Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Blaðsíða 12
10
hefur sýkst af áður. A þennan hátt getur magn gamalla mótefna
vaxið við hvern faraldur og verða því mótefni frá fyrstu sýkingu
innan skylds flokks ráðandi í blóði sjúklinga. Hefur þetta fyrir
bæri verið nefnt á engilsaxnesku "original antigenic sin" (2, 3).
Til að þessi svörun komi fram hefur verið talið að mótefnavakar
afbrigðanna sem valda henni hlytu að vera mjög líkir, þannig að
eftir 1957 hafi mótefni eftir eldri inflúensuafbrigði af A-stofni
ekki vaxið við nýjar sýkingar (3, 14). í nýlegri rannsókn, sem
gerð var í Finnlandi, er hins vegar sýnt fram á, að mótefnahækkun
gegn eldri og fjarskyldari inflúensuafbrigðum af A-stofni hefur
orðið við sýkingar eftir breytingu A-stofnsins 1957. 1 sjúkling-
um, sem fengu þar inflúensu af A-stofni veturinn 1975 - 76 harfckuðu
mótefni gegn svínaveiru í sumum tilvikum jafnframt mótefnum gegn
stofninum, sem olli sýkingunni (17) .