Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Page 31

Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Page 31
29 ónæmi gegn B-stofni (B/Hong Kong/5/72) Þegar mótefni fyrir B/Hong Kong/72 eru athuguð, sést að á þeim eru ekki miklar sveiflur milli aldursflokka. ónæmið er töluvert meira en fyrir A-stofnum (x = 125,3), þó að B-stofninn hafi ekki greinst hér sem sjúkdómsvaldur í inflúensufaröldrum síðan 1962 (5, 6). Á tímabilinu 1963-1977 hafa eingöngu A-stofnar greinst hérlendis úr því nær árlegum inflúensufaröldrum (5, 6). Samkvæmt þeim mótefnamælingum, sem hér er greint frá, virðist B-stofn samt hafa herjað á landsmenn nýlega og hefur sennilega gengið sem væg kvefsótt hjá flestum sem fengu hann. ónæmi er mikið hjá eldra fólkinu. Það bjó flest á stórum stofnunum, þar sem samskipti eru nokkuð náin. Komi upp inflúensa á þannig stöðum er jarðvegur góður fyrir útbreiðslu veirunnar, en ekki hefur borið á miklum veikindum við komu B-stofnsins á þessar stofnanir. Lokaorð Eins og áður greinir hafa svipaðar rannsóknir farið fram erlendis og töluvert af bráðabirgðaniðurstöðum verið birt í skýrslum frá Alþjóðaheilbrigðisstofuninni, þegar þetta er ritað. Virðast þær niðurstöður sem hér er greint frá, mjög í samræmi við þær niðurstöður sem koma frá mörgum öðrum löndum.

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.