Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 32
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Jóhannes Tómasson blaðamaður og fyrrverandi upplýsingafulltrúi, lést föstudaginn 28. október á Landspítalanum. Málfríður Finnbogadóttir Helgi Jóhannesson Anna Jóhannesdóttir Brynjúlfur Jónatansson Þórdís Jóhannesdóttir Brynjar Valþórsson Jóhannes, Ísar Ágúst, Sara Björk, Einar Björn, Salvör Móeiður, Elsa María, Valþór Hrafnkell og Eva Málfríður Ástkær vinur, Pétur Fell Guðlaugsson Ástjörn 7, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn 30. október. Kveðjustund fer fram í kyrrþey. Kristmunda Sigurðardóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Birna G. Bjarnleifsdóttir leiðsögumaður, lést á Hrafnistu, Skógarbæ, mánudaginn 31. október sl. Erla S. Árnadóttir Jón Finnbjörnsson Anna S. Árnadóttir Þorkell Jóhannsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra Arnleif Kristbjörg Ívarsdóttir Háaleitisbraut 41, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Grund þann 16. október síðastliðinn. Útförin hefur farið fram. Fjölskyldan þakkar fyrir hlýhug og auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vegamóta á Grund fyrir góða umönnun og ljúft viðmót. Sigurður Daníelsson Árný Sigurðardóttir Friðrik Sigurbergsson Óskar Sigurðsson Kristjana Mjöll Sigurðardóttir Rannveig Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ný heimildarmynd um tröll verður frumsýnd í Bíó Para­ dís í kvöld þar sem fjölbreytt birtingarmynd þessa þjóðlegu kynjavera er skoðuð. arnartomas@frettabladid.is Ásdís Thoroddsen hefur á undanförn­ um áratug gert kvikmyndir sem byggja á einhverjum hætti á menningararfi Íslands þar sem hún hefur meðal annars skoðað bátasmíði, matargerð og íslenska skóga. Í kvöld verður nýjasta heimildar­ mynd hennar, Tímar tröllanna, frum­ sýnd í Bíó Paradís þar sem fjölbreytt birtingarmynd trölla er tekin fyrir. „Mig langaði að fara á andlegri svið og skoða hjátrúna og þjóðfræðina,“ útskýrir Ásdís og bendir á hversu mikið 19. aldar sjónarhornið litar sýn okkar á tröll í dag. „Það sem við þekkjum af þjóðsögum er í raun sett upp af 19. aldar mönnum en það hefur verið miklu gróskumeiri trú af þessu sem við höfum kallað hjátrú.“ Frá holdi jötuns til internetsins Í fyrstu hafði Ásdís hugsað sér að gera mynd um vætti á Íslandi en komst fljót­ lega að því að viðfangsefnið væri allt of vítt. Hún ákvað þess vegna að gera mynd um tröll sem hún segir frá upphafi vega hafa haft ýmsar merkingar. „Hver tími hefur haft sinn skilning á því hvað tröll eru, hvort heldur sem við erum að tala um heiðna trú þar sem veröldin verður til úr holdi jötuns eða hvernig við skiljum tröll í bókmenntum miðalda,“ segir hún. „Þá er líka hægt að skoða hvernig lagabókstafurinn skil­ greindi þetta því að í eina tíð var bannað að vera tröll á Íslandi. Hvaða þýðingu hafði það á þeim tíma að það mætti ekki vera tröll? Ég ætla ekki að segja þér það, þú verður bara að sjá myndina!“ Þá eru ótalin jólatröllin, tröllin úr alþýðuþjóðtrú Jóns Árnasonar og svo auðvitað tröll nútímans. „Þar tökum við sérstaklega fyrir net­ tröllin þótt nútímatröllin séu auðvitað fleiri.“ Skessur og stjúpur Í myndinni ferðast Ásdís um landið og spjallar við fólk af ýmsum toga um þessar kynjaverur. „Myndin er kaflaskipt eftir tímabilum – forneskja, miðaldir, tröll jólanna, tröll þjóðtrúarinnar og tröll nútímans,“ segir hún. „Ég tala við fólk af öllu tagi, fræði­ menn, bændur og sjómenn, sem hafa skoðun á þessu og geta sagt sögur.“ Ásdís vill ekki gefa upp sitt uppá­ haldströll þar sem hún vill ekki gera upp á milli tröllanna. Hún segir þó birtingarmynd trölla á Íslandi ein­ staka. „Það sem mér fannst mjög merki­ legt að frétta við gerð þessarar kvik­ myndar er að í íslenskum þjóðsögum eru oft ævintýri þar sem koma fyrir tröllskessur. Mjög gjarnan eru sögurnar hliðstæðar evrópskum ævintýrum en hjá okkur höfum við tröllskessur í stað stjúpa,“ útskýrir Ásdís. „Oft kemur fyrir í þessum ævintýrum að tröllskessurnar eru góðar, og jafnvel svo góðar að þær fórna sér fyrir hetjurnar.“ Skessur á Íslandi eru þannig dýpri persónur en annars staðar í heiminum. „Við erum með meiri dýpt, marg­ breytileika og jafnvel kærleika. Mér fannst ansi sérstakt að við værum sér á parti hvað stjúpur og tröllskessur varðar.“ n Tröll eru alls konar Ásdís segir viðfangsefnið hafa krafist þess að hún gerði þessa mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hver tími hefur haft sinn skilning á því hvað tröll eru. 1906 Fyrsta kvikmyndahús á Íslandi hefur göngu sína í Fjalakettinum við Aðalstræti í Reykjavík og nefnist Reykjavíkur Biograftheater en varð seinna Gamla bíó. Þegar Fjalakötturinn var rifinn 1985 var bíósalurinn talinn einn sá elsti uppistandandi í heiminum. 1912 Skátafélag Reykjavíkur stofnað í Fjósinu, bakhúsi Menntaskólans í Reykjavík. 1913 Morgunblaðið hefur göngu sína. Stofnandi og fyrsti ritstjóri þess var Vilhjálmur Finsen. 1914 Lög um notkun bifreiða ganga í gildi. Réttur til að stjórna bifreið var bundinn við 21 árs aldur. Há- marksökuhraði var 15 km/klst. í þéttbýli en 35 km/ klst. utan þess. 1930 Slysavarnadeildin Þorbjörn stofnuð í Grindavík og voru stofnfélagar 56 karlar og konur í þorpinu. Slysavarnadeildin notaði fyrst björgunarsveita á Íslandi fluglínutæki við björgun úr strönduðu skipi þegar franski togarinn Cap Fagnet strandaði 24. mars 1931. Síðan þá hafa félagar slysavarnadeildar- innar og björgunarsveitarinnar Þorbjörns bjargað 232 sjómönnum úr strönduðum og sökkvandi skipum, þar af 205 manns með fluglínu- tækjum. 1941 Mesta flugslys á Íslandi fram til þess tíma verður er bandarísk flugvél ferst á Langahrygg á Reykjanesi og með henni 11 menn. 1946 Íslendingar taka við yfirstjórn flugumferðar yfir Norður-Atlantshafi, allt frá Hjaltlandseyjum til Grænlands og norður á norðurpól. Merkisatburðir Burton Stephen Lancaster fæddist þann 2. nóvember 1913 í Manhattan-hverfi New York. Hann hafði á unga aldri mikinn áhuga á fimleikum og hóf störf við sirkuslistir níu ára gamall en neyddist síðar til að gefa loftfimleika upp á bátinn vegna meiðsla. Eftir að hann sneri heim til New York eftir síðari heimsstyrjöldina var Burt hvattur til að sækja um hlutverk í Broadway-leikriti. Hann fékk hlutverkið og hlaut í kjölfarið athygli Hollywood. Á árunum sem á eftir fylgdu lék Burt í fjölda kvikmynda á borð við Brute Force, Come Back, Little Sheba og The Rose Tattoo. Hann átti langan og farsælan feril sem leikari og var líka frjálslyndur í stjórnmálaskoðunum sínum þar sem hann talaði fyrir ýmsum minnihlutahópum og gegn stríðsrekstri Bandaríkjanna. Burt lést 1994 úr hjartaáfalli í íbúð sinni í Los Angeles, átt- ræður að aldri. n Þetta gerðist 2. nóvember 1913 Burt Lancaster fæddur TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.