Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 31
Ég vil þakka Einari Sveini Hálfdán- arsyni fyrir tækifærið til að skýra betur orð mín sem féllu í Silfrinu sl. sunnudag. Eitthvað tókst Einari að misskilja það sem ég sagði og hrós mitt til Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Mér fannst einmitt ástæða til að hrósa Guðlaugi fyrir þrautseigjuna því alltaf heldur hann áfram að markmiði sínu. Ég játa það að það var kannski ekki nógu skýrt hjá mér í ati sjón- varpsins að þegar ég sagði Guðlaug og Gísla Martein Baldursson hafa verið nefnda þegar landsfundur samþykkti ályktun fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Rangár- vallasýslu um að kjörnir fulltrúar flokksins, sem þegið hefðu óhóflega háa styrki, ættu að sýna ábyrgð sína með því að segja af sér. Þeir voru ekki nefndir í ályktuninni heldur í ræðu tillöguflytjanda sem uppskar mikið lófatak og hluti salarins stóð á fætur. Ég sat þann fund, greiddi atkvæði gegn ályktuninni og klappaði hvorki né stóð á fætur, því mér fannst ályktunin ekki til bóta. Það er rétt að útkljá svona mál lýð- ræðislega í próf kjörum en ekki með þessum hætti. Þannig fékk Árni Johnsen t.d. sína uppreist æru í tvennum prófkjörum bæði fyrir alþingiskosningarnar 2007 og 2009 þrátt fyrir að útstrikanir færðu hann niður um sæti árið 2009. Það sama átti sér stað með Guðlaug í kosningunum 2009 þegar fjórð- ungur kjósenda Sjálfstæðisflokks- ins í kjördæmi Guðlaugs strikaði hann út, þá vegna styrkjamálsins svonefnda. Eftir það mál sýndi Sjálfstæðisflokkurinn og formaður hans í sér manndóm og hóf endur- greiðslur styrkjanna. Ekki var fyrir því að fara hjá Samfylkingunni sem stakk því illa fengna fé í vasa flokks- ins og nýtti í kosningabaráttu til að koma Jóhönnu Sigurðardóttur í stól forsætisráðherra. Samviska okkar Sjálfstæðismanna er þó hrein í því máli. En svo Einar S. Hálfdánarson og aðrir í nánasta stuðningsliði Guð- laugs velkist ekki í vafa, þá er mér það ljúft og skylt að taka fram að landsfundur ályktaði ekki beint um Guðlaug Þór. Hann var ekki nefndur á nafn í ályktuninni heldur í ræðu framsögumanns tillögunnar. Til þess vísaði ég á sunnudag. Eins var þó nokkur fjölmiðlaumfjöllun um málið sumarið 2010 þar sem fjölmiðlar leituðu álits þeirra sem spjótin beindust að, þeirra Guð- laugs og Gísla Marteins. Þá eins og nú fannst mér óréttlátt að taka þá sérstaklega fyrir þegar þeir höguðu sínum málum innan þeirra reglna sem þá voru í gildi. En vissulega er það hæfileiki að stíga alltaf upp úr þeim málum sem myndu leggja f lesta aðra stjórn- málamenn í duftið. Þrautseigja er þannig mikilvægur hæfileiki í stjórnmálum. n Þakkir til Einars S. Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins LAGERSALA VÖRUR FRÁ EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM EINFALT OG ÞÆGILEGT lagersalantc lagersalantc Holtagarðar YFIR 100 VINSÆL VÖRUMERKI TATUAGGI OPIÐ MÁN-FÖS KL. 12-18 LAUG-SUN KL. 12-17 Í HOLTAGÖRÐUM NÝ OG FLOTTARI 2.000.- KR • 3.000.- KR • 4.000.- KR • 5.000.- KR 7.000.- KR • 9.000.- KR • 12.000.- KR • 15.000.- KR • 20.000.- KR AFSLÁTTUR 60- 80% Sjálfstæðisflokkurinn vann sannar- lega varnarsigur í alþingiskosning- unum 2009. Hrunið var það eina sem komst að í umræðunni og sótt var að flokknum úr öllum áttum, flokkur- inn þjappaði því í vörn og náði bless- unarlega að standa höggið betur af sér en margir þorðu að vona. Síðan eru liðin 13 ár en enn þá er f lokkurinn þó fastur í stöðugri varnarbaráttu. Við Sjálfstæðismenn þekkjum þetta vel, stefið er ávallt hið sama. Flokkurinn okkar fer í kosn- ingabaráttu, við töpum nokkrum prósentum og sætum, en að kosn- ingum loknum fáum við svo bréf frá Valhöll sem segir okkur að þetta sé samt allt í lagi, við nefnilega „unnum varnarsigur“. Við töpuðum þingkosningum fyrir Framsókn, en allt í góðu, þetta var varnarsigur. Við töpum borgarstjórnarkosn- ingum aftur og aftur, en allt í góðu, þetta voru líka allt varnarsigrar. Við töpuðum þingkosningum fyrir VG tvisvar í röð en það var ekki alslæmt – þetta voru jú einnig varnarsigrar. Við misstum meirihlutann í Vest- mannaeyjum – góður varnarsigur. Svo í vor töpuðum við fylgi í næstum öllum þéttbýliskjörnum landsins – misstum meirihluta á Hellu og Ísafirði – töpuðum enn einu sinni slagnum í Reykjavík, Akureyri, Reykjanesbæ og Vestmannaeyjum og meirihlutarnir okkar í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði hanga á blá- þræði. En ekkert stress, samkvæmt Valhöll var þetta stórfenglegur varn- arsigur – sjáið til, við erum nefnilega enn þá stærsti flokkurinn – raunar stærsti dvergurinn – en samt stærst. Valið sem við Sjálfstæðismenn stöndum frammi fyrir er einfalt. Vilj- um við sætta okkur við það að flokk- urinn okkar sé, og verði til frambúð- ar, 20-25% flokkur – stærstur á meðal smáflokka – sem „vinnur“ eingöngu „varnarsigra“ og kemst bara í margra flokka meirihluta – oft jafnvel meiri- hluta þar sem hann er ekki í forystu? Eða viljum við sýna smá metnað, kjósa okkur nýjan formann, freista þess að snúa vörn í sókn og sækja fram í von um að flokkurinn okkar verði aftur leiðandi afl í íslenskum stjórnmálum? Fyrir mér er valið einfalt, ég styð Guðlaug Þór Þórðarson sem nýjan formann Sjálfstæðisflokksins. n Valið er einfalt Ottarr Makuch fulltrúi á lands- fundi Sjálfstæðis- flokksins Fyrir mér er valið ein- falt, ég styð Guðlaug Þór Þórðarson. MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.