Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1985, Blaðsíða 10
AÐFERÐIR OG ÚRVINNSLA
Rannsóknin nær til þeirra íslendinga sem komu eða komið var með á
Slysadeild Borgarspítalans í Reykjavík vegna umferðarslysa hér-
lendis árið 1975.
Slysadeild Borgarspítalans þjónar í reynd íbúum höfuðborgar-
svæðisins, en með því er hér átt við Reykjavík, Kópavog, Hafnar-
fjörð, Bessastaðahrepp, Garðabæ, Seltjarnarnes og Hosfellshrepp.
Svæðið liggur að mestu innan 12 km fjarlægðar frá Slysadeildinni.
Árið 1975 þjónaði deildin þannig um 117 þúsund manns (13,14) eða
rúmlega helmingi íslensku þjóðarinnar (sjá mynd 1). Oft er líka
leitað til deildarinnar með erfið tilfelli utan af landi.
Árið 1975 var þegar komin hefð á að nota allýtarlega skráningu
upplýsinga um þá sem komu á Slysadeild Borgarspítalans meðal
annars var skráð búseta, aldur, kyn, komuleið, komutími og dagur,
tími frá slysi, orsök slyss, slysstaður, rannsóknir, sjúkdóms-
greiningar, meðferð, innlögn á sjúkrahús ef um það var að ræða,
stutt lýsing slysaatvika, skoðun og meðferð. Upplýsingum var
safnað við komu sjúklinga á deildina bæði frá þeim sjálfum,
sjónarvottum, sjúkraflutningamönnum, lögreglu eða öðrum, eftir þvi
sem aðstæður leyfðu hverju sinni. Aðstoðarlæknar fylltu jafnóðum
út sérstök kort undir eftirliti sérfræðinga deildarinnar, til
tölvuskráningar sem fór fram jafnharðan.
Skilgreiningar hugtaka er að finna í viðauka, en í storum dráttum
er með umferðarslysi átt við slys á fólki af ökutæki á hreyfingu á
vegi eða á leið út af vegi.
Tafla I sýnir öflun gagna. Þetta ár var skráð að 1653 einstak-
lingar hefðu komið á Slysadeild Borgarspítalans vegna umferðar-
slysa. Við nánari athugun reyndust 101 ekki falla undir þær
skilgreiningar sem stuðst var við, þar af 31 ómeiddur og 15
útlendingar. 1 þeim tilgangi að tryggja sem best að engir féllu úr
rannsókninni vegna hugsanlegrar vanskráningar eða væri ofaukið
vegna ofskráningar, voru kannaðar sjúkraskrár allra þeirra sem
komu á Slysadeildina árið 1975. Reyndust 330 til viðbótar hafa
slasast í umferðarslysum en 27.509 komu á deildina af öðrum
orsökum. Af þeim sem ekki eru taldir með í rannsókninni voru þó
156 sem klemmdust á bílhurðum, 109 sem meiddust við kyrrstæða bíla
eða í vinnu við þá, 22 við fall af pöllum kyrrstæðra vörubíla og
17 í kyrrstæðum strætisvögnum eða við þá og falla því ekki undir
skilgreiningar rannsóknarinnar. Einnig voru kannaðar sjúkraskrár
skurðlækningadeildar Borgarspítalans í sama skyni. Allir sem lagst
höfðu inn á deildina af Slysadeild það ár vegna umf erðarslysa
höfðu verið rétt skráðir á Slysadeild. Hins vegar voru 6 sjúk-
lingar sem lent höfðu í umferðarslysum lagðir beint inná deildina
af öðrum sjúkrahúsum, án viðkomu á Slysadeild og uppfylla því ekki
þau skilyrði sem rannsókninni voru sett.
1 þeim 330 tilfellum þar sem um umferðarslys var að ræða en það
hafði ekki verið skráð sem orsök var oftast tilgreint "fall",
"hras", "högg af hlut" eða "vélar", sem var í sjálfu sér rétt í
öllum tilvikum þótt umferðarslys væri undirliggjandi orsök.
8
i