Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Síða 29

Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Síða 29
27 UMRÆÐUR í rannsókninni, sem hér hefur veriS lýst, var lögð megináhersla á að kanna ónæmisástand gamals fólks fyrir svínainflúensu, ef koma skyldi faraldur af svipuðum stofni og spánska veikin. Söfnun sýnanna sem rannsökuð voru, fór því að mestu leyti fram á elliheimilum. Það skýrir hvers vegna flestir þátttakendur í athuguninni eru fæddir á árabilinu 1888 - 1908. Fáir verða miklu eldri, og er það skýring á mannfæðinni í elsta aldurshópn- um. ónæmi gegn svínainflúensu (A/New Jersey/8/76) Veira skyld svínaveiru virðist ekki hafa gengið hér sem faraldur í fólki um 50 ára skeið. önæmi gegn A/New Jersey/8/76 minnkar hratt á árunum eftir 1918. Það styður þá kenningu, að veira lík A/New Jersey/8/76 hafi einmitt gengið í heiminum árið 1918. önæmið minnkar jafnt og þétt á árunum 1919 - 1930 og eftir 1930 eru mjög fáir með mótefni gegn þessum stofni. Mótefni finnast þó £ yngra fólki í stöku tilvikum, án þess að þeir sem þau mót- efni hafa,hafi stundað svínarækt eða umgengist þá dýrategund. Það, að fólk fætt á árabilinu 1919 - 1930 skuli hafa mótefni gegn A/New Jersey/8/76, gefur til kynna að á árunum eftir 1919 hafi gengið inflúensuveirur líkar stofninum, sem olli spánsku veikinni. Þær hafi örvað myndun mótefna sem eru nægjanlega lík til þess að geta einnig bundist A/New Jersey/8/76 stofninum. Nokkrir þátttakendur í þessari rannsókn sögðust hafa fengið "anga af spánsku veikinni" árið 1919. Kemur það vel heim og saman við mótefnamælingarnar. Flestir þeirra bjuggu á Austfjörðum. Ljóst'er að ónæmi er mest í fólki fæddu fyrir 1918, en ekki eins ljóst hvers vegna það minnkar þegar kemur í elstu aldursflokkana. Ekki væri fráleitt að hugsa sér, að það væri vegna þess, að ónæm- iskerfi þeirra elstu sé ekki eins virkt. Nýrri sýkingar mundu því ekki örva mótefnamyndun að sama skapi hjá þeim eins og hjá yngra fólki (sbr. kenninguna um "erfðasynd" ónæmiskerfisins, "original antigenic sin") (3, 17). Eins og sást á 5. mynd eru flestir með títra 1/20 - 1/80. Mjög fáir hafa hærri títra en 1/160, enda langt um liðið síðan veirur skyldar A/New Jersey/8/76 gengu. Mjög fáir eru alveg mótefnalaus- ir, enda flestir þátttakendur í rannsókninni fæddir fyrir 1930. ónæmi á þeim svæðum, sem sluppu við spánsku veikina, er lakara en á svæðunum þar sem hún gekk (9. mynd). Það er samt töluvert ef tekið er tillit til þess að aðalfaraldurinn 1918 barst ekki inn á þessi svæði vegna samgöngubanns og getur því ekki átt þátt

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.