Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.11.2022, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 02.11.2022, Qupperneq 36
Ef þú flýgur ekki með listamanninn til áhorf- endanna munu áhorf- endurnir fljúga til listamannsins sem skapar fleiri vandamál. Lewis Jamieson KVIKMYNDIR Black Adam Leikstjórn: Jaume Collet-Serra Leikarar: Dwayne Johnson, Pierce Brosnan, Aldis Hodge ofl. Oddur Ævar Gunnarsson Fyrir mörgum er hér komin á hvíta tjaldið enn ein ofurhetjumyndin. Ekki einungis það heldur sömu- leiðis úr smiðju DC Comics, ofur- hetjurisans sem hefur misstigið sig í öðru hverju skrefi við að fram- leiða kvikmyndir um misspenn- andi ofurhetjur eins og Súperman og Aquaman. Með þær væntingar í farteskinu er óhætt að fullyrða að Black Adam með Dwayne „The Rock“ Johnson hafi komið einkar mikið á óvart. Myndin er langt í frá fullkomin og gamaldags vandamál, persónu- sköpun eða öllu heldur skortur á henni, plaga myndina rétt eins og fyrri DC-myndir. Munurinn á þeim myndum og þessari er hins vegar skemmtana- gildið. Myndin heldur áhorfand- anum nokkuð vel og söguþráðurinn flæðir á eðlilegan máta, svona allt þar til komið er að lokahnykknum. Þá hægist allt í einu á sögunni um stundarkorn og er líklega eina augnablikið þar sem undirrituðum leiddist á myndinni. Saga myndarinnar gerist í hinu ímyndaða ríki Kahndaq og hefst 2600 árum fyrir Krist þegar dular- fullur verndari stígur fram á sjónar- sviðið og hrekur illan konung frá völdum. Eins og lesendur fá á til- finninguna er nokkuð auðvelt að gefa heilasellum hvíld yfir sögunni sem heldur manni að mestu og er heilt yfir bara frekar skemmtileg. Inn á milli slæðast þó misheppnaðar tilraunir til að vekja hjá manni til- finningar yfir samskiptum persóna sem maður er nýbúinn að kynnast og eru ekkert endilega vel skrifaðar. Dwayne Johnson heldur mynd- inni uppi í aðalhlutverkinu enda er kappinn jafnframt framleiðandi myndarinnar og þess sjást merki í frammistöðu hans á hvíta tjaldinu. Hann skemmtir sér konunglega og hefur raunar áður sagst hafa ólmur viljað bregða sér loksins í hlutverk ofurhetju. Pierce Brosnan virðist jafnframt skemmta sér nokkuð vel í hlutverk ofurhetjunnar Doctor Fate. Aðrir skila sínu eins vel og hægt er þótt augljóst sé að áhersla hand- ritshöfunda og leikstjóra hafi ekki endilega verið á aðrar persónur en Black Adam. Á heildina litið er Black Adam mynd sem mun koma fólki á óvart, fari það á myndina með sömu litlu væntingarnar og undirritaður. Myndin er hin besta skemmtun og gæti bara jafnvel blásið lífi í DC- ofurhetjumyndaheiminn sem hefur ekki verið svipur hjá sjón í saman- burði við risaveldi Marvel. n NIÐURSTAÐA: Þrusufín skemmt- un. Smá leiðinleg rétt fyrir lokin og persónurnar ekki þær flóknustu. Grjótharður Adam kemur DC-heiminum til bjargar Dwayne Johnson gæti bara mögulega rústað Súperman í slag. Mögulega. Lewis Jamieson er stofnmeð- limur alþjóðlegu aðgerða- samtakanna Music Declares Emergency sem stofnuð voru árið 2019. Hann er staddur hér á landi til að leiða stofnun Íslandsdeildar sem miðar að ábyrgum, sjálfbærum og grænum starfsháttum í tón- listariðnaði. ninarichter@frettabladid.is Lewis á að baki þrjátíu ára feril í breska bransanum og hefur gegnt ýmsum hlutverkum í markaðs- setningu og kynningarmálum fyrir fjölda þekktra hljómsveita og stór vörumerki. Hann hefur unnið með stórum sveitum á borð við Oasis, Muse og Radiohead. Hann vann einnig með íslensku sveitinni Gus- Gus um aldamótin síðustu. „Fyrir mörgum árum vann ég með GusGus og var mikið á Íslandi þegar ég var að vinna með þeim, en það eru mörg ár síðan. Ég hef einu sinni komið til Íslands síðan þá, þannig að það er aðeins einu sinni á tuttugu og tveimur árum, ja, hérna hér,“ segir Lewis og hlær. „Margt hefur breyst og Harpa var ekki einu sinni risin, þannig að ég hlakka gríðarlega til.“ Lewis er með vinnustofu í dag sem snýr að innleiðingu grænna lausna í íslensku tónlistarlífi. „Á morgun er ég svo í pallborðsum- ræðum þar sem við ræðum hvernig hægt er að tengja tónlistina við loftslagsmálin með árangursríkum hætti. Að koma skilaboðunum um stöðuna í loftslagsmálum til fólks í gegnum tónlistarmiðilinn á jákvæðan máta,“ segir Lewis. Ísland er eyja í miðju Atlantshaf- inu og tónlistariðnaðurinn reiðir sig mikið á f lugsamgöngur með tilheyr- andi kolefnisspori. Hvernig sérðu fyrir þér að hægt sé að leysa þetta? „Ég hélt veffyrirlestur fyrir full- trúa úr íslenskum tónlistariðnaði sem spurðu einmitt, hvað getum við gert, við verðum að fá fólk hingað? Og ég held að svarið liggi í jafnvæg- inu. Það er til góð og slæm nýting á ferðalögum,“ segir Lewis og bætir við að hann sé ekki að leggja til að fólk hætti í faginu eða skaði efna- haginn til að bjarga loftslaginu. „Það er heldur ekki gott fyrir umhverfið að skaða efnahaginn, ef þú gerir það ertu síst að fara að bjarga plánet- unni,“ segir hann. „Við þurfum að nálgast þessa hluti eins og fullorðið fólk. Á sama tíma eru áttatíu prósent af f lugi að fljúga með tíu prósent flugfarþega. En ef þú flýgur ekki með listamann- inn til áhorfendanna munu áhorf- endurnir f ljúga til listamannsins sem skapar f leiri vandamál,“ segir Lewis. Hann kveðst skilja að Íslendingar þurfi vissulega að reiða sig á f lug- samgöngur. „En einnig eru f lug- félögin að skoða nýja tækni sem mun bæta ástandið á komandi árum. Ég held að við þurfum að skoða þetta með yfirveguðum hætti sem skaðar ekki aðra geira atvinnu- lífsins, taka stöðuna eins og hún er og í sumum tilfellum segja: Svona er þetta bara núna.“ Að sögn Lewis eru áhrif loftslags- breytinga augljós á stöðum eins og hér á landi. „Á Íslandi eruð þið nú þegar að sjá hluti eins og rýrnun jökla, auknar öfgar í veðurfari, aukið regn og breytingar á haflíf- ríki, dýralífi og gróðri. Þarna er hægt að sjá bein áhrif loftslagsbreyt- inga og neyðarástandið raungerist fyrir framan ykkur. Þetta hefur upp- lýsingagildi, að sjá að hér var jökull fyrir tíu árum og ekki lengur. Þessir myndrænu lyklar eru það sem við erum að leita að í okkar vinnu,“ segir hann. „Við reynum að ein- falda málin í staðinn fyrir að ræða stöðugt um endurvinnsluaðferðir. Við þurfum að fara aðeins dýpra og átta okkur á að hlutir sem halda fjöldaferðamennskunni gangandi verða mögulega ekki þarna eftir tíu ár.“ Lewis segir að í slíkum mynd- rænum lyklum sé lausnin fólgin en breytingarnar þurfi á sama tíma að raungerast á vettvangi stjórnsýslu. „Einstaklingar geta gert sitt en það sem við þurfum eru grund- vallarbreytingar í því hvernig við umgöngumst plánetuna og þær breytingar þurfa að koma frá stjórn- völdum.“ Lewis sækir Airwaves-hátíðina sem fram fer um helgina, og ráð- stefnuna um tónlistariðnaðinn sem fer fram í þessari viku, sem er sam- starfsverkefni Airwaves, Útón og Tónlistarborgarinnar. Hann heldur erindi um græn skref í tónlistariðn- aði í dag. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu Iceland Airwaves. n Leitar lausna við stóru kolefnisspori tónlistarbransans á eyjunni köldu Lewis Jamieson er stofnmeð- limur Music Declares Emer- gency og er staddur hér á landi til að leita grænna lausna fyrir íslenskan tónlistariðnað. MYND/AÐSEND ninarichter@frettabladid.is Bandaríski rapparinn Takeoff er látinn. Hann lést af sárum sínum eftir skotárás í keiluhöll í Texas í gær. Takeoff er þekktastur sem meðlimur rappsveitarinnar Migos. Hann var 28 ára gamall. Hans rétta nafn var Kirshnik Khari Ball. Migos er ein af áhrifamestu sveit- um sinnar kynslóðar, brautryðj- andi í trapp-rappstíl sem kenndur var við „Migos-flæðið“, segir í frétt BBC um málið. Hljómsveitin hætti fyrr á þessu ári. Migos áttu nokkra alþjóðlega smelli, þar á meðal Bad and Boujee, Versace og Walk It Talk It. Sveitin heimsótti Ísland í ágúst árið 2017 og hélt tónleika í Laugar- dalshöll. Meðlimir brugðu sér í Bláa lónið meðan á dvölinni stóð, létu vel af sér og deildu myndböndum frá Íslandsdvölinni á samfélagsmiðlum. Skotárásin átti sér stað í keiluhöll í Houston í Texas-fylki í Banda- ríkjunum. Að sögn lögreglu voru 60 gestir staddir í einkasamkvæmi þegar skothríðin hófst. Föðurbróðir Takeoff og meðlimur í Migos var einnig á staðnum en slasaðist ekki í árásinni. „Þetta er ótrúlega áhrifamikil og stór hljómsveit í nútíma hipphoppi, ein sú áhrifamesta í þessum geira. Þeir og Future eru áhrifamestir í þessari senu frá Atlanta,“ segir Ólafur Halldór Ólafsson, Óli Dóri, plötusnúður og rekstrarstjóri Kex. „Þegar svona stór listamaður fellur frá hefur það rosa áhrif og maður er í miklu sjokki. Þeir eru ein stærsta sveitin í þessari Atlanta-Trap-senu. Hundrað prósent. Þeir hafa haft mjög mikil áhrif á hvernig tónlist er í dag,“ segir hann. „Þetta eru tón- listarmenn með 18 milljónir spilana á Spotify á mánuði. Þeir eru alveg hjúts. Þetta er ein af vinsælustu hljómsveitum síðustu tíu ára.“ n Takeoff úr Migos myrtur í Texas Takeoff var meðlimur sveitarinnar Migos sem hélt tónleika í Laugar- dalshöll árið 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 16 Lífið 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.