Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 35

Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 35
Síðustu dagar Sæunnar er ljúfsárt leikrit um harmleik efri áranna og hrylling heilabil- unar. Sigríður Jónsdóttir Á meðal atriða eru Fischersund, Kliður, neonme, Kónguló, Rose Riebl, Kaktus Einarsson, JFDR, Sóley, Atli Örvarsson og Sin Fang. Treginn er svo alþjóð- legur. Reynir Hauksson LEIKHÚS Síðustu dagar Sæunnar Matthías Tryggvi Haraldsson Borgarleikhúsið Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir Leikarar: Guðrún S. Gísladóttir, Jóhann Sigurðarson og Snorri Engilbertsson Leikmynd, búningar og vörpun: Elín Hansdóttir Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson Lýsing: Pálmi Jónsson Hljóðmynd: Þorbjörn Steingrímsson Myndvinnsla: Elmar Þórarinsson Leikgervi: Elín S. Gísladóttir Sigríður Jónsdóttir Sæunn býr ein. Sæunn býr með manninum sínum. Sæunn býr með ókunnugu fólki. Sæunn býr á öldr- unarheimili. Hún lætur dagana líða með því að reyna að spila á spil eða rifja upp gamla tíma með Trausta sínum sem er heilabilaður. Þess á milli tekur Sæunn upp leiðbeining- ar fyrir fjölskylduna þar sem hún útleggur útför og erfðaskrá sína á forláta kassettutæki, upptökur sem hún eyðir jafnan. En aðallega reynir hún að hemja kraumandi reiðina sem mallar innra með henni. Reið- ina yfir óréttlæti lífsins, ástandi Trausta og yfirvofandi dauðanum. Síðustu dagar Sæunnar er nýtt íslenskt leikrit eftir Matthías Tryggva Haraldsson sem var frum- sýnt á Litla sviðinu fyrir stuttu. Síðastliðin tvö ár hefur Matthías starfað sem eitt af leikskáldum Borgarleikhússins og er leikritið afrakstur þeirrar vinnu. Matthías er ekki ókunnugur leiksviðinu en eftir hann liggja nokkur styttri leikverk og hefur hann starfað sem drama- túrg í nokkrum leiksýningum. Vannýttir möguleikar Heilabilun er skelfilegur sjúkdómur, fyrir sjúklinga og aðstandendur. Einstaklingar hverfa, sjálfum sér og öðrum. Sjúkdóminum fylgir líka kvíði, ofsahræðsla og þunglyndi. Sæunn er miðpunktur sögunnar og áhorfendur sjá heiminn með hennar augum. En er hún trúverðug sögukona? Hún upplifir sig eina á móti heiminum en er það raun- verulega svo? Fjölskylda hjónanna er nefnd en enginn kemur í heim- sókn. Lárus, sonur þeirra, er sömu- leiðis fjarverandi og uppfyllir ekki ósk móður sinnar um að gefa henni barnabarn. Matthías Tryggvi nær ágætlega utan um grunnástand aðalper- sónanna, svo sem látlausar endur- tekningar, en mætti kafa dýpra bæði hvað varðar söguna og stílbragðið. Við fáum það á tilfinninguna að ekki sé allt sem sýnist. Gæti verið að Sæunn berjist sjálf við heilabilun? En þræðir leikritsins og úrvinnsla nýta ekki þá möguleika sem ann- ars góð hugmyndavinna Matthíasar ber með sér. Sæunn segir bókstaf- lega á einum tímapunkti að hún hafi aldrei upplifað sín bestu ár en áhorfendur fá aldrei neinar frekari útskýringar, ekki frekar en ástæðu fyrir hatri hennar á Borgarnesi. Sympatísk og snúin Guðrún S. Gísladóttir ber sýning- una á herðum sér enda stendur hún á sviði allan tímann. Í hennar meðferð er Sæunn bæði sympatísk og snúin, kona sem sjaldan hefur leyft sér að dreyma stórt. Guðrún skilur líka húmorinn í þessum sáru aðstæðum en finnur bæði sársaukann og ástina í sambandi Sæunnar og Trausta. Togstreita ein- kennir tilvist hennar og Guðrún fangar þessa sorgmæddu konu fal- lega, fulla af breyskleika og ást. Trausti er leikinn af Jóhanni Sigurðarsyni, sem er hér á nýjum slóðum. Fáir leika betur með augna- svipnum einum en Jóhann, þannig verða sum atriðin glimrandi góð og nístandi sársaukafull. Stundum hleypir hann of miklu melódrama í túlkun sína en leysir hlutverkið vel. Snorri Engilbertsson skilar sínum litlu hlutverkum sæmilega en velta má upp þeirri spurningu hvort höf- undur hefði átt að sleppa þeim, enda gefa persónurnar sögunni lítið. Harmleikur efri áranna Una Þorleifsdóttir leikstýrði einni af áhugaverðustu sýningum síðasta leikárs, Ást og upplýsingum eftir Caryl Churchill sem allt of fáir sáu. Hæfileikar hennar njóta sín yfirleitt í leikverkum sem liggja á mörkum raunveruleikans, þar sem mann- eskjur eru á skjön við tilvistina og í leit að tilgangi. Af þeim sökum er Síðustu dagar Sæunnar kjörið leik- rit fyrir hennar nálgun en hún tekst ekki á við efnið af nægilegum krafti. Hér má ganga lengra