Fréttablaðið - 02.11.2022, Side 36
Ef þú flýgur ekki með
listamanninn til áhorf-
endanna munu áhorf-
endurnir fljúga til
listamannsins sem
skapar fleiri vandamál.
Lewis Jamieson
KVIKMYNDIR
Black Adam
Leikstjórn: Jaume Collet-Serra
Leikarar: Dwayne Johnson, Pierce
Brosnan, Aldis Hodge ofl.
Oddur Ævar Gunnarsson
Fyrir mörgum er hér komin á hvíta
tjaldið enn ein ofurhetjumyndin.
Ekki einungis það heldur sömu-
leiðis úr smiðju DC Comics, ofur-
hetjurisans sem hefur misstigið
sig í öðru hverju skrefi við að fram-
leiða kvikmyndir um misspenn-
andi ofurhetjur eins og Súperman
og Aquaman.
Með þær væntingar í farteskinu
er óhætt að fullyrða að Black Adam
með Dwayne „The Rock“ Johnson
hafi komið einkar mikið á óvart.
Myndin er langt í frá fullkomin og
gamaldags vandamál, persónu-
sköpun eða öllu heldur skortur á
henni, plaga myndina rétt eins og
fyrri DC-myndir.
Munurinn á þeim myndum og
þessari er hins vegar skemmtana-
gildið. Myndin heldur áhorfand-
anum nokkuð vel og söguþráðurinn
flæðir á eðlilegan máta, svona allt
þar til komið er að lokahnykknum.
Þá hægist allt í einu á sögunni um
stundarkorn og er líklega eina
augnablikið þar sem undirrituðum
leiddist á myndinni.
Saga myndarinnar gerist í hinu
ímyndaða ríki Kahndaq og hefst
2600 árum fyrir Krist þegar dular-
fullur verndari stígur fram á sjónar-
sviðið og hrekur illan konung frá
völdum. Eins og lesendur fá á til-
finninguna er nokkuð auðvelt að
gefa heilasellum hvíld yfir sögunni
sem heldur manni að mestu og er
heilt yfir bara frekar skemmtileg.
Inn á milli slæðast þó misheppnaðar
tilraunir til að vekja hjá manni til-
finningar yfir samskiptum persóna
sem maður er nýbúinn að kynnast
og eru ekkert endilega vel skrifaðar.
Dwayne Johnson heldur mynd-
inni uppi í aðalhlutverkinu enda
er kappinn jafnframt framleiðandi
myndarinnar og þess sjást merki í
frammistöðu hans á hvíta tjaldinu.
Hann skemmtir sér konunglega og
hefur raunar áður sagst hafa ólmur
viljað bregða sér loksins í hlutverk
ofurhetju. Pierce Brosnan virðist
jafnframt skemmta sér nokkuð vel í
hlutverk ofurhetjunnar Doctor Fate.
Aðrir skila sínu eins vel og hægt er
þótt augljóst sé að áhersla hand-
ritshöfunda og leikstjóra hafi ekki
endilega verið á aðrar persónur en
Black Adam.
Á heildina litið er Black Adam
mynd sem mun koma fólki á óvart,
fari það á myndina með sömu litlu
væntingarnar og undirritaður.
Myndin er hin besta skemmtun
og gæti bara jafnvel blásið lífi í DC-
ofurhetjumyndaheiminn sem hefur
ekki verið svipur hjá sjón í saman-
burði við risaveldi Marvel. n
NIÐURSTAÐA: Þrusufín skemmt-
un. Smá leiðinleg rétt fyrir lokin og
persónurnar ekki þær flóknustu.
Grjótharður Adam kemur DC-heiminum til bjargar
Dwayne Johnson gæti bara mögulega rústað Súperman í slag. Mögulega.
