Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Síða 20
18
ónaami eftlr búsetu
ónæmi fólks eftir búsetu er sýnt á 9. mynd. Áður hefur verið
greint frá því, hvernig búseta í landinu var ákvörðuð í rannsókn
þessari. Myndin sýnir, að ónæmi á þeim svæðum sem sluppu við
spánsku veikina, er lakara en ónæmið þar sem hún gekk 1918.
Þó verður að hafa í huga að á einstökum svæðum er fjöldi mældra
svo lítill, að ólíklegt er að meðalgildi mælinganna gefi nákvæma
hugmynd um ónæmisástand á svæðinu. Meðalgildi verða framvegis
skráð sem nefnari mestu þynningarmótefna (reciprocal gildi) .
Meðalgildi Hl-mótefnanna á svæðunum þar sem veikin geisaði er
65,0, en á öðrum svæðum 33,9. Sá fjöldi sem flokkaður er eftir
búsetu er nökkru minni en heildarfjöldi þess fólks í könnyninni,
sem fætt er fyrir 1930. Astæðan er, að ekki gátu allir gefið
upp nákvæma búsetusögu ýmist vegna ellihrumleika eða annarra sjúk-
dóma .
ónæmi gegn nýjasta A-stofninum (A/Victoria/3/75 (H3N2))
ónæmi eftir aldri
Niðurstöðurnar er að finna £ 4. töflu, sem sýnir Hl-títra miðað
við aldursflokka. Á 10. mynd sést meðalgildi Hl-títra innan
hvers aldursflokks. Ef þessi mynd er borin saman við 6. mynd,
sést að minni munur er á magni mótefna milli aldursflokka en
gegn svínastofninum A/New Jersey/8/76.
Hverjir hafa verndandi mótefni?
Heildarmeðaltal Hl-títra gegn A/Victoriustofni er 46,4 samanborið
við 44,3 gegn svínastofni A/New Jersey. Á meðalgildum þessum er
lítill munur.
Á 11. mynd sést sá fjöldi sem hefur meðalgildi í þynningu meiri
eða jafnt og 1/40 innan hvers aldursflokks (sbr. 8. mynd um
A/New Jersey). Samanburður á 11. og 8. mynd sýnir, að færra fólk
fætt 1898 - 1928 hefur verndandi mótefni gegn Victoriustofninum
en svínainflúensu.