Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Síða 32
30
SAMANTEKT
Arið 1976 mæltist Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) til þess
að gerðar yrðu mælingar á mótefnum gegn svínainflúensu. Að til-
hlutan landlæknis var ráðist í þá rannsókn, sem hér er greint
frá. Markmiðið var að athuga hvort einhver munur væri á ónæmi
gegn svínainflúensu hjá þeim,sem höfðu tækifæri til að sýkjast
í spánsku veikinni annars vegar og þeim sem ekki lentu í faraldr-
inum hins vegar. Af niðurstöður mætti e.t.v. ráða hverjir þyrftu
helst á bólusetningu að halda.
Á íslandi gekk spánska veikin í þremur bylgjum 1918-1919. Til
að hefta útbreiðslu annarrar bylgjunnar voru Norður- og Austur-
land einangruð og barst veikin ekki þangað.
Blóðsýnum var safnað úr fólki á mismunandi aldri og frá mismun-
andi stöðum á landinu. Heildarfjöldi blóðsýna var 1405 sýni frá
jafnmörgum einstaklingum. Þeir voru spurðir um búsetusögu, fyrri
veirusýkingar og bólusetningar.
Mæld voru Hl-mótefni gegn A/New Jersey/8/76 (HSW1N1), A/Victoria/
3/75 (H3N2) og B/Hong Kong/5/72 (BXl-HP) stofnum inflúensuveiru.
Við mælingar var fylgt forskrift,sem WHO mælir með og mótefnavakar
til mælinganna fengnir þaðan.
í ljós kom,að ónsani gegn A/New Jersey/8/76 var meira hjá fóJLki
fæddu fyrir 1918. Fellur ónsanið gegn þeim stofni jafnt og þétt
á árunum 1918-1930 og er varla finnanlegt hjá fólki eftir þann
tíma. Auk þess cr minna ónsemi hjá því fólki, sem bjó á einangr-
uðu svæðunum 1918. Minni munur var á magni mótefna gegn
A/Victoria/3/75 eftir aldri. Munur á meðalgildum Hl-mótefna gegn
A/New Jersey og A/Victoria var lítill. Þegar þessi könnun var
gerð, hafði A/Victoriustofninn ekki greinst á Islandi. Sjúklingar
með inflúensu 1975 og 1976 höfðu hækkandi mótefni gegn A/Port
Chalmers-stofni í afturbata. Engir faraldrar af B-stofni höfðu
greinst hérlendis síðan 1962. Því kom á óvart að meðalgildi gegn
B-stofninum var hæst eða 125,3. Sumir höfðu það há mótefni gegn
B/Hong Kong/5/72 að þeir hlutu að hafa sýkst nýlega.
Niðurstöðurnar sýna að faraldurinn 1918 hlýtur að hafa átt rætur
að rekja til veiru skyldrar A/New Jersey/8/76. Skyldir stofnar
virðast hafa gengið næstu ár á eftir. A/Victoriustofninn virðist
ekki hafa valdið hér faraldri þegar könnunin var gerð. Eldra fólk
á á hættu að sýkjast af honum. B-stofninn virðist hafa gengið
nýlega án þess að hafa valdið umtalsverðum veikindum.