Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Blaðsíða 11

Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Blaðsíða 11
9 Mynd 1 sýnir að smávægilegar breytingar urðu á báðum ytri mótefnavökunum á tímabilinu 1933-1945. árið 1946 tók hemagglu- tinin A-stofnsins miklum breytingum, en breytingar á neuraminidasa urðu ekki verulegar fyrr en 1957. Það ár tóku báðir ytri mótefna- vakarnir mjög miklum breytingum samtímis. Breytingarnar urðu svo miklar, að segja má að alveg ný veirugerð' hafi komið upp. Hlaut þessi nýi A-stofn einkennisstafina A^ og var í daglegu tali kallaður Asíuinflúensa. Síðan urðu stöðugar smábreytingar á báð- um ytri mótefnavökunum á tímabilinu 1957-1967. Árið 1968 tók hemagglutinin veirunnar meiri háttar breytingum, en neuraminidasinn breyttist lítið. Þetta afbrigði A-stofns hefur verið kennt við Hong-Kong. Allt tímabilið frá 1933-1968 breyttust innri mótefna- vakarnir ekki, eins og sést á mynd 1. Því lengra sem líður og því meira sem flakk mótefnavaka er, því ólíkari er mótefnamyndun gegn nýjum inflúensuafbrigðum og því minni vörn í gömlum mótefnum eftir eldri sýkingar. Þessar breyt- ingar eru því að sjálfsögðu hagstæðar fyrir útbreiðslu inflúensu- veirusýkinga. Öllum meiri háttar breytingum á ytri mótefnavökum A-stofna hafa því eðlilega fylgt stórir faraldrar, þ.e. 1946, 1957 (Asíuinflúensa) og 1968 (Hong-Kong inflúensa) . Áður fyrr var talið að skýra mætti flakk mótefnavaka út frá tilviljanakenndum stökkbreytingum. Eftir slíkar stökkbreytingar yrðu þær veirur ofan á sem rækjust á lítið eða ekkert ónætni í mannfólkinu, þ.e. nýju veirurnar, sem væru ólíkar foreldrum sínum. NÚ er hins vegar talið sannað, áð ekki sé a.m.k. hægt að skýra stóru breytingarnar á grundvelli stökkbreytinga (1). Gerð var amínósýrugreining á hemagglutinin fyrir og eftir breytinguna 1968 og kom þá í ljós, að amínósýrurnar voru svo ólíkar, að útilokað var að skýra muninn út frá stökkbreytingu. Er nú hallast að því að nýju veirurnar, sem koma þegar stórar breytingar verða, séu upprunnar í dýrarxkinu. Vitað er að inflúensuveirur af A-stofni geta sýkt svín, fugla og hesta. Finnast í þeim veirum m.a. mótefnavakar með sömu eða mjög líkri amínósýruröð og þeirri, san greinst hefur úr mannainflúensuveirum af A-stofni. Talið er að ný afbrigði geti komið fram við endurröðun erfðaefnis (genetic recombination). í inflúensuveirum úr fuglum hafa fundist margs konar yfirborðsmótefnavakar og þar á meðal allir þeir, sem finrtast í inflúensuveirum frá spendýrum. Er því talið að fuglar séu hin upphaflegu og stærstu forðabúr (resevoir) fyrir inflúensuveirur með ólíka mótefnavaka, enda eru fuglar margir orðnir aldraðir á þróunarbrautinni . Ef til vill verða þessar kenningar teknar til endurskoðunar nú, þegar aftur er komið upp afbrigði af A-stofni, alveg eins og það afbrigði, sem upp kom 1946 (31). Kenning um "erfðasynd" ónæmiskerfisins Sá sem sýkist af inflúensu, myndar ekki aðeins mótefni gegn þeirri inflúensuveiru, sem hann sýkist af í það skiptið, heldur geta einnig myndast mótefni gegn skyldum afbrigðum, sem sjúklingurinn

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.