Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Page 30
28
í myndun þessa ónæmis. Eftir að spánska veikin var um garð
gengin var ferðabanni til Norður- og Austurlands aflétt. Þeir
inflúensufaraldrar, sem gengu næstu árin á eftir gátu því óhindr-
að breiðst út um landið (sbr. "angann af spánsku veikinni", sem
áður var greint frá) . Þessir faraldrar virðast hafa hvatt til
myndunar á mótefnum líkum þeim, sem spánska veikin skildi eftir
sig. Eftir því sem árin liðu virðast inflúensumótefnin hafa
orðið ólíkari mótefnunum eftir spánsku veikina og um 1930 geta
þau varla lengur talist verka á A/New Jersey-stofninn, svo að
vörn í þeim gegn svínaveiru virðist harla lítil. Mismunur á meðal-
gildum Hl-títra hjá fólki á einangruðu svæðunum og fólki á svæðunum
þar sem spánska veikin geisaði er 31,1 og er það nokkuð mikill
munur.
Þegar reynt er að meta hverjir kynnu að hafa verndandi mótefni
gegn svínaveiru og skyldum stofnum verður að hafa í huga að HI-
títer 1/10 er vafasvar og auk þess getur mælingin gefið skekkju
sem nemur einni þynningu. Af þessu leiðir, að ekki er hægt að
ábyrgjast að sá sem hefur Hl-mótefni í títra 1/20 hafi í raun og
veru sérhæfð inflúensumótefni fyrir þeim stofni. Því er verndin
hér miðuð við Hl-gildi í þynningu 1/40 eða meiri. Enginn veit
þó hvernig mótefni í sermi mundu reynast sem vörn gegn svínastofn-
inum. Margir efast um gildi þeirra sem vörn gegn inflúensusýk-
ingum frá ári til árs.
Önæmi gegn nýjasta A-stofninum (A/Victoria/3/75)
Minni munur var á magni mótefna milli aldursflokka en þegar mót-
efni gegn svínaveirunni voru borin saman. Þetta gæti bent til
þess, að undanfarin ár hafi gengið hér inflúensustofnar líkir
A/Victoriustofninum. ólíklegt er þó að Victoriustofninn hafi
sjálfur gengið hér áður en athugunin var gerð. Mjög lítill munur
er á heildarmeðaltölum mótefna gegn A/Victoriustofni (x = 46,4)
og A/New Jersey-stofni (x = 44,3). New Jersey-stofninn getur
tæplega hafa komið hér síðan árið 1918-1930. Victoriustofninn
kom fyrst fram árið 1975 og 1976 greindist hér eldri A - stofn,
svonefndur A/Port Chalmers-stofn (A/Port Chalmers/1/73 (H3N2)),
næstsíðasta afbrigði af A-stofni áður en A/New Jersey-stofninn
fannst (6). Þeir sem veiktust og greindust í Hl-prófunum með
A/Port Chalmers-stofn veturinn 1975 - 1976, sýndu enga hækkun í
Hl-prófum fyrir Victoriustof ninum. Færri á aldrinum 50 - 80 ára
hafa mótefni fyrir A/Victoriustofni en A/New Jersey-stofni.
Þessir aldursflokkar eru það fólk sem bólusett er ár hvert gegn
inflúensu. Ekki virðist minni ástæða til að bólusetja þetta fólk
fyrir Victoriustofni en svínainflúensu, ef Victoriustofn verður
á gangi næstu ár.