Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Side 16
14
Framkvæmd Hl-prófs
Við framkvæmdina var farið eftir leiðbeiningabæklingi frá
inflúensumiðstöð Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) (15).
1 grundvallaratriðum er hér um að ræða próf Hirsts frá árinu
1941 (9), sem Salk breytti árið 1944 (18).
Notaðar voru plötur eins og sú, sem sýnd er á mynd 3. í fyrstu
röðina (röð A) voru settir 2 dropar af sermi, sem áður hafði
verið þynnt tíu sinnum. 1 hinar holuraðirnar (B til H) var sett-
ur einn dropi af PBS.
Síðan var fluttur einn dropi úr hverri holu í röð A yfir í næstu
holu í röð B og hrært vel í og síðan koll af kolli. Þannig feng-
ust þynningarnar 1/10, 1/20, 1/40, 1/80, 1/160, 1/320, 1/640 og
1/1280. Sérstakir málmþynnar voru notaðir til þessara flutn-
inga. Síðan var einum dropa með 4 HA einingum af mótefnavaka
bætt í hverja holu. Að því loknu var platan látin standa £ a.m.k
eina klukkustund, svo að mótefnavakinn og mótefni, ef einhver
væru, fengju tækifæri til að tengjast. Þá voru settir tveir drop
ar 0,5% lausnar 0-flokks mannablóðkorna í allar holur. Eftir
u.þ.b. eina klukkustund mátti svo lesa af plötunni magn (títer)
Hl-mótefna, þ.e. sjá hve mikið mátti þynna sermið (og þá um leið
mótefnin), áður en það hætti að hindra samloðun blóðkorna.
Þar sem mótefnin höfðu verið þynnt um of, sáust ekki skýrt af-
markaðir hnappar, heldur dreifð agglutination, því að þar gat
veiran látið blóðkorn loða saman. Þar sem nóg var hins vegar af
mótefnum til að þekja veiruna, féllu rauðu blóðkornin til botns
og vel afmarkaðir hnappar mynduðust. Magn mótefnanna, HI-títer-
inn, var lesinn af, þar sem skýrt afmarkaðir hnappar sáust í
mestri þynningu (sjá mynd 3). Sú þynning er látin tákna magn mót
efna (Hl-titer), nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Á sérhverri plötu var aðeins komið fyrir einni gerð mótefnavaka,
og þar mátti koma fyrir þynningarröð tólf serma. Svörun við
A/New Jersey mótefnavakanum var aðeins rakin niður í þynninguna
1/640, því að á þeim plötum var neðsta röðin (röð H) tekin undir
athugun á bindihæfni blóðvatnsins sjálfs. Þar var í stað mót-
efnisvakans sett PBS, til að athuga hvort hreinsun blóðvatnsins
hefði heppnast (serum control).
Samfara Hl-prófinu sjálfu, þurfti £ hvert sinn að athuga styrk
mótefnavakalausnanna, þv£ þær voru útbúnar sérstaklega fyrir
hvert próf. Var þetta gert á sérstakri plötu, þar sem mótefna-
vakalausnirnar voru þynntar með PBS (back titration), þar til
þær hættu að framkalla samloðun blóðkorna.