Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 40

Fréttablaðið - 02.11.2022, Síða 40
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Önnu Sigrúnar Baldursdóttur n Bakþankar „Ertu nú ánægð, áttræð og komin á Grund,“ segir í texta úr tíma- mótaverkinu „Áfram stelpur“. Textinn fjallar um erfitt líf alþýðukonu sem kemur upp ell- efu börnum og endar líf sitt á elli- mannaheimilinu Grund, eins og það þá hét. Það er ekki að merkja á textanum að það geti verið áhugavert eða eftirsóknarvert að vera áttræður, hvað þá á Grund. Frá því að þessi texti var skrifaður er mikið vatn runnið til sjávar og raunar enn meira frá því að hjúkrunarheimilið Grund var fyrst opnað fyrir þurfandi eldra fólki í Reykjavík. Heil öld er liðin frá því að Grund tók til starfa en á fyrstu áratugum síðustu aldar var mikill húsnæðisskortur í Reykja- vík og átti eldra fólk sérstaklega erfitt uppdráttar. Það var nokkuð sérstakt að um þær mundir þegar öflugar konur komu upp sjúkra- húsum um landið voru það karlar sem horfðu sérstaklega til ein- stæðinga af eldri kynslóðinni og komu upp ellimannaheimilinu Grund. Nú, hundrað árum síðar, reka Grundarheimilin fjölbreytta og metnaðarfulla þjónustu fyrir eldra fólk og starfið einkennist af hlýju og myndugleik og er heimilisfólki þar til ánægju og starfsfólki og stjórnendum til mikils sóma. Í þessa heilu öld hefur starfið á Grund verið rekið af sömu fjölskyldunni og er að líkindum einsdæmi að slík velferðar- þjónusta eigi svo djúpar rætur á Íslandi. Það er full ástæða til að þakka þessari fjölskyldu og samstarfsfólki hennar í hundrað ár fyrir sérlega vel unnin störf og myndugleik í þjónustu við eldra fólk. Og já, ég hugsa að ég yrði bara hæstánægð, „áttræð og komin á Grund“. n Grund Lisiecki spilar Chopin 3. NÓVEMBER KL. 19:30 MIÐASALA Á SINFONIA.IS Vatnagörðum 14 104 Reykjavík litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is UMHVERFISVÆN PRENTUN @66north 66north.is Laufey í Reykjavík Laufey og Kaktus koma fram í verslun 66°Norður á Hafnartorgi í tilefni Airwaves í kvöld kl. 19:30. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.