Lewis Jamieson er stofnmeð-
limur alþjóðlegu aðgerða-
samtakanna Music Declares
Emergency sem stofnuð voru
árið 2019. Hann er staddur
hér á landi til að leiða stofnun
Íslandsdeildar sem miðar
að ábyrgum, sjálfbærum og
grænum starfsháttum í tón-
listariðnaði.
ninarichter@frettabladid.is
Lewis á að baki þrjátíu ára feril í
breska bransanum og hefur gegnt
ýmsum hlutverkum í markaðs-
setningu og kynningarmálum fyrir
fjölda þekktra hljómsveita og stór
vörumerki. Hann hefur unnið með
stórum sveitum á borð við Oasis,
Muse og Radiohead. Hann vann
einnig með íslensku sveitinni Gus-
Gus um aldamótin síðustu.
„Fyrir mörgum árum vann ég
með GusGus og var mikið á Íslandi
þegar ég var að vinna með þeim,
en það eru mörg ár síðan. Ég hef
einu sinni komið til Íslands síðan
þá, þannig að það er aðeins einu
sinni á tuttugu og tveimur árum,
ja, hérna hér,“ segir Lewis og hlær.
„Margt hefur breyst og Harpa var
ekki einu sinni risin, þannig að ég
hlakka gríðarlega til.“
Lewis er með vinnustofu í dag
sem snýr að innleiðingu grænna
lausna í íslensku tónlistarlífi. „Á
morgun er ég svo í pallborðsum-
ræðum þar sem við ræðum hvernig
hægt er að tengja tónlistina við
loftslagsmálin með árangursríkum
hætti. Að koma skilaboðunum
um stöðuna í loftslagsmálum til
fólks í gegnum tónlistarmiðilinn á
jákvæðan máta,“ segir Lewis.
Ísland er eyja í miðju Atlantshaf-
inu og tónlistariðnaðurinn reiðir sig
mikið á f lugsamgöngur með tilheyr-
andi kolefnisspori. Hvernig sérðu
fyrir þér að hægt sé að leysa þetta?
„Ég hélt veffyrirlestur fyrir full-
trúa úr íslenskum tónlistariðnaði
sem spurðu einmitt, hvað getum við
gert, við verðum að fá fólk hingað?
Og ég held að svarið liggi í jafnvæg-
inu. Það er til góð og slæm nýting á
ferðalögum,“ segir Lewis og bætir
við að hann sé ekki að leggja til að
fólk hætti í faginu eða skaði efna-
haginn til að bjarga loftslaginu. „Það
er heldur ekki gott fyrir umhverfið
að skaða efnahaginn, ef þú gerir það
ertu síst að fara að bjarga plánet-
unni,“ segir hann.
„Við þurfum að nálgast þessa
hluti eins og fullorðið fólk. Á sama
tíma eru áttatíu prósent af f lugi að
fljúga með tíu prósent flugfarþega.
En ef þú flýgur ekki með listamann-
inn til áhorfendanna munu áhorf-
endurnir f ljúga til listamannsins
sem skapar f leiri vandamál,“ segir
Lewis.
Hann kveðst skilja að Íslendingar
þurfi vissulega að reiða sig á f lug-
samgöngur. „En einnig eru f lug-
félögin að skoða nýja tækni sem
mun bæta ástandið á komandi
árum. Ég held að við þurfum að
skoða þetta með yfirveguðum hætti
sem skaðar ekki aðra geira atvinnu-
lífsins, taka stöðuna eins og hún er
og í sumum tilfellum segja: Svona er
þetta bara núna.“
Að sögn Lewis eru áhrif loftslags-
breytinga augljós á stöðum eins og
hér á landi. „Á Íslandi eruð þið nú
þegar að sjá hluti eins og rýrnun
jökla, auknar öfgar í veðurfari,
aukið regn og breytingar á haflíf-
ríki, dýralífi og gróðri. Þarna er
hægt að sjá bein áhrif loftslagsbreyt-
inga og neyðarástandið raungerist
fyrir framan ykkur. Þetta hefur upp-
lýsingagildi, að sjá að hér var jökull
fyrir tíu árum og ekki lengur. Þessir
myndrænu lyklar eru það sem við
erum að leita að í okkar vinnu,“
segir hann. „Við reynum að ein-
falda málin í staðinn fyrir að ræða
stöðugt um endurvinnsluaðferðir.
