Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1985, Qupperneq 31
VIflAUKI C: Bréf til þátttakenda, 1980.
BORGARSPlTALINN
REYKJAVlK. 15.10.1980.
Kæri lesandi.
Svo sem kunnugt er valda umferöarslys mönnum vaxandi
áhyggjum. Miklum fjármunum er varió til meðhöndlunar fórnar-
lamba, endurhæfingar og til slysa- og örorkubóta. Mikiö fjár-
hagslegt tjón er líka fólgið í vinnutapi vegna tímabundins eða
varanlegs heilsubrests svo og dauða vinnuhæfra og efnilegra
þegna landsins. Ásamt þessu fylgja ómælanlegir erfióleikar,
þjáning og sorg slasaóra og aðstandenda þeirra. Einnig mun eyói-
legging ökutækja og annarra efnislegra verðmæta tilfinnanleg.
Vitað er, aó fyrirbyggjandi aðgerðir geta komið að gagni
gagnvart umferóarslysum. En skipulagning fyrirbyggjandi aógeróa
krefst þess, að ábyggilegar og ítarlegar upplýsingar um sem
flesta þætti umferóarslysa liggi fyrir í aðgengilegu formi.
Mikilvægt er aö afleiðingar slysanna séu vel ljósar þegar meta
á hvar, hvernig og í hve ríkum mæli vænlegt sé að beita fyrir-
byggjandi aðgeróum.
ímsar getgátur eru uppi um afleiðingar umferóarslysa hérlend-
is, en líkur benda til þess, að þær séu vanmetnar.
Fyrir frumkvæói Bráðanefndar Borgarspítalans og fyrir tilstuólan
starfshóps um slysavarnir, sem landlæknir veitir forstöðu og stofn-
að var til fyrir tilstuðlan ALFA-nefndar '81, hóf undirritaður rann-
sókn á umferðarslysum ársins 1975 í þeim tilgangi að kanna afleið-
ingar umferóarslysanna umrætt tímabil og sýna þannig fram á hvort
eóa hve brýnt verkefni fyrirbyggjandi aógerðir væru og koma á fram-
færi aógengilegum upplýsingum til hjálpar við aó meta hvar ætla
mætti, að fyrirbyggjandi aógeróir kæmu aó bestum notum.
Rannsóknarhópurinn takmarkast af þeim, sem leituðu til Slysa-
deildar Borgarspxtalans árið 1975 með meiðsli úr umferðarslysum.
Mikilvægur liður í rannsókninni er að kanna reynslu þeirra, sem
fyrir slysunum urðu. Þetta bréf er sent þér í þeim tilgangi og þess
vænst aö reynsla þín og annarra, sem einnig er leitað til, geti síóar
leitt til þess aó slysum fækki og afleióingar veröi bærilegri
fyrir okkur öll.
Litió er á allar upplýsingar sem trúnaðarmál þannig að algerri
nafnleynd er heitið.
1 trausti þess, aó þú bregðist vel vió þessari beiðni sendi ég
þér meðfylgjandi spurningalista, sem ég bió þig, eða aðstandendur
þína að svara og póstleggja síðan eins fljótt og mögulegt er.
Virðingarfyllst,
Bjarni Torfason, læknir
Skurðlækningadeild
Borgarspítala.
29