Fréttablaðið - 02.11.2022, Qupperneq 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
n Bakþankar
„Ertu nú ánægð, áttræð og komin
á Grund,“ segir í texta úr tíma-
mótaverkinu „Áfram stelpur“.
Textinn fjallar um erfitt líf
alþýðukonu sem kemur upp ell-
efu börnum og endar líf sitt á elli-
mannaheimilinu Grund, eins og
það þá hét. Það er ekki að merkja
á textanum að það geti verið
áhugavert eða eftirsóknarvert að
vera áttræður, hvað þá á Grund.
Frá því að þessi texti var
skrifaður er mikið vatn runnið til
sjávar og raunar enn meira frá því
að hjúkrunarheimilið Grund var
fyrst opnað fyrir þurfandi eldra
fólki í Reykjavík. Heil öld er liðin
frá því að Grund tók til starfa en á
fyrstu áratugum síðustu aldar var
mikill húsnæðisskortur í Reykja-
vík og átti eldra fólk sérstaklega
erfitt uppdráttar. Það var nokkuð
sérstakt að um þær mundir þegar
öflugar konur komu upp sjúkra-
húsum um landið voru það karlar
sem horfðu sérstaklega til ein-
stæðinga af eldri kynslóðinni og
komu upp ellimannaheimilinu
Grund. Nú, hundrað árum síðar,
reka Grundarheimilin fjölbreytta
og metnaðarfulla þjónustu fyrir
eldra fólk og starfið einkennist
af hlýju og myndugleik og er
heimilisfólki þar til ánægju og
starfsfólki og stjórnendum til
mikils sóma.
Í þessa heilu öld hefur starfið
á Grund verið rekið af sömu
fjölskyldunni og er að líkindum
einsdæmi að slík velferðar-
þjónusta eigi svo djúpar rætur
á Íslandi. Það er full ástæða til
að þakka þessari fjölskyldu og
samstarfsfólki hennar í hundrað
ár fyrir sérlega vel unnin störf og
myndugleik í þjónustu við eldra
fólk.
Og já, ég hugsa að ég yrði bara
hæstánægð, „áttræð og komin á
Grund“. n
Grund
Lisiecki
spilar Chopin
3. NÓVEMBER KL. 19:30
MIÐASALA Á SINFONIA.IS
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN @66north
66north.is
Laufey
í Reykjavík
Laufey og Kaktus koma fram í verslun 66°Norður á
Hafnartorgi í tilefni Airwaves í kvöld kl. 19:30.
Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.