Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Side 9

Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Side 9
7 NOKKUR ATRIÐI UM GERÐ OG EIGINLEIKA INFLÖENSUVEIRA Gerð inflúensuveira Inflúensuveiran er myxoveira, oftast hnattlaga, 75 nm í þvermál. Innst er einþráða RNA kjarnasýruhönk (helix). Utan um hana raða sér innri próteln veirunnar. Yst er svo nokkuð margbrotinn hjúpur. 1 honum finnast fituefni (lípid) og nokkur mismunandi prótein. Aðeins prótein veirunnar eru mótefnavakar (antigen). Ef greint er eftir þeim mótefnavökum, sem liggja næst RNA kjarna sýru veirunnar (innri mótefnavökum) koma fyrir þrjár gerðir af inflúensuveirum. Þær eru í daglegu tali kallaðar A, B og C stofn ar. Hver þessara aðalstofna greinist síðan í undirflokka eftir gerð ytri mótefnavaka. í hjúpi inflúensuveira eru svonefnd hemagglutinin, er valda samloðun margs konar rauðra blóðkorna í tilraunum. I hjúpnum er einnig ensímið neuraminidasi. Hemagglu- tinin og neuraminidasi eru ytri mótefnavakar veirunnar og ráða þeir mestu um mótefnamyndun hvers einstaklings, sem sýkist. Smávægilegar breytingar á gerð ytri mótefnavaka geta vakið mót- efnamyndun gerólíka þeirri, sem eldri afbrigði veirunnar vöktu. Gömul mótefni eru því gagnslítil til varnar hverjum þeim, sem verður fyrir svo breyttu afbrigði. Flakk mótefnavaka Ytri mótefnavakar inflúensuveira eru sífellt að breytast. Hafa þessar breytingar afgerandi áhrif á gang inflúensu-faraldra. Því fjarskyldara sem nýtt afbrigði er eldri gerðum veirunnar, því örari er útbreiðsla þess og meira um sýkingar. A-stofn veir- unnar hefur sífellt verið að breytast, síðan hann greindist fyrst 1933. B-stofn hefur líka breyst, en útbreiðsla nýrra afbrigða hans hefur þó ekki ennþá orðið eins mikil og útbreiðsla sumra afbrigða af A-stofni. C-stofninn er sjaldgæfari og ekki mikið um þessa eiginleika hans vitað. Hann greinist ekki árlega úr faröldrum í mörgum löndum eins og frændur hans A- og B-stofnarn- ir og hefur ekki náð verulegri útbreiðslu í þau skipti, sem hann hefur greinst. Mótefni gegn C-stofni finnast þó víða, ef farið er að leita. A-stofnar hafa til þessa valdið erfiðustu og útbreidd- ustu inflúensufaröldrunum. Því þykir rétt að rekja hér helstu hugmyndirnar um þær breytingar á ytri mótefnavökum sem orðið hafa á inflúensuveirum af A-stofni (3). Þessar hugmyndir koma greini- lega fram á mynd 1. Á mynd 1 táknar lóðrétti ásinn flakk mótefnavaka. Þetta er af- stæður kvarði, sem sýnir mun á mótefnavökum frá ári tií árs. Lárétti ásinn sýnir tímabilið frá 1933-1968. Arið 1933 ræktað- ist fyrsta mannaveiran af A-stofni inflúensu og árið 1968 kom fram svonefnd Hong-Kong gerð af A-stofni inflúensu. Arið 1978 kom fram afbrigði af A-stofni, óþekkjanlegt frá A-stofninum, sem kom upp árið 1946. L

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.