með textann og taka framvinduna fjær raunveru- leikanum, en leikaravinnan er góð. Listræn umgjörð er að miklu leyti í höndum Elínar Hansdóttur sem hannaði frábæru leikmyndina og myndbönd fyrir Vertu úlfur. Niðurstaðan hérna veldur von- brigðum, stundum virtist hrein- lega eins og hugmyndirnar væru enn þá á teikniborðinu. Hvítir veggir eru dapurlegir fyrir augað og myndbandsvinnslan sjaldan eftir- minnileg. Gísli Galdur Þorgeirsson semur hljómþýðu tónlistina sem orkar meira eins og hljóðmynd í anda Brian Reitzell en er ekki nægi- lega afgerandi til að styðja við sýn- inguna og lyfta henni á hærra plan. Leiksýning sem vekur upp spurn- ingar og skoðar sálarlíf eldra fólks er svo sannarlega af hinu jákvæða. En leikrit sem inniheldur of marga lausa þræði þarf skýrari listrænan ramma til að ganga upp. Matthías er hæfileikaríkur og með gott eyra fyrir leiktexta, vonandi heldur hann áfram að meitla rödd og stíl. Síðustu dagar Sæunnar er ljúfsárt leikrit um harmleik efri áranna og hrylling heilabilunar. Ljóðskáldið T.S. Eliot hafði rétt fyrir sér, heimurinn endar nefnilega ekki með hvelli heldur kveini. n NIÐURSTAÐA: Afburðagóð frammistaða Guðrúnar Gísladótt- ur er bjartasti punkturinn í ljúfsáru en fremur lingerðu leikriti. Dauðinn og daglegt amstur Guðrún S. Gísladóttir og Jóhann Sigurðarson skila hlutverkum sínum vel sem hjónin Sæunn og Trausti. MYND/GRÍMUR BJARNASON tsh@frettabladid.is Íslenska plötufyrirtækið og tónlist- arsamsteypan INNI fagnar þriggja ára starfsafmæli sínu í dag með tón- listarveislu í Iðnó. INNI var stofnað af tónskáldinu Atla Örvarssyni og írska tónlistarmanninum Colm O'Herlihy árið 2019 með það að markmiði að gefa út íslenska tón- list og styðja við íslenska tónlistar- menn. Fjölmargar hljómsveitir og tón- listarmenn er tengjast fyrirtækinu koma fram á dagskránni auk þess sem ilmhúsið Fischersund stendur fyrir ilmupplifun og kórinn Kliður mun flytja nokkur lög eftir meðlimi. Þau sem koma fram á viðburð- inum eru Fischersund, Kliður, neonme, Kónguló, Rose Riebl, Kakt- us Einarsson, JFDR, Sóley, Atli Örv- arsson, Sin Fang, Francesco Fabris, Kjartan Holm og The Intelligent Instruments Lab. Viðburðurinn hefst í Iðnó klukk- an 20.45 og stendur til 1.00. Aðgang- ur er ókeypis en viðburðurinn er hluti af „off-venue“ dagskrá Iceland Airwaves. n INNI fagnar þriggja ára afmæli INNI var stofnað af Atla Örvarssyni og Colm O’Herlihy árið 2019. MYND/AÐSEND arnartomas@frettabladid.is  Tónlistarmaðurinn Reynir Hauks- son hefur að undanförnu verið kröftugasti innflytjandi flamenco- tónlistar á Íslandi. Hann hefur nú dregið á fjörur landsins enn fleiri f lamenco-snillinga og mun halda þrenna tónleika í vikunni. Að sögn Reynis gengur vel að boða suðrænt fagnaðarerindið til Íslendinga. „Það er alltaf meiri og meiri aðsókn á sýningarnar sem og nám- skeiðin sem við höldum,“ segir hann. „Fólk sem kemur á tónleikana er alltaf upp með sér og minnist sér- staklega á það.“ Sólsoltnir Íslendingarnir liggja sem sagt vel við suðrænum sveiflum? „Já, þeir hafa sko gaman af ein- hverju framandi og skemmtilegu.“ Í vor greindi Fréttablaðið frá því að Reynir hefði ásamt goðsögninni Jeronimo Maya klætt Vísur Vatns- enda-Rósu í flamenco-kjól og vakti útsetningin athygli hér á landi og á Spáni. Á tónleikunum núna verða fleiri íslenskir slagarar framreiddir á suðrænan máta. „Við verðum til að mynda með útsetningu á Austurstræti og svo líka Ísland farsælda Fróni. Fólk kemur svo bara og sér restina,“ segir Reynir. „Það verður nóg sem kemur á óvart.“ Spánverjar tóku vel í Vísur Vatns- enda-Rósu en segir Reynir að vanda þurfi lagavalið vel þegar kemur að svona sambræðingi. „Það hjálpar mikið til ef það er tregi í lögunum því flamenco-tónlist er uppfull af honum,“ útskýrir hann. „Ef maður finnur þennan sameigin- lega flöt þá gengur þetta upp. Treg- inn er svo alþjóðlegur.“ Tónleikaröðin hefst í Máli og Menningu á fimmtudag, þaðan er ferðinni heitið í Gamla Kaupfélagið á föstudag og lýkur svo í Bæjarbíó á laugardag. Reynir lofar mikilli stemningu og suðrænni músík í bland við íslenska tóna. n Íslenskur tregi hentar flamenco vel OPEN BY NIGHT 2. NÓVEMBER OPIÐ 11- 22 Í KAUPTÚNI 25% AF ÖLLUM VÖRUM 30% AF ÖLLUM JÓLAVÖRUM MIÐVIKUDAGUR 2. nóvember 2022 Menning 15FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.