Við þurfum að fara aðeins dýpra
og átta okkur á að hlutir sem halda
fjöldaferðamennskunni gangandi
verða mögulega ekki þarna eftir tíu
ár.“
Lewis segir að í slíkum mynd-
rænum lyklum sé lausnin fólgin en
breytingarnar þurfi á sama tíma að
raungerast á vettvangi stjórnsýslu.
„Einstaklingar geta gert sitt en
það sem við þurfum eru grund-
vallarbreytingar í því hvernig við
umgöngumst plánetuna og þær
breytingar þurfa að koma frá stjórn-
völdum.“
Lewis sækir Airwaves-hátíðina
sem fram fer um helgina, og ráð-
stefnuna um tónlistariðnaðinn sem
fer fram í þessari viku, sem er sam-
starfsverkefni Airwaves, Útón og
Tónlistarborgarinnar. Hann heldur
erindi um græn skref í tónlistariðn-
aði í dag. Hægt er að nálgast frekari
upplýsingar á heimasíðu Iceland
Airwaves. n
Leitar lausna við stóru kolefnisspori
tónlistarbransans á eyjunni köldu
Lewis Jamieson
er stofnmeð-
limur Music
Declares Emer-
gency og er
staddur hér á
landi til að leita
grænna lausna
fyrir íslenskan
tónlistariðnað.
MYND/AÐSEND
ninarichter@frettabladid.is
Bandaríski rapparinn Takeoff er
látinn. Hann lést af sárum sínum
eftir skotárás í keiluhöll í Texas
í gær. Takeoff er þekktastur sem
meðlimur rappsveitarinnar Migos.
Hann var 28 ára gamall. Hans rétta
nafn var Kirshnik Khari Ball.
Migos er ein af áhrifamestu sveit-
um sinnar kynslóðar, brautryðj-
andi í trapp-rappstíl sem kenndur
var við „Migos-flæðið“, segir í frétt
BBC um málið. Hljómsveitin hætti
fyrr á þessu ári. Migos áttu nokkra
alþjóðlega smelli, þar á meðal Bad
and Boujee, Versace og Walk It Talk
It. Sveitin heimsótti Ísland í ágúst
árið 2017 og hélt tónleika í Laugar-
dalshöll. Meðlimir brugðu sér í Bláa
lónið meðan á dvölinni stóð, létu vel
af sér og deildu myndböndum frá
Íslandsdvölinni á samfélagsmiðlum.
Skotárásin átti sér stað í keiluhöll
í Houston í Texas-fylki í Banda-
ríkjunum. Að sögn lögreglu voru
60 gestir staddir í einkasamkvæmi
þegar skothríðin hófst. Föðurbróðir
Takeoff og meðlimur í Migos var
einnig á staðnum en slasaðist ekki
í árásinni.
„Þetta er ótrúlega áhrifamikil og
stór hljómsveit í nútíma hipphoppi,
ein sú áhrifamesta í þessum geira.
Þeir og Future eru áhrifamestir
í þessari senu frá Atlanta,“ segir
Ólafur Halldór Ólafsson, Óli Dóri,
plötusnúður og rekstrarstjóri Kex.
„Þegar svona stór listamaður fellur
frá hefur það rosa áhrif og maður er
í miklu sjokki. Þeir eru ein stærsta
sveitin í þessari Atlanta-Trap-senu.
Hundrað prósent. Þeir hafa haft
mjög mikil áhrif á hvernig tónlist
er í dag,“ segir hann. „Þetta eru tón-
listarmenn með 18 milljónir spilana
á Spotify á mánuði. Þeir eru alveg
hjúts. Þetta er ein af vinsælustu
hljómsveitum síðustu tíu ára.“ n
Takeoff úr Migos
myrtur í Texas
Takeoff var meðlimur sveitarinnar
Migos sem hélt tónleika í Laugar-
dalshöll árið 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
16 Lífið 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR