Fréttablaðið - 02.11.2022, Blaðsíða 32
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Jóhannes Tómasson
blaðamaður og fyrrverandi
upplýsingafulltrúi,
lést föstudaginn 28. október
á Landspítalanum.
Málfríður Finnbogadóttir
Helgi Jóhannesson
Anna Jóhannesdóttir Brynjúlfur Jónatansson
Þórdís Jóhannesdóttir Brynjar Valþórsson
Jóhannes, Ísar Ágúst, Sara Björk, Einar Björn, Salvör
Móeiður, Elsa María, Valþór Hrafnkell og Eva Málfríður
Ástkær vinur,
Pétur Fell Guðlaugsson
Ástjörn 7,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
sunnudaginn 30. október.
Kveðjustund fer fram í kyrrþey.
Kristmunda Sigurðardóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Birna G. Bjarnleifsdóttir
leiðsögumaður,
lést á Hrafnistu, Skógarbæ,
mánudaginn 31. október sl.
Erla S. Árnadóttir Jón Finnbjörnsson
Anna S. Árnadóttir Þorkell Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæra
Arnleif Kristbjörg Ívarsdóttir
Háaleitisbraut 41, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund þann
16. október síðastliðinn. Útförin hefur
farið fram. Fjölskyldan þakkar fyrir
hlýhug og auðsýnda samúð. Sérstakar
þakkir til starfsfólks Vegamóta á Grund fyrir góða
umönnun og ljúft viðmót.
Sigurður Daníelsson
Árný Sigurðardóttir Friðrik Sigurbergsson
Óskar Sigurðsson Kristjana Mjöll Sigurðardóttir
Rannveig Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ný heimildarmynd um tröll
verður frumsýnd í Bíó Para
dís í kvöld þar sem fjölbreytt
birtingarmynd þessa þjóðlegu
kynjavera er skoðuð.
arnartomas@frettabladid.is
Ásdís Thoroddsen hefur á undanförn
um áratug gert kvikmyndir sem byggja
á einhverjum hætti á menningararfi
Íslands þar sem hún hefur meðal annars
skoðað bátasmíði, matargerð og íslenska
skóga. Í kvöld verður nýjasta heimildar
mynd hennar, Tímar tröllanna, frum
sýnd í Bíó Paradís þar sem fjölbreytt
birtingarmynd trölla er tekin fyrir.
„Mig langaði að fara á andlegri svið
og skoða hjátrúna og þjóðfræðina,“
útskýrir Ásdís og bendir á hversu mikið
19. aldar sjónarhornið litar sýn okkar
á tröll í dag. „Það sem við þekkjum
af þjóðsögum er í raun sett upp af 19.
aldar mönnum en það hefur verið miklu
gróskumeiri trú af þessu sem við höfum
kallað hjátrú.“
Frá holdi jötuns til internetsins
Í fyrstu hafði Ásdís hugsað sér að gera
mynd um vætti á Íslandi en komst fljót
lega að því að viðfangsefnið væri allt
of vítt. Hún ákvað þess vegna að gera
mynd um tröll sem hún segir frá upphafi
vega hafa haft ýmsar merkingar.
„Hver tími hefur haft sinn skilning
á því hvað tröll eru, hvort heldur sem
við erum að tala um heiðna trú þar sem
veröldin verður til úr holdi jötuns eða
hvernig við skiljum tröll í bókmenntum
miðalda,“ segir hún. „Þá er líka hægt að
skoða hvernig lagabókstafurinn skil
greindi þetta því að í eina
tíð var bannað að vera tröll á Íslandi.
Hvaða þýðingu hafði það á þeim tíma að
það mætti ekki vera tröll? Ég ætla ekki
að segja þér það, þú verður bara að sjá
myndina!“
Þá eru ótalin jólatröllin, tröllin úr
alþýðuþjóðtrú Jóns Árnasonar og svo
auðvitað tröll nútímans.
„Þar tökum við sérstaklega fyrir net
tröllin þótt nútímatröllin séu auðvitað
fleiri.“
Skessur og stjúpur
Í myndinni ferðast Ásdís um landið
og spjallar við fólk af ýmsum toga um
þessar kynjaverur.
„Myndin er kaflaskipt eftir tímabilum
– forneskja, miðaldir, tröll jólanna, tröll
þjóðtrúarinnar og tröll nútímans,“ segir
hún. „Ég tala við fólk af öllu tagi, fræði
menn, bændur og sjómenn, sem hafa
skoðun á þessu og geta sagt sögur.“
Ásdís vill ekki gefa upp sitt uppá
haldströll þar sem hún vill ekki gera
upp á milli tröllanna. Hún segir þó
birtingarmynd trölla á Íslandi ein
staka.
„Það sem mér fannst mjög merki
legt að frétta við gerð þessarar kvik
myndar er að í íslenskum þjóðsögum
eru oft ævintýri þar sem koma fyrir
tröllskessur. Mjög gjarnan eru sögurnar
hliðstæðar evrópskum ævintýrum en
hjá okkur höfum við tröllskessur í stað
stjúpa,“ útskýrir Ásdís. „Oft kemur fyrir
í þessum ævintýrum að tröllskessurnar
eru góðar, og jafnvel svo góðar að þær
fórna sér fyrir hetjurnar.“
Skessur á Íslandi eru þannig dýpri
persónur en annars staðar í heiminum.
„Við erum með meiri dýpt, marg
breytileika og jafnvel kærleika. Mér
fannst ansi sérstakt að við værum sér
á parti hvað stjúpur og tröllskessur
varðar.“ n
Tröll eru alls konar
Ásdís segir viðfangsefnið hafa krafist þess að hún gerði þessa mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hver tími hefur haft sinn
skilning á því hvað tröll
eru.
1906 Fyrsta kvikmyndahús á Íslandi hefur göngu sína
í Fjalakettinum við Aðalstræti í Reykjavík og
nefnist Reykjavíkur Biograftheater en varð seinna
Gamla bíó. Þegar Fjalakötturinn var rifinn 1985 var
bíósalurinn talinn einn sá elsti uppistandandi í
heiminum.
1912 Skátafélag Reykjavíkur stofnað í Fjósinu, bakhúsi
Menntaskólans í Reykjavík.
1913 Morgunblaðið hefur göngu sína. Stofnandi og fyrsti
ritstjóri þess var Vilhjálmur Finsen.
1914 Lög um notkun bifreiða ganga í gildi. Réttur til að
stjórna bifreið var bundinn við 21 árs aldur. Há-
marksökuhraði var 15 km/klst. í þéttbýli en 35 km/
klst. utan þess.
1930 Slysavarnadeildin Þorbjörn stofnuð í Grindavík
og voru stofnfélagar 56 karlar og konur í þorpinu.
Slysavarnadeildin notaði fyrst björgunarsveita á
Íslandi fluglínutæki við björgun úr strönduðu skipi
þegar franski togarinn Cap Fagnet strandaði 24.
mars 1931. Síðan þá hafa félagar slysavarnadeildar-
innar og björgunarsveitarinnar Þorbjörns
bjargað 232 sjómönnum úr strönduðum og
sökkvandi skipum, þar af 205 manns með fluglínu-
tækjum.
1941 Mesta flugslys á Íslandi fram til þess tíma verður er
bandarísk flugvél ferst á Langahrygg á Reykjanesi
og með henni 11 menn.
1946 Íslendingar taka við yfirstjórn flugumferðar yfir
Norður-Atlantshafi, allt frá Hjaltlandseyjum til
Grænlands og norður á norðurpól.
Merkisatburðir
Burton Stephen Lancaster fæddist þann
2. nóvember 1913 í Manhattan-hverfi
New York. Hann hafði á unga aldri
mikinn áhuga á fimleikum og hóf
störf við sirkuslistir níu ára gamall en
neyddist síðar til að gefa loftfimleika
upp á bátinn vegna meiðsla.
Eftir að hann sneri heim til New
York eftir síðari heimsstyrjöldina var Burt
hvattur til að sækja um hlutverk í Broadway-leikriti. Hann
fékk hlutverkið og hlaut í kjölfarið athygli Hollywood.
Á árunum sem á eftir fylgdu lék Burt í fjölda kvikmynda á
borð við Brute Force, Come Back, Little Sheba og The Rose
Tattoo. Hann átti langan og farsælan feril sem leikari og var
líka frjálslyndur í stjórnmálaskoðunum sínum þar sem hann
talaði fyrir ýmsum minnihlutahópum og gegn stríðsrekstri
Bandaríkjanna.
Burt lést 1994 úr hjartaáfalli í íbúð sinni í Los Angeles, átt-
ræður að aldri. n
Þetta gerðist 2. nóvember 1913
Burt Lancaster fæddur
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR