Fréttablaðið - 02.11.2022, Side 35
Síðustu dagar Sæunnar
er ljúfsárt leikrit um
harmleik efri áranna
og hrylling heilabil-
unar.
Sigríður Jónsdóttir
Á meðal atriða eru
Fischersund, Kliður,
neonme, Kónguló,
Rose Riebl, Kaktus
Einarsson, JFDR, Sóley,
Atli Örvarsson og Sin
Fang.
Treginn er svo alþjóð-
legur.
Reynir Hauksson
LEIKHÚS
Síðustu dagar Sæunnar
Matthías Tryggvi Haraldsson
Borgarleikhúsið
Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir
Leikarar: Guðrún S. Gísladóttir,
Jóhann Sigurðarson og Snorri
Engilbertsson
Leikmynd, búningar og vörpun:
Elín Hansdóttir
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson
Lýsing: Pálmi Jónsson
Hljóðmynd: Þorbjörn
Steingrímsson
Myndvinnsla: Elmar Þórarinsson
Leikgervi: Elín S. Gísladóttir
Sigríður Jónsdóttir
Sæunn býr ein. Sæunn býr með
manninum sínum. Sæunn býr með
ókunnugu fólki. Sæunn býr á öldr-
unarheimili. Hún lætur dagana líða
með því að reyna að spila á spil eða
rifja upp gamla tíma með Trausta
sínum sem er heilabilaður. Þess á
milli tekur Sæunn upp leiðbeining-
ar fyrir fjölskylduna þar sem hún
útleggur útför og erfðaskrá sína á
forláta kassettutæki, upptökur sem
hún eyðir jafnan. En aðallega reynir
hún að hemja kraumandi reiðina
sem mallar innra með henni. Reið-
ina yfir óréttlæti lífsins, ástandi
Trausta og yfirvofandi dauðanum.
Síðustu dagar Sæunnar er nýtt
íslenskt leikrit eftir Matthías
Tryggva Haraldsson sem var frum-
sýnt á Litla sviðinu fyrir stuttu.
Síðastliðin tvö ár hefur Matthías
starfað sem eitt af leikskáldum
Borgarleikhússins og er leikritið
afrakstur þeirrar vinnu. Matthías er
ekki ókunnugur leiksviðinu en eftir
hann liggja nokkur styttri leikverk
og hefur hann starfað sem drama-
túrg í nokkrum leiksýningum.
Vannýttir möguleikar
Heilabilun er skelfilegur sjúkdómur,
fyrir sjúklinga og aðstandendur.
Einstaklingar hverfa, sjálfum sér
og öðrum. Sjúkdóminum fylgir líka
kvíði, ofsahræðsla og þunglyndi.
Sæunn er miðpunktur sögunnar
og áhorfendur sjá heiminn með
hennar augum. En er hún trúverðug
sögukona? Hún upplifir sig eina á
móti heiminum en er það raun-
verulega svo? Fjölskylda hjónanna
er nefnd en enginn kemur í heim-
sókn. Lárus, sonur þeirra, er sömu-
leiðis fjarverandi og uppfyllir ekki
ósk móður sinnar um að gefa henni
barnabarn.
Matthías Tryggvi nær ágætlega
utan um grunnástand aðalper-
sónanna, svo sem látlausar endur-
tekningar, en mætti kafa dýpra bæði
hvað varðar söguna og stílbragðið.
Við fáum það á tilfinninguna að
ekki sé allt sem sýnist. Gæti verið að
Sæunn berjist sjálf við heilabilun?
En þræðir leikritsins og úrvinnsla
nýta ekki þá möguleika sem ann-
ars góð hugmyndavinna Matthíasar
ber með sér. Sæunn segir bókstaf-
lega á einum tímapunkti að hún
hafi aldrei upplifað sín bestu ár en
áhorfendur fá aldrei neinar frekari
útskýringar, ekki frekar en ástæðu
fyrir hatri hennar á Borgarnesi.
Sympatísk og snúin
Guðrún S. Gísladóttir ber sýning-
una á herðum sér enda stendur
hún á sviði allan tímann. Í hennar
meðferð er Sæunn bæði sympatísk
og snúin, kona sem sjaldan hefur
leyft sér að dreyma stórt. Guðrún
skilur líka húmorinn í þessum
sáru aðstæðum en finnur bæði
sársaukann og ástina í sambandi
Sæunnar og Trausta. Togstreita ein-
kennir tilvist hennar og Guðrún
fangar þessa sorgmæddu konu fal-
lega, fulla af breyskleika og ást.
Trausti er leikinn af Jóhanni
Sigurðarsyni, sem er hér á nýjum
slóðum. Fáir leika betur með augna-
svipnum einum en Jóhann, þannig
verða sum atriðin glimrandi góð
og nístandi sársaukafull. Stundum
hleypir hann of miklu melódrama í
túlkun sína en leysir hlutverkið vel.
Snorri Engilbertsson skilar sínum
litlu hlutverkum sæmilega en velta
má upp þeirri spurningu hvort höf-
undur hefði átt að sleppa þeim, enda
gefa persónurnar sögunni lítið.
Harmleikur efri áranna
Una Þorleifsdóttir leikstýrði einni
af áhugaverðustu sýningum síðasta
leikárs, Ást og upplýsingum eftir
Caryl Churchill sem allt of fáir sáu.
Hæfileikar hennar njóta sín yfirleitt
í leikverkum sem liggja á mörkum
raunveruleikans, þar sem mann-
eskjur eru á skjön við tilvistina og
í leit að tilgangi. Af þeim sökum er
Síðustu dagar Sæunnar kjörið leik-
rit fyrir hennar nálgun en hún tekst
ekki á við efnið af nægilegum krafti.
Hér má ganga lengra með textann
og taka framvinduna fjær raunveru-
leikanum, en leikaravinnan er góð.
Listræn umgjörð er að miklu
leyti í höndum Elínar Hansdóttur
sem hannaði frábæru leikmyndina
og myndbönd fyrir Vertu úlfur.
Niðurstaðan hérna veldur von-
brigðum, stundum virtist hrein-
lega eins og hugmyndirnar væru
enn þá á teikniborðinu. Hvítir
veggir eru dapurlegir fyrir augað og
myndbandsvinnslan sjaldan eftir-
minnileg. Gísli Galdur Þorgeirsson
semur hljómþýðu tónlistina sem
orkar meira eins og hljóðmynd í
anda Brian Reitzell en er ekki nægi-
lega afgerandi til að styðja við sýn-
inguna og lyfta henni á hærra plan.
Leiksýning sem vekur upp spurn-
ingar og skoðar sálarlíf eldra fólks
er svo sannarlega af hinu jákvæða.
En leikrit sem inniheldur of marga
lausa þræði þarf skýrari listrænan
ramma til að ganga upp. Matthías
er hæfileikaríkur og með gott eyra
fyrir leiktexta, vonandi heldur hann
áfram að meitla rödd og stíl. Síðustu
dagar Sæunnar er ljúfsárt leikrit um
harmleik efri áranna og hrylling
heilabilunar. Ljóðskáldið T.S. Eliot
hafði rétt fyrir sér, heimurinn endar
nefnilega ekki með hvelli heldur
kveini. n
NIÐURSTAÐA: Afburðagóð
frammistaða Guðrúnar Gísladótt-
ur er bjartasti punkturinn í ljúfsáru
en fremur lingerðu leikriti.
Dauðinn og daglegt amstur
Guðrún S. Gísladóttir og Jóhann Sigurðarson skila hlutverkum sínum vel sem hjónin Sæunn og Trausti.
MYND/GRÍMUR BJARNASON
tsh@frettabladid.is
Íslenska plötufyrirtækið og tónlist-
arsamsteypan INNI fagnar þriggja
ára starfsafmæli sínu í dag með tón-
listarveislu í Iðnó. INNI var stofnað
af tónskáldinu Atla Örvarssyni og
írska tónlistarmanninum Colm
O'Herlihy árið 2019 með það að
markmiði að gefa út íslenska tón-
list og styðja við íslenska tónlistar-
menn.
Fjölmargar hljómsveitir og tón-
listarmenn er tengjast fyrirtækinu
koma fram á dagskránni auk þess
sem ilmhúsið Fischersund stendur
fyrir ilmupplifun og kórinn Kliður
mun flytja nokkur lög eftir meðlimi.
Þau sem koma fram á viðburð-
inum eru Fischersund, Kliður,
neonme, Kónguló, Rose Riebl, Kakt-
us Einarsson, JFDR, Sóley, Atli Örv-
arsson, Sin Fang, Francesco Fabris,
Kjartan Holm og The Intelligent
Instruments Lab.
Viðburðurinn hefst í Iðnó klukk-
an 20.45 og stendur til 1.00. Aðgang-
ur er ókeypis en viðburðurinn er
hluti af „off-venue“ dagskrá Iceland
Airwaves. n
INNI fagnar
þriggja ára afmæli
INNI var stofnað af Atla Örvarssyni
og Colm O’Herlihy árið 2019.
MYND/AÐSEND
arnartomas@frettabladid.is
Tónlistarmaðurinn Reynir Hauks-
son hefur að undanförnu verið
kröftugasti innflytjandi flamenco-
tónlistar á Íslandi. Hann hefur nú
dregið á fjörur landsins enn fleiri
f lamenco-snillinga og mun halda
þrenna tónleika í vikunni. Að sögn
Reynis gengur vel að boða suðrænt
fagnaðarerindið til Íslendinga.
„Það er alltaf meiri og meiri
aðsókn á sýningarnar sem og nám-
skeiðin sem við höldum,“ segir hann.
„Fólk sem kemur á tónleikana er
alltaf upp með sér og minnist sér-
staklega á það.“
Sólsoltnir Íslendingarnir liggja
sem sagt vel við suðrænum sveiflum?
„Já, þeir hafa sko gaman af ein-
hverju framandi og skemmtilegu.“
Í vor greindi Fréttablaðið frá því
að Reynir hefði ásamt goðsögninni
Jeronimo Maya klætt Vísur Vatns-
enda-Rósu í flamenco-kjól og vakti
útsetningin athygli hér á landi og á
Spáni. Á tónleikunum núna verða
fleiri íslenskir slagarar framreiddir
á suðrænan máta.
„Við verðum til að mynda með
útsetningu á Austurstræti og svo líka
Ísland farsælda Fróni. Fólk kemur
svo bara og sér restina,“ segir Reynir.
„Það verður nóg sem kemur á óvart.“
Spánverjar tóku vel í Vísur Vatns-
enda-Rósu en segir Reynir að vanda
þurfi lagavalið vel þegar kemur að
svona sambræðingi.
„Það hjálpar mikið til ef það er
tregi í lögunum því flamenco-tónlist
er uppfull af honum,“ útskýrir hann.
„Ef maður finnur þennan sameigin-
lega flöt þá gengur þetta upp. Treg-
inn er svo alþjóðlegur.“
Tónleikaröðin hefst í Máli og
Menningu á fimmtudag, þaðan er
ferðinni heitið í Gamla Kaupfélagið
á föstudag og lýkur svo í Bæjarbíó
á laugardag. Reynir lofar mikilli
stemningu og suðrænni músík í
bland við íslenska tóna. n
Íslenskur tregi hentar flamenco vel
OPEN BY NIGHT
2. NÓVEMBER
OPIÐ 11- 22 Í KAUPTÚNI
25% AF ÖLLUM VÖRUM
30% AF ÖLLUM JÓLAVÖRUM
MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022 Menning 15FRÉTTABLAÐIÐ