og sótt var að
flokknum úr öllum áttum, flokkur-
inn þjappaði því í vörn og náði bless-
unarlega að standa höggið betur af
sér en margir þorðu að vona.
Síðan eru liðin 13 ár en enn þá
er f lokkurinn þó fastur í stöðugri
varnarbaráttu. Við Sjálfstæðismenn
þekkjum þetta vel, stefið er ávallt hið
sama. Flokkurinn okkar fer í kosn-
ingabaráttu, við töpum nokkrum
prósentum og sætum, en að kosn-
ingum loknum fáum við svo bréf frá
Valhöll sem segir okkur að þetta sé
samt allt í lagi, við nefnilega „unnum
varnarsigur“.
Við töpuðum þingkosningum
fyrir Framsókn, en allt í góðu, þetta
var varnarsigur.
Við töpum borgarstjórnarkosn-
ingum aftur og aftur, en allt í góðu,
þetta voru líka allt varnarsigrar.
Við töpuðum þingkosningum
fyrir VG tvisvar í röð en það var
ekki alslæmt – þetta voru jú einnig
varnarsigrar.
Við misstum meirihlutann í Vest-
mannaeyjum – góður varnarsigur.
Svo í vor töpuðum við fylgi í
næstum öllum þéttbýliskjörnum
landsins – misstum meirihluta á
Hellu og Ísafirði – töpuðum enn einu
sinni slagnum í Reykjavík, Akureyri,
Reykjanesbæ og Vestmannaeyjum
og meirihlutarnir okkar í Kópavogi,
Garðabæ og Hafnarfirði hanga á blá-
þræði. En ekkert stress, samkvæmt
Valhöll var þetta stórfenglegur varn-
arsigur – sjáið til, við erum nefnilega
enn þá stærsti flokkurinn – raunar
stærsti dvergurinn – en samt stærst.
Valið sem við Sjálfstæðismenn
stöndum frammi fyrir er einfalt. Vilj-
um við sætta okkur við það að flokk-
urinn okkar sé, og verði til frambúð-
ar, 20-25% flokkur – stærstur á meðal
smáflokka – sem „vinnur“ eingöngu
„varnarsigra“ og kemst bara í margra
flokka meirihluta – oft jafnvel meiri-
hluta þar sem hann er ekki í forystu?
Eða viljum við sýna smá metnað,
kjósa okkur nýjan formann, freista
þess að snúa vörn í sókn og sækja
fram í von um að flokkurinn okkar
verði aftur leiðandi afl í íslenskum
stjórnmálum?
Fyrir mér er valið einfalt, ég styð
Guðlaug Þór Þórðarson sem nýjan
formann Sjálfstæðisflokksins. n
Valið er einfalt
Ottarr Makuch
fulltrúi á lands-
fundi Sjálfstæðis-
flokksins
Fyrir mér er valið ein-
falt, ég styð Guðlaug
Þór Þórðarson.
MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