Jólablað Söguútgáfunnar - 15.12.1940, Blaðsíða 5

Jólablað Söguútgáfunnar - 15.12.1940, Blaðsíða 5
1940 Jó 1 ab 1 að Söguútgáfunnar 5 Framh. af 4. síðu. sameiginlega. Svona margar og faliegar gjafir höfðu börnin víst aldrei fengið áður. »Petta eiga þín börn að fá hjá mér«, sagði hann og álti við þau börnin, sem hún átti að hafa með sér, Og hún sagði á sama hátt. Pau gengu vandlega frá bögglun- um undir jólatrénu. »En hvað það er skrítið, að við skulum bæði vera að skreyta jólatréð í síðasta sinn«. sagði hann. Og það fannst henni líka. Svo tók hann liila öskju upp.úr vasa sínum. »Petta er síðasta jóla- gjöfin mín til þínc, sagði hann og rétti henni öskjuna, Hún opnaði hana þegar. Hann stóð og horfði á hana, Á flauelsfóðri öskjunnar blikaði á gullfesti. Hún leit upp- »Er þetta festi hinna gráu, gleði- snauðu daga, sem þú gefur mér?« Hann hrisfi höfuðið. — »Nei, taktu hana upp«. Petta voru armbandshlekkir. Hún tók þá upp. Pað voru fleiri undir. Ein, tvær, þrjár, — festarnar voru tólf alls. Hún stóð hikandi og vóg þær í hendi sér, og hann sagði iágt: »Láttu þær á þig. Pú hefir oft brigzlað rnér um, að ég hafi fjötr- að þig og svift þig frelsi og gefið þér steina í staðinn fyrir brauð. Nú færðu gullhlekkina þá arna til endurminningar um hvert ár, sem þú hefir dvalið á þessu heimili í fangelsi*. Hún stóð enn og vóg gullhlekk- ina í hendi sér, og hönd hennar skalf. »Ég skal hjálpa þér«, sagðí hann. Hann læsti svo festunum utan um hægri handlegg hennar, hverri eftir aðra. Svo laut hann niður og kyssti á hönd hennar, »I-áttu nú börnin koma inn«, Hún fór að kveikja á kertunum, og börnin komu hlaupandi inn, Úti í fremra herberginu höfðu börnin fjögur stungið saman nefj- um og sagt eitthvað sín á milii, sem foreldrarnir heyrðu ekki. Nú stóðu þau dálitla stund og horfðu óróleg og hikandi á foreldra sína, sem enn gáðu einkis. Móðirin settist við hljóðfærið og spilaði jólasálm, og fjórar barna- raddir sungu með. Faðirinn sat í hægindastól með slökktan vindling í munnvikinu. Hugur hans var í uppnámi, og nú rifjuðuet upp fyrir honum endurminningarnar um öll aðfangadagskvöldin liðnu, sem þau höfðu lifað saman, hann og þessi kona, sem nú var að fara frá hon- um fyrir fullt og allt. Hve heitt hafði hann eigi elskað þessa konu einu sinni, og hve hún hafði end- uigoldið ást hans með óumræði- legri ást og blíðu. Hvernig hafði þá tortryggni og beiskja getað smeygt sér inn í samlíf þeirra? — Jú, því olli fyrsta lýgin, sem síðan var flett ofan af og myndaði fyrstu sprunguna á milli þeirra. Og síð- an hver ný lýgin á fætur annarri til að b eiða yfir hinar fyrri, og að lokum var komið, sem komið var. Hann stóð snöggt upp og brosti til barnanna sinna. Hann ætlaði að vera glaður og kátur síðasta aðfangadaginn þeirra. Pau gengu nú umhverfis jóla- tiéð, og gjöfunum var ú'.býtt, og jólasælgæti borið á borð. Dóttirin litla stóð hjí móður sinni og klappaði hönd hennar. Hún hafði fengið ljómandi fallega brúðu í jólagjöf. Nú rak hún augun í gull- hlekkina tólf á handlegg móður sinnar. »Hefirðu fengið þetta núna?« spurði hún, og móðir hennar drap höfði. »Já, ég fékk þá hjá pabba«. Hún rétti fram handlegginn og sýndi börnunum Baldurshagi býður yður: Matvörur, allar teg, Bökunardropa Krydd, allsk. Syróp Kex Kringlur Skonrok Tvíbökur og önnur brauð úr Kristjánsbakaríi. Mrtinlætisvörur Milo sápur og shampoo Lux handsápur Lux sápuspænir Lifebuoy Toilet sápa Sunlight sápur Radion Hreins-hvítt Þvottasápur og góðu vírpottaskrubbarnir (silfurlituðu) Sælgæti Suðusúkkulaði allar teg. Konfektkassar Atsúkkulaði Allsk. blönduð sætindi. Tóbaksvörur il. teg. Jólakortin Jólaspilin Smávörur fl. teg. Verzt. Baldursliagi. jólagjöfina. Allt í einu sagði elzti drengurinn hikandi: >Já, en næsta ár færðu ekkert hjá pabba, því að næsta ár áttu að vera einsömul hjá Lílju og Hans«. Hún hrökk við og þreif í hand legginn á drengnum: »Hvað áttu við Sigurður?* og drengurinn svar Framh. 6. síðu. Þ yj R I • sem ætla að fá föt sín hreinsuð og pressuð fyrir jól, Jaurfa að senda þau, eigi síðar en 16. p. m. G uf u pr essu n Akureyrar Sítni 4 2 1 . AK.RA S MJ0RLí K I JURTAFEITI E R B E Z T. SÍLDARBRÆÐSLUSTÖÐIN DAGVERÐAREYRI H, F. EXPORT — IMPORT Sími: 329 Símnefni: „Dagverðar"

x

Jólablað Söguútgáfunnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólablað Söguútgáfunnar
https://timarit.is/publication/1747

